Bændablaðið - 07.07.2016, Page 1
13. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 7. júlí ▯ Blað nr. 470 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Verð á svínakjöti hefur hækkað
til neytenda en lækkað til bænda
Afurðaverð til svínabænda hefur
lækkað um tæp 9% á síðustu
þremur árum. Á sama tíma hefur
neysluverðsvísitala hækkað um
7,5% og svínakjötsafurðir hækkað
um 7,4 til 8,6% í verslunum.
Björgvin Jón Bjarnason, formaður
Svínaræktarfélagsins, segir erfitt að
skilja hvers vegna verð á svínakjöti
til neytenda út úr búð hafi hækkað
undanfarin ár en á sama tíma hafi
afurðaverð til bænda lækkað.
„Undanfarin þrjú ár höfum við séð
að verð til bænda hefur lækkað um
rúm 9% en á sama tíma hefur verð
út úr búð hækkað um rúm 7%, jafn-
vel þótt tekið sé tillit til hækkunar á
virðisaukaskatti á matvæli. Hér er því
um að ræða raunhækkun á svínakjöts-
afurðum til neytenda út úr búð.
Við vitum að vara eins og svína-
kjöt hækkar samkvæmt virðiskeðju
sem hefst hjá bónda og lýkur við
kassann í verslunum eftir að hafa
farið í gegnum sláturhús og afurða-
vinnslur.“
Neytendur greiða hærra verð
„Ég hef svo sem ekki mikið verið að
velta fyrir mér hvar hækkunin verður
en að mínu mati er hún óeðlilega
mikil og neytendur eru sannanlega
að greiða hærra verð fyrir okkar
afurðir þrátt fyrir að verð til bænda
hafi lækkað. Hækkunin kemur því
ekki frá okkur.“
Björgvin segir að eins og búast
megi við beri allir fimlega af sér
sakir þegar leitað sé svara við því
af hverju svínakjöt til neytenda
hafi hækkað eins mikið og raun ber
vitni. Fulltrúar verslunarinnar segja
af og frá að álagningin hjá þeim
hafi hækkað og sama segja fulltrúar
afurðafyrirtækjanna.
Innflutningur pressar niður verð
til bænda
Björgvin segir að í dag sé
eftirspurn eftir svínakjöti meiri en
framboð en að samt sem áður hafi
verð til framleiðenda ekki hækkað
að neinu ráði. Innflutningur á
svínakjöti er greinilega að pressa
verðið til framleiðenda niður.
Hækka úr 500 í 2.000 krónur
Samkvæmt gögnum sem
Bændablaðið hefur undir höndum
er tollverð (CIF-verð) á innfluttum
svínalundum 757 krónur kílóið
en það er selt út úr búð, að
frádregnum virðisaukaskatti,
á um 2.000 krónur. CIF-verð á
svínahryggvöðvum er 451 króna
kílóið en útsöluverð út úr búð er
svipað og á svínalundum.
Ekki verðlagt í samræmi við
innflutningsverð
Svínalundir og hryggvöðvar frá
löndum ESB eru fluttir til landsins
á tvenns konar kjörum. Annars
vegar með 18% tolli að viðbættum
magntolli sem er 664 krónur kílóið.
Hins vegar og mun líklegra er
að kjötið sé flutt til landsins á
tollkvóta ESB. Tollkvótinn er án
tolla en innflytjandinn greiðir hins
vegar fyrir kvótann í útboði sem
atvinnuvegaráðuneytið auglýsir.
Tollkvóti fyrir árið 2016 var alls
200 tonn og seldur fyrir 255 krónur
kílóið.
Verðhækkun á öðrum svína-
kjötsafurðum er í svipuðum stíl og
í flestum tilfellum er um að ræða
vöru sem ekkert er unnin hér á
landi. Álagningin er því hraustleg.
Ein af rökum verslunarinnar
fyrir auknum innflutningi á
land búnaðarvörum er að inn-
flutningurinn leiði til lægra
matvælaverðs þrátt fyrir að slíkt
sé ekki raunin.
Innflutningur á svínakjöti árið
2015 var 573 tonn en var 364 tonn
árið 2013. Á saman tíma hefur
innlend svínakjötsframleiðsla
aukist úr 6.008 tonnum í 6.512
tonn.
Björgin segir að svo virðist vera,
enn sem komið er, að innlend vara
stjórni verðinu á markaði. Með
öðrum orðum að innflutt vara sé
verðlögð eins nálægt innlendri
framleiðslu og hægt er en ekki í
samræmi við innflutningsverð.
Þetta geri það að verkum að inn-
lendir svínaframleiðendur eiga
afar erfitt með að keppa við ódýrt
innflutt kjöt sem kemur frá megin-
landinu. /VH
Búskapur er heyskapur. Það hefur viðrað vel um mestallt land til heyskapar síðustu vikur. Víðast hafa náðst góð hey ef frá eru talin svæði þar sem þurrkar hafa hamlað sprettu. Myndin að
ofan prýðir ljósmyndasýninguna „Bændur á Jökuldal“, sem hangir uppi á Skjöldólfsstöðum í sumar. Þarna snæða í makindum hádegisskattinn, þeir Guðmundur Hinrik Gústavsson, Óli Stefáns-
son og Stefán Ólason í Merki, en þeir voru við heyskap á Gauksstöðum sumarið 2015. Ljósmyndarinn er Ragnhildur Aðalsteinsdóttir frá Vaðbrekku. Mynd / Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
12
Landsmót
hestamanna
Heimsókn í
Árneshrepp
27–30
Salatið
víðförla
18