Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Framleiðsla á kapla-, geita- og sauðamjólk verður starfsleyfisskylt – gert til að skýra og jafna stöðu framleiðenda Þann 1. júní sl. tók gildi breyting á lögum um matvæli sem gerir fram- leiðslu á kapla-, geita- og sauða- mjólk starfsleyfisskylda, eins og greint var frá í síðasta Bændablaði. Kjartan Hreinsson, sérgreinadýra- læknir á sviði Matvælaöryggis og neytendamála hjá Matvælastofnun, segir að breytingin sé gerð til að skýra og jafna stöðu þeirra fram- leiðenda sem setja vörur á markað fyrir neytendur. „Áður var gert ráð fyrir að sauðfjár- og hrossarækt væri ekki starfsleyfisskyld. Þar hefur sennilega verið horft til þess að kjöt- afurðirnar færu á markað í gegnum sláturhús sem væru með starfsleyfi. Kúabændur hafa hins vegar alltaf þurft starfsleyfi. Í nýrri mjólkurreglu- gerð er gert ráð fyrir að sömu reglur gildi um allla framleiðslu á mjólk. En vegna þess að rækt þessara dýra var ekki starfsleyfisskyld, þá var mögulegt að líta svo á í þröngri merkingu að mjólkurframleiðsla væri það ekki. Það myndi þá stangast á við reglur um aðra mjólkurfram- leiðslu. Auk þess verður óskað eftir að mjólk frá þessum smáframleið- endum fari til starfsleyfisskyldra aðila, svo sem mjólkurbúa, ísgerða, ostagerða, til framleiðslu. Þau mega hins vegar ekki taka við mjólk nema framleiðsla hennar sé undir eftirliti,“ segir Kjartan. Ekki starfsleyfi vegna sauðfjár- eða hrossaræktar Ekki verður hins vegar krafist sér- staks starfsleyfis af bændum sem ætla einungis að stunda hefðbundna sauðfjár- og hrossarækt án mjólkur- framleiðslu. Þeim ber hins vegar eins og áður að tilkynna Matvælastofnun um starfsemi sína áður en hún hefst. Kjartan segir að örfáir aðilar stundi nú mjólkurvinnslu á kapla, geita- og sauðamjólk. „Þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar í hverjum landshluta. Helst er þetta framleiðsla á sauða- og geitamjólk, sem þó er breytilegt milli ára. En við höfum einnig fengið fyrirspurnir um kaplamjólk. Við gerum frekar ráð fyrir að þessum fyrirspurnum muni fjölga. Á lista Matvælastofnunar yfir samþykktar starfsstöðvar er enginn sem framleiðir sauða-, geita- eða kaplamjólk. Hins vegar hafa nokkrir aðilar verið í þessari framleiðslu og eru undir eftirliti Heilbriðgiseftirlits sveitarfélaga,“ segir Kjartan. /smh Fréttir Opinbert eftirlit með framleiðslu matjurta: Færist til heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Eftirlit með frumframleiðslu matjurta hefur verið fært frá Matvælastofnun til heilbrigðis- eftirlits sveitarfélaga. Það var gert með breytingu á lögum um matvæli sem tók gildi 1. júní síð- astliðinn Lagabreytingunni er ætlað að einfalda aðstæður fyrir fram- leiðendur matjurta. Dóra S. Gunnarsdóttir, fagsviðsstjóri á sviði matvælaöryggis og neytenda- mála hjá Matvælastofnun, segir að fyrir 2009 hafi engin ákvæði verið um skráningu eða eftirlit með rækt- un matjurta. En með breytingu á lögum um Matvæli árið 2009 hafi ræktendum verið gert skylt að skrá starfsemi sína hjá Matvælastofnun. „Samkvæmt matvælalöggjöf Evrópska efnahagssvæðisins, sem var innleidd í Evrópu 2002 –2004 skal matvælaeftirlit ná til allrar keðjunnar, frá hafi og haga til maga. Þetta þurfti því að laga með því að setja ákvæði um skráningu og eftirlit með ræktun. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga var hins vegar með eftirlit með þeim sem pökkuðu matjurtum. Ferlið einfaldað Dóra segir að þegar Matvælastofnun fór að skoða þessi mál þótti það ekki skynsamlegt að tveir aðilar væru að sinna mat- væla eftirliti með rækt endum mat- jurta. „Meiri hluti ræktenda pakkar einnig af urðum sínum í neytendapakkningar og fer heilbrigðiseftirlit með eftirlit með þeirri starfsemi. Til einföldunar lagði Matvælastofnun því til að lögum verði breytt. Varðandi aðrar greinar í frumframleiðslu þá fer Matvælastofnun með eftirlit þar, auk eftirlits með dýraheilbrigði og dýravelferð.“ /smh Jóhanna Magnúsdóttir á Háafelli mjólkar geiturnar sínar. Mynd / smh Sáð fyrir káli á Flúðum. Mynd / smh Dóra S. Gunnarsdóttir. Nýtt Landsmótssvæði stóðst væntingar keppenda, gesta og hesta: Góð umgengni og ánægðir gestir Talið er að 7–8.000 manns hafi verið saman komin á Hólum í Hjaltadal um helgina, þar af um 20–25% erlendra gesta. Áskell Heiðar Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri mótsins, segir mótið hafa gengið áfallalaust fyrir sig. „Ég finn mikla gleði og ánægju. Umgengni um svæðið hefur verið virkilega góð og gestir sýna hver öðrum og svæðinu virðingu. Ég er því alsæll.“ Hann segir það hafa komið aðeins á óvart hversu stór hópur gesta hafi valið að búa á mótsvæðinu, í tjaldstæðum eða í húsnæði á Hólum. „Það bjuggu um 5.000 manns á svæðinu sem er mjög skemmtilegt. Fólk virðist hafa náð að koma sér vel fyrir enda er hægt að sækja í góða þjónustu á svæð- inu, hér er frábær matur, sturtur og stutt í sundlaug.“ Þá reyndist keppnissvæðið, vellir og aðbúnaður hrossanna mjög vel að sögn Áskels Heiðars. „Hér hefur fólk lagt nótt sem nýtan dag síðustu mánuði við að byggja upp vellina og þekkir þá því vel. Þau hafa brugðist við ausandi rigningu í byrjun vikunnar sem og bakandi sól þar á eftir. Vellirnir hafa þolað það álag sem fylgdi fyrstu dögunum og við heyrum frá knöpum að þeir hafi reynst vel. Þá var hér fyrir góð aðstaða fyrir hrossin á húsum og hólf utandyra. Ég vona því að sem flestum hafi liðið vel, bæði mönnum og hrossum.“ Áskell Heiðar er ánægður með þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á Hólum og segir háskólann nú vera búinn öflugum heimavelli sem hægt verður að nýta allt árið. „Mér fannst mjög skynsamlegt að bæta þessu keppnis- og kynbótasvæði við þann góða grunn sem var hér fyrir. Svæðið verður í fullri notkun skagfirskra hestamanna í hinu nýja sameinaða hestamannafélagi ásamt því að vera heimavöllur skólans og fagmennsk- unnar. Einn frægur hrossaræktandi varpaði því fram að við ættum að útnefna þetta svæði þjóðarleikvang íslenka hestsins. Mér finnst það fín hugmynd.“ Framkvæmdastjórinn hefur haft í nógu að snúast á undanförnum vikum en Áskell Heiðar segist hafa haft gaman af verkefninu. „Flækjustig framkvæmdarinnar var nokkuð hátt. Hér hefur þurft að hugsa bæði um aðbúnað manna og hesta. Þá er mótið tæknilega flókið auk þess að vera að máta það inn á nýtt svæði. Þetta hefur verið rosalega gaman og ég hef kynnst skemmtilegu fólki og allt í kringum þetta hefur verið frábært starfslið sem lagði sig verulega fram við að leysa allt sem upp kom. En ég viðurkenni að ég verð mjög kátur að leggjast á koddann að móti loknu.“ /GHP Áskell Heiðar er að vonum ánægður með vel heppnað mót og glæsilega uppbyggingu á Hólum. Mynd / GHP Úthlutun á WTO-tollkvóta seinni hluta 2016: 43 tonn af unnum kjötvörum fluttar inn Samtals bárust fimmtán gild til- boð í tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2016. Fimm tilboð bárust um inn- flutning á nautagripakjöti, samtals 56.200 kíló, á meðalverðinu 118 krónur fyrir kílóið. Hæsta boð var 630 krónur fyrir kílóið en lægsta boð var 5 krónur fyrir kílóið. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 47.500 kg á meðal- verðinu 138 krónur fyrir kílóið. 31 tonn af svínakjöti Fjögur tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 31.300 kíló, á meðalverðinu 59 krónur fyrir kíló- ið. Hæsta boð var 270 krónur fyrir kílóið en lægsta boð var 0 krónur fyrir kílóið. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 31.300 kg á meðalverðinu 59 krón- ur fyrir kílóið. Til úthlutunar voru 32.000 kg. Ekki kom til útboðs á kinda- og geitakjöti Ein umsókn barst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 30.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 172.500 kíló. 29,5 tonn af alifuglakjöti Átta tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 147.500 kíló, á meðalverðinu 309 krónur fyrir kílóið. Hæsta boð var 580 krónur fyrir kílóið en lægsta boð var 0 krónur fyrir kílóið. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 29.500 kíló á með- alverðinu 546 krónur fyrir kílóið. 59,5 tonn af osti Þrjár umsóknir bárust um innflutning á smjöri, samtals 17.000 kíló. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 26.500 kíló. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 154.000 kíló, á meðalverðinu 232 krónur fyrir kílóið. Hæsta boð var 390 krónur fyrir kílóið en lægsta boð var 11 krónur fyrir kílóið. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 59.500 kíló á meðal- verðinu 306 krónur fyrir kílóið. 37 tonn af eggjum Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum, samtals 37.000 kíló, á meðalverðinu 20 krónur fyrir kílóið. Hæsta boð var 100 krónur fyrir kílóið en lægsta boð var 0 krónur fyrir kílóið. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 37.000 kíló á meðal- verðinu 20 krónur fyrir kílóið. Til úthlutunar voru 38.000 kg. 43 tonn af unnum kjötvörum Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjöt- vörum, samtals 150.400 kíló, á með- alverðinu 404 krónur fyrir kílóið. Hæsta boð var 630 krónur fyrir kílóið en lægsta boð var 0 krónur fyrir kílóið. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 43.000 kíló á meðalverðinu 568 krónur fyrir kílóið. /VH unnum kjötvörum. Mynd / ÁÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.