Bændablaðið - 07.07.2016, Page 27
Hjónin Eva Sigurbjörnsdóttir
og Ásbjörn Þorgilsson fluttu til
Djúpavíkur fyrir rúmum þrjátíu
árum og stofnuðu hótel sem þau
reka í dag. Hótelið er í húsi sem
var svefnaðstaða söltunarkvenna
við síldarverksmiðjuna í Djúpavík.
Í haust verður verksmiðjan
sviðsmynd í stórri Hollywood-
kvikmynd.
Ásamt því að kaupa kvennaskál-
ann undir hótelrekstur keyptu þau
einnig gömlu síldarverksmiðjuna í
Djúpavík, sem Ási hefur verið að
gera upp í þrjátíu ár.
Ási segir að verksmiðjan sé 22
þúsund rúmmetrar, eða sex þúsund
fermetrar að flatarmáli. „Þegar menn
eru með söfnunareðli er eitt og annað
sem þarf að geyma og taka til handar-
gagns ef ske kynni að hægt væri að
nýta það seinna. Ég er lítið fyrir að
henda hlutum þrátt fyrir að hætt sé
að nota þá tímabundið og því gott að
hafa nóg pláss til að geyma hluti.“
Stærsta steinsteypta hús landsins
Framkvæmdir við byggingu
síldarverksmiðjunnar í Djúpavík
hófust vorið 1934 en í september
sama ár var hlutafélagið Djúpavík
stofnað í Reykjavík, nánar tiltek-
ið á Hótel Borg. Markmið félags-
ins var að reka síldarverksmiðju í
Djúpavík og stærstu hluthafar voru
Útgerðarfélagið Alliance og Einar
Þorgilsson & Co.
Þegar verksmiðjan tók til starfa
1935 var hún stærsta bygging lands-
ins úr steinsteypu. Mölinni og sandi
í steypuna í verksmiðjuna var ekið
frá Kjós í Reykjafirði á fimm Ford-
vörubílum sem báru hálft annað tonn
og steypan hrærð á staðnum.
Verksmiðjan var búin nýjum
og fullkomnum tækjum til lýsis-
og mjölvinnslu á mælikvarða síns
tíma og árangurinn var góður. Fastir
starfsmenn voru um sextíu og vel
á annað hundrað manns unnu við
söltunina auk fólks í mötuneytinu og
á skrifstofu verksmiðjunnar.
Verksmiðjan var í notkun í tuttugu
ár en eftir að síldin hvarf kom upp
sú hugmynd að breyta verksmiðj-
unni í frystihús en úr því varð ekki.
Engin starfsemi var í húsinu í mörg
ár, eða þar til Ási fór að taka til og
gera hana upp.
Allt mjög nákvæmt
Ási segir að eftir þessi þrjátíu ár sem
hann hefur verið að stússa í verk-
smiðjunni þekki hann húsnæðið
orðið mjög vel og rati um það blind-
andi. „Á þessum árum hefur auðvitað
ýmislegt komið á óvart. Hingað kom
einu sinni Norðmaður sem var í námi
í arkitektúr og eyddi drjúgum tíma
í að mæla og teikna verksmiðjuna
upp. Það sem er einna athyglisverð-
ast við bygginguna er hversu allt er
nákvæmlega byggt. Bil á milli súlna
eru öll nákvæmlega jafn stór og þar
fram eftir götunum.
Það sem verst hefur farið með
verksmiðjuna eftir að notkun hennar
var hætt er leki og vatn. Síðastliðin
þrjú ár hef ég ásamt öðrum verið að
setja tjörupappa ofan á þökin til að
stöðva leka og í dag lekur þakið ekki
lengur. Næsta skref er að sandblása
steypuskemmdir og gera við þær.“
Endist ekki aldur
til að klára verkið
Ási segist ekki gera sér neinar grill-
ur um að honum endist aldur til að
koma verksmiðjunni í það horf sem
hann vill sjá hana í. „Fyrstu tuttugu
árin sem ég var hér var árangurinn af
vinnunni fremur lítill og flestir héldu
að ég væri stjörnugalinn að standa í
þessu. Fyrir tíu árum snerist dæmið
við og árangurinn fór að koma í ljós.
Mér hefur sem betur fer tekist að
smita afkomendur mína svo rækilega
að þessari þráhyggju minni að þeir
eru eiginlega farnir að taka fram úr
mér í hugarflugi um hvað hægt sé að
gera við húsið.“
Óþrjótandi möguleikar
„Við Eva förum fljótlega að draga
okkur til hlés og unga fólkið tekur
smám saman við og þá kemur í ljós
með framhaldið. Möguleikarnir hér
eru óteljandi og ef ég hugsa til upp-
hafsins þá hefði mér aldrei dottið í
hug allt sem búið er að gera og hvað
hefur verið gert hér.
Hér hefur verið haldinn sirkus,
skákmót, Sigur Rós var með tónleika
og það verða hér þrjú brúðkaup í
sumar. Í dag eru hér fjórar mynd-
listarsýningar og í haust verður tekin
upp stór Hollywood-mynd hér.“
Ási er þögull sem gröfin þegar
hann er spurður um hvaða mynd sé
að ræða en segir að fyrirtækið sem
framleiðir myndina sé búið að leigja
hótelið í haust og að von sé á 200
manns í Djúpavík til að vinna að
myndinni. „Auk þess að leigja hót-
elið er von á skemmtiferðaskipi þar
sem fólkið mun gista meðan á tökum
stendur.“ /VH
Síldarverksmiðjan í Djúpavík:
Búin að vera í þrjátíu og eitt ár
að gera verksmiðjuna upp
Síldarverksmiðjan í Djúpavík. Myndir / VH
Í verksmiðjunni geymir Ási eitt og annað sem hætt er að nota en gæti orðið
að gagni síðar. Lýsistankarnir við síldarverksmiðjuna í Djúpavík.
Ásbjörn Þorgilsson hefur verið í
þrjátíu ár að gera verksmiðjuna upp.
Heimsókn
í Árneshrepp