Bændablaðið - 07.07.2016, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Silfurreynirinn við Grettisgötu:
Ólíklegt að tréð
nái fyrri reisn
Framkvæmdir við byggingu hótels
á lóðunum við Laugaveg 34A og 36
og Grettisgötu 17 er í fullum gangi.
Illa hefur tekist til við verndun eins
elsta trés í Reykjavík sem stendur
á Grettisgötulóðinni.
Króna trésins, sem er ríflega
hundrað ára gamall silfurreynir og
eitt elsta tré landsins, hefur verið illa
skert og verulega illa er staðið að
verki við verndun trésins. Ólíklegt
er að tréð nái aftur fyrri reisn.
Í júní 2014 urðu talsverð mótmæli
í kjölfar þess að borgarráð samþykkti
á fundi 19. desember 2013 breytingar
á skipulagi lóðar við Grettisgötu 17.
Ástæða mótmælanna var að á lóðinni
stendur einn elsti silfurreynir lands-
ins og hann átti að fella.
Samþykkt í borgarráði
Fundur borgarráðs númer 5297
var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Viðstödd voru: Dagur B. Eggertsson,
Einar Örn Benediktsson, Elsa
Hrafnhildur Yeoman, Hjálmar
Sveinsson, Kjartan Magnússon,
Áslaug Friðriksdóttir og Sóley
Tómasdóttir. Eftirtaldir embætt-
ismenn sátu fundinn: Ellý Katrín
Guðmundsdóttir, Birgir Björn
Sigurjónsson, Hrólfur Jónsson,
Hallur Símonarson, Kristbjörg
Stephensen, Björn Axelsson
og Ragnheiður Stefánsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Lagt var fram bréf umhverfis- og
skipulagssviðs, dags. 12. desember
2013, samanber samþykkt umhverf-
is- og skipulagsráðs frá 11. desem-
ber síðastliðnum, um auglýsingu
á breytingu á deiliskipulagi reits
1.172.2, Laugavegur, Frakkastígur,
Grettisgata, Klapparstígur vegna lóð-
anna nr. 34A og 36 við Laugaveg og
Grettisgötu 17. R13120079.
Samþykkt.
Ekkisens en ekkert til ráða
Talsverð umræða spratt um málið og
sagði Sóley Tómasdóttir borgarfull-
trúi um málið á Facebook-síðunni
Ræktaðu garðinn þinn: „Hæ hó –
ég er hér. Ég vissi ekki af þessum
silfurreyni – og þetta er bölvað
ekkisens klúður. Því miður. Ræddi
þetta aðeins við garðyrkjustjórann
okkar og hann sagði okkur hafa fátt
í höndunum til að bjarga honum.“
Sem sagt ekkisens klúður og fátt
til bjargar og ekkert gert.
107 ára tré
Tréð sem til stóð að fella við
Grettisgötu var gróðursett 1908 og
því eitt hundrað og sjö ára gamalt
í dag, eitt af elstu og fyrstu trjánum
sem gróðursett voru hér á landi. Tréð
getur lifað í hundrað ár og jafnvel
hundrað og fimmtíu ár til viðbótar.
Stolt, saga og augnayndi í Reykjavík.
Breyting á skipulagi og
hækkun húsa
Í kjölfar mótmælanna var ákveðið af
byggingaraðila að breyta skipulagi
bygginga á lóðina þannig að tréð
fengi að standa. Reyndar leyfði
skipulags- og borgarráð Reykjavíkur
ýmsar breytingar á byggingarrétti á
lóðinni og lét þannig undan kröf-
um íbúa um „friðun“ trésins. Meðal
annars var hækkun hússins leyfð ef
tréð yrði varðveitt.
Í frétt á Rúv 13. ágúst 2014
segir „Silfurreynir við Grettisgötu
fær að standa samkvæmt ákvörðun
umhverfis- og skipulagsráðs í dag.
Ráðið ákvað að breyta deiliskipulagi
svo tréð fengi að standa.
Íbúar við Grettisgötu höfðu mót-
mælt harðlega deiliskipulagi sem
heimilaði að færa tvö gömul hús
fram í götuna vegna hótelbyggingar
við Laugaveg.
Eigandi húsanna, sá sem stend-
ur að hótelbyggingunni, lagði fram
málamiðlunartillögu sem var sam-
þykkt. Í henni felst að borgin tekur
við gömlu húsunum og finnur þeim
stað í nágrenninu.
Í staðinn verður garður opinn
öllum þar sem silfurreynirinn fær
að standa. Á móti verður hluti
nýbygginganna við Laugaveg hækk-
aður um eina hæð.“
Framkvæmdir í fullum gangi
Framkvæmdir verktaka á lóðinni eru
í fullum gangi og mikið rask eins og
verða vill. Því miður er ekki hægt að
sjá að tekið hafi verið tillit til þess að
„friða“ átti silfurreyninn á lóðinni.
Króna trésins hefur verið illa
skert öðrum megin þannig að
greinabygging þess er skökk og
ólíklegt að jafnvægi í krónu-
byggingu náist aftur. Rótarkerfi
trésins hefur verið skert að hluta
þannig að næringarupptaka þess
hefur minnkað. Á lóðinni umhverfis
tréð er mikið af steypuafgöngum
en efni í þeim eru mjög óæskileg
fyrir gróður.
Með því að skerða krónuna á
þann hátt sem gert hefur verið hefur
þyngdarpunktur trésins verið færður
til og vegna rótarskerðingarinnar er
tréð óstöðugra.
Sagað hefur verið inn í gamlar
greinar með þeim hætti að skóla-
bókardæmi er um hvernig ekki á að
saga á greinar á trjám. Fúi í sárið
er óhjákvæmilegur og getur hann
hæglega smitast inn í stofn trésins
og valdið alvarlegum skaða.
Framkvæmd við „frið-
un“ eins elsta trés landsins er
Reykjavíkurborg til skammar. Illa
afgreitt í borgarráði, ekkisens sem
ekkert er hægt að gera við og ekkert
gert við, verktaka til skammar sem
er með vanþekkingu að vopni og
ekkert eftirlit er af hálfu borgar-
yfirvalda.
Orð, eftirlit og framkvæmd með
„friðun“ eins elsta trés landsins í
miðborg Reykjavíkur er ekkert.
Ólíklegt er að tréð nái aftur fyrri
reisn. /VH
Bretinn Thomas Turner
hóf feril sinn með
framleiðslu reiðhjóla
í Wolverhampton árið
1928. Hann útvíkkaði
framleiðsluna í lok
fimmta áratugar síð-
ustu aldar í bifreiðar,
mótorhjól, vélahluti í
flugvélar og dráttarvél-
ar. Framleiðslu dráttar-
vélanna var hætt 1957.
Eftir lok síðari heimsstyrjaldar-
innar óx landbúnaðarframleiðsla
hratt og vöntun var á tækjum og
búnaði til að auka framleiðsluna
enn frekar. Turner sá tækifæri í
skortinum og hóf fyrirtæki hans
framleiðslu á jarðvinnslutækjum.
Árið 1947 hóf fyrirtækið hönnun
á nýrri tegund dráttarvéla og setti
þá á markað tveimur árum seinna
undir heitinu Yeoman of England.
Margs konar nýjungar
Yeomaninn þótti á ýmsan hátt á
undan sinni samtíð. Þeir voru með
fjögurra strokka,
40 hestafla V-laga
dísilmótor sem var
hannaður af sama
manni og hannaði
mótorinn í Ferguson
TEF20 dráttarvél-
ina. Kveikjan var
rafknúin, beislið
vökvaknúið og
endurbætt útgáfa
traktorsins var með
ljósum. Fjögurra
gíra gírkassinn þótti
byltingarkenndur og var staðsettur
aftan við ekilssætið.
Turner sérhannaði og sérfram-
leiddi margs konar aukabúnað
eins og plóg, herfi og sláttu-
vélar fyrir Yeomaninn auk þess
sem hæglega var hægt að tengja
áhöld frá öðrum framleiðendum
við traktorinn.
Í auglýsingu frá Turner segir að
Yeoman of England-dráttarvélar
séu ódýrari í rekstri og geti unnið
mun meiri vinnu á hektara þar sem
þær séu aflmeiri, tæknivæddari og
sparneytnari en aðrir traktorar af
sambærilegri stærð.
Há bilanatíðni
Vélarnar þóttu dýrar en sala
á þeim ágæt til að byrja með á
Bretlandseyjum og eitt-
hvað mun hafa verið flutt
út af þeim til landa innan
breska samveldisins. Til
langs tíma lét salan undan
og ódýrari Fordson-
dráttarvélar náðu yfir-
burða markaðsstöðu.
Ýmis vandkvæði
við hönnun traktorsins
komu fljótlega í ljós. Til
dæmis var kælibúnaðurinn fyrir
mótorinn of lítill og ofhitnaði
hann því reglulega, heddið þótti
lélegt og vélin var iðulega treg í
gang í köldu veðri. Gírkassinn var
þó helsti Akkilleasarhællinn og
bilanatíðni hans há. Til að bæta
gráu ofan á svart var oft skortur
á varahlutum og stóð Yeomaninn
því vikum saman aðgerðalaus á
hlaðinu, eigendum þeirra til mik-
illar gremju og átti það ekki síst við
kaupendur þeirra erlendis.
Slæmt orðspor
Þrátt fyrir að Yeoman-
traktorinn hafi verið að
mestu endurhannaður
1951 var orðspor fyrirtæk-
isins slæmt og sala nýju
vélanna lítil. Árið 1957
voru síðustu Yeoman-
traktorarnir seldir á
hálfgerðri brunaútsölu á
verulega niðursettu verði.
Einungis voru fram-
leiddir 2.131 Yeoman-
dráttarvélar á þeim tæpa
áratug sem þeir voru í framleiðslu.
Í dag er Turner-fyrirtækið
hluti af Caterpillar og sérhæfir
sig í framleiðslu á gírkössum fyrir
Manitou og New Holland. /VH
Yeoman – nýstárlegur,
dýr en misheppnaður
Króna trésins hefur verið illa skert öðrum megin þannig að greinabygging þess er skökk og ólíklegt að jafnvægi
í krónubyggingu náist aftur. Myndir / VH
Silfurreynirinn sumarið 2014 áður
en framkvæmdir hófust.