Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 29

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Oddviti Árneshrepps: Fólksfækkun í hreppnum grafalvarlegt mál – segir Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Árneshrepps Árneshreppur er með fámenn- ustu hreppum landsins og þaðan flytja um tíu manns í haust sem er grafalvarlegt mál. Oddviti hrepps- ins segir hreppinn fjárhagslega vel stæðan og þar leynist ýmis tæki- færi fyrir fólk sem þangað vill flytja. Flest bendir til að kennsla við Finnbogastaðaskóla falli niður í vetur. Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn Þorgilsson hófu hótelrekstur í Djúpavík fyrir þrjátíu og einu ári. Eva hefur lengst af séð um dag- legan rekstur hótelsins en í dag eru börn þeirra og tengdabörn sífellt meira að taka við. Auk þess að vera lausráðin hótelstýra er Eva oddviti Árneshrepps. „Reksturinn fór hægt af stað en hefur aukist ár frá ári og tekið tals- vert stökk síðasta áratuginn. Fólk kemur mest hingað yfir sumar- mánuðina og alls staðar að úr heim- inum en mest er af Þjóðverjum og fólki frá Austurríki og Sviss. Ferðamannatíminn hefur einnig verið að lengjast þannig að hingað kemur fólk fyrr á vorin og lengra fram á haust og svo er alltaf eitthvað um að hingað komi fólk á veturna. Tengdasonur minn tók að mestu við rekstri hótelsins um síðustu áramót en ég geri það sem ég get til að hjálpa til,“ segir Eva. Fólksfækkun í hreppnum Eva var kosinn oddviti Árneshrepps eftir sveitarstjórnarkosningarnar, 2014. Þrátt fyrir að Árneshreppur sé fámennur er ýmislegt sem odd- viti þarf að gera. „Því miður er staðreyndin sú að í haust flytja að minnsta kosti ellefu manns úr hreppnum og fyrir sveitarfélag með rétt rúmlega 50 íbúum er slíkt grafalvarlegt mál. Við sem eftir verðum erum ákveðin í að horfa jákvætt á aðstæður og reyna að vinna úr þeim eftir bestu getu. Sjálf vil ég líta á breytinguna sem sóknarfæri fyrir einhverja sem hingað vilja flytja og vona að svo verði.“ Samkvæmt lögum um íbúafjölda sveitarfélaga ber velferðaráðuneytinu að sameina sveitarfélag sem er með undir fimmtíu íbúum tvö ár í röð við annað sveitarfélag til að halda lág- marks íbúafjölda. Virkjun Hvalár Eva bindur talsverðar vonir við að íbúafjöldinn í hreppnum aukist aftur, að minnsta kosti tímabundið, ef verður af áætlunum um virkjun Hvalár. „Ef hingað koma útlendingar til starfa munu þeir eiga lögheim- ili í hreppunum og borga hér skatta meðan á dvöl þeirra stendur. Hér eru tvær jarðir komnar á sölu og hugsanlega munu fleiri bætast við en ég sé fyrir mér að jarðir sem eru í miðri Trékyllisvík eigi framtíð fyrir sér þótt þar sé ekki stundaður hefðbundinn búskapur. Jarðirnar eru vel í sveit settar og örugglega hægt að reka þar gistiaðstöðu og þjónustu fyrir ferðamenn.“ Styrkur til búfjárkaupa „Við verðum því að vera jákvæð og ég er ekki til í að leggjast í þung- lyndi vegna ástandsins. Þrátt fyrir að það sé bæði leiðinlegt og erfitt að horfa á unga fólkið flytja burt. Hreppurinn veitir ungu fólki, sem hingað flytur til að hefja búskap, styrk sem það getur notað til sauðfjárkaupa. Síðast þegar þessi styrkur var veittur nam hann einni milljón króna en myndi væntan- lega hækka næst eins og allt annað. Sveitarfélagið hefur einnig veitt flutningsstyrk til þeirra sem hing- að flytja.“ Höfnin stækkuð Árneshreppur hefur staðið í stór- framkvæmdum í sumar sem felast í stækkun hafnarinnar og uppgerð íbúðar í gamla kaupfélagshúsinu í Norðurfirði. Eva segir að Árneshreppur eigi fimm íbúðir í dag og nægt húsnæði sé í hreppnum. Eitt barn í skólanum og enginn skólastjóri „Ástandið í skólamálum í hreppn- um er líklega helsta vandamál okkar í dag. Núverandi skólastjóri er að hætta og tvær barnafjölskyldur að flytja burt. Eins og staðan er í dag er eitt barn skráð í skólann næsta haust og við ekki búin að ráða nýjan skólastjóra. Við erum búin að auglýsa eftir nýjum skólastjóra og vonumst að sjálfsögðu til að hingað ráðist fjölskylda með börn á skólaaldri, að öðrum kosti er nokkuð ljóst að skólanum verður lokað. Þótt við glöð vildum er ekki hægt að halda hér úti skóla fyrir eitt barn. Það er einfaldlega ekki hægt að bjóða barninu upp á slíkt. Eflaust væri hér hægt að veita bestu kennslu í heimi en félagslega er óhugsandi að halda úti skóla fyrir eitt barn. Þetta er náttúrlega skelfilegt ástand og það verður mun erfiðara að laða hingað barnafólk ef skólinn er lokaður. Hreppsnefnd stendur því frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort það eigi að loka skólanum eða ekki,“ segir Eva. Ekkert mál að fjölga ferðamönnum Eva er ekki í neinum vafa um að fjölga megi ferðamönnum í Árneshreppi og að það megi koma upp ferðaþjónustu á þeim bæjum sem eru til sölu í Trékyllisvík. „Samfélagið er alltaf að breytast og hugsanlega er sá tími liðinn sem menn hér lifa eingöngu af fjárbú- skap. Ferðaþjónusta er ört vaxandi um allt land og sveitin hér hefur upp á gríðarlega margt að bjóða. Ég sé til dæmis fyrir mér aukið framboð á gistingu á veturna og snjósleða- ferðum henni tengdri.“ Vegurinn oft lokaður á veturna Vegasamgöngur í Árneshrepp eru stopular yfir vetrartímann og oft er vegurinn lokaður frá því um áramót og fram í miðjan mars. Eva efast ekki um að erfiðar samgöngur séu hluti ástæðunnar að fólk er að flytja. „Ungt fólk sættir sig einfaldlega ekki við að árið 2016 sé enn vesen með að komast leiðar sinnar til og frá hreppnum. Ég tel líklegt að framkvæmdir við virkjun Hvalár hefjist fljótlega, eða um leið og verður búið að sam- þykkja að byggja tengivirki til miðl- unar á rafmagninu yfir í Djúp og þegar það verður gert er nauðsynlegt að laga veginn yfir Veiðileysuháls og gera hann vetrarfæran.“ Eva segir að árið 2008 hafi verið settar til hliðar 60 milljónir króna sem átti að nota til að bæta veginn yfir Veiðileysuháls og annað eins átti að setja í veginn 2009. Svo kom hrunið og ekkert varð úr fram- kvæmdunum. Þrátt fyrir að nú sé komið árið 2016 hefur ekkert bólað á þessum peningum enn. „Þrátt fyrir það vil ég hrósa Vegagerðinni fyrir hvað hún hefur sinnt veginum vel það sem af er þessu ári og á því síðasta,“ segir Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Árneshrepps, að lokum. /VH Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra og oddviti Árneshrepps. Myndir /VH Rekstur Hótels Djúpavíkur fór hægt af stað en hefur aukist ár frá ári og tekið talsvert stökk síðasta áratuginn. Björn og Badda á Melum: Verðum hér meðan við getum Hjónin Bjarnheiður Júlía Fossdal og Björn Torfason hófu búskap nítján ára gömul og hafa búið á Melum í rúm fjörutíu ár. Þau segja að búskapurinn gangi vel og að þau uni hag sínum vel í Árneshreppi. Björn og Badda eru með 450 kindur og hefur stærð búsins verið svipuð í nokkur ár. „Fjöldinn hent- ar okkur ágætlega á meðan börn- in okkar koma og hjálpa okkur á álagstímum, um sauðburðinn og í leitir. Ef eitthvað er þurfum við að fækka við okkur eftir því sem aldur- inn færist yfir. Nýi búvörusamningurinn er sauðfjárbændum í Strandasýslu hreinlega fjandsamlegur og líklegur til að setja jarðir í eyði. Við vitum ekki um neinn bónda í Strandasýslu sem er sáttur við samninginn. Afnám beingreiðslna kemur sér mjög illa fyrir okkur. Við eru búin að fjárfesta í auknu greiðslumarki sem gerði ráð fyrir áframhaldandi beingreiðslu en þær verða lagðar niður verði samn- ingurinn samþykktur og þá breytast allar forsendur í rekstrinum. Þannig að við verðum hér áfram á meðan við getum og krossum fingur í von um að samningarnir verið felldir á Alþingi.“ Vetrareinangrun sveitarinnar mikil Bjarnheiður, eða Badda, segir að auðvitað sé kvíði í fólki í sveitinni yfir því að ungt fólk sé að flytja af þremur bæjum og talsverðar líkur á að skólanum verði lokað en við lifum í voninni um að hingað flytji fólk með börn. „Auðvitað eru það margir þættir sem valda því að fólk flytur burt en ég er viss um að einangrun sveit- arinnar hefur þar talsvert að segja. Það er alls ekki allra að búa við eins mikla einangrun og hér getur verið á veturna,“ segir Badda. Björn bætir við að eflaust sé hægt að draga úr einangrun sveitarinn- ar með bættum samgöngum en að tíðarfarið ráði þar mestu yfir vetrar- mánuðina. „Það er vel hægt að halda veginum hingað norður opnum leng- ur ef veturinn er snjóléttur en meira mál ef það snjóar mikið. Reglur um snjómokstur ættu þó að vera mun sveigjanlegri en þær eru enda lifum við á tuttugustu og fyrstu öldinni.“ Fólki fjölgar á sumrin Björn segir að íbúafjöldi í hreppn- um sé árstíðabundinn. „Séu menn ekki bændur eða í þjónustu eru þeir sjaldnast hér allt árið. Fólk er hér yfir sumarið og nytjar þau hlunnindi sem það getur og býr annars staðar á veturna. Hingað koma líka margir bátar, rúmlega tuttugu, sem stunda strand- veiðar á sumrin en sjómennirnir fara heim til sín um helgar og í burtu þegar þeim lýkur. Fiskur er ekki lengur unninn í Norðurfirði og eftir að honum er landað er ekið með hann á markað. Ferðaþjónustan er mest yfir sum- armánuðina, þrátt fyrir að ferða- mannatímabilið sé alltaf að lengjast í báða enda og möguleikar til vetr- arferða hér miklir. “ Íbúar með lögheimili í Árnes- hreppi eru rétt rúmlega 50 en þeim fer fækkandi og segir Badda að fylgi- fiskur fækkunarinnar sé óhjákvæmi- lega sá að erfiðara sé að halda uppi þjónustu, eins og verslun í sveitinni, og segir Björn að það sé verulegt áhyggjuefni. Virkjun Hvalár Badda segir að margir íbúar hrepps- ins byggi vonir við virkjun Hvalár í Ófeigsfirði sem gæti orðið góð inn- spýting í samfélagið. „Ef af virkjun- inni verður kemur hingað fjöldi fólks, að minnsta kosti tímabundið, og það myndi styrkja verslunina og mann- lífið. Til stendur að styrkja veginn héðan frá Melum yfir Eyrarháls og út í Ófeigsfjörð og myndi þá flutn- ingur aðfanga fyrir virkjunina fara um höfnina á Norðurfirði. Okkur skilst að tafir á fram- kvæmdinni stafi af því að ríkis- stjórnin sé ekki búin að gefa grænt ljós á byggingu tengipunkts í Ísafjarðardjúpi sem kæmi til með að flytja rafmagnið og tengja það að landsnetið.“ /VH Bjarnheiður Júlía Fossdal og Björn Torfason bændur hafa búið í fjörutíu ár á Melum á Árneshreppi. Mynd / VH

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.