Bændablaðið - 07.07.2016, Page 38

Bændablaðið - 07.07.2016, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Utan úr heimi Ný manneldismarkmið í Kína: Gert ráð fyrir helmings sam- drætti í kjötneyslu til 2030 – Mun hafa afgerandi áhrif á stöðu loftslagsmála Í nýjum manneldismarkmið- um sem Kínverjar gáfu nýverið út, er stefnt að nærri helmings samdrætti í kjötneyslu til ársins 2030. Gangi það eftir er ljóst að það muni vega þungt í baráttunni við loftslagsbreytingar, en hlutur Kínverja í allri kjötneyslu jarðar- búa er um 28 prósent og um 14,5 prósent af heildarlosun gróður- húsalofttegunda af mannavöldum má rekja til búfjárhalds. Breski fjölmiðillinn Guardian greinir frá þessum áformum Kínverja og setur í samhengi við loftslags- vandann. Í markmiðum kínverskra stjórnvalda er gert ráð fyrir að kjöt- neysla verði 40–75 grömm á mann á dag að meðaltali, en Kínverjar eru í dag rúmir 1,3 milljarðar. Nái mark- miðin fram að ganga mun samdráttur í losun á gróðurhúsalofttegundum nema sem samsvarar einum milljarði tonna af koltvísýringi. Haldi sama þróun áfram mun losunin hins vegar nema 1,8 milljörðum tonna. Til þess að hvetja samlanda sína til að minnka kjötátið var ráðist í auglýsingaherferð. Leituðu kín- versk stjórnvöld meðal annars á náðir Hollywood-stjarnanna Arnold Schwarzenegger leikara og James Cameron leikstjóra til að koma boð- skapnum á framfæri. Meiri kjötneysla í Kína en í Bandaríkjunum og ESB samanlagt Til marks um þau jákvæðu lofts- lagsáhrif sem verða ef áætlunin nær fram að ganga, má benda á að losun á gróðurhúsalofttegund- um vegna búfjárhalds á heimsvísu er meiri en heildarlosun allra vél- knúinna samgangna í heiminum; allra bíla, flugvéla, lesta og skipa. Kínverjar neyta meira af kjöti en þjóðir Evrópusambandsins og Bandaríkjamenn samanlagt og nái þeir að skera niður kjötneysluna um helming er talið að það muni leiða til 1,5 prósenta samdráttar hnattrænt, á losun gróðurhúsaloftegunda. Kjötneysla Kínverja hefur vaxið mjög á undanförnum árum. Árið 1982 át hver Kínverji að meðaltali 13 kíló af kjöti á ári. Með aukinni velmegun í Kína hefur kjötát aukist mjög og nú hesthúsar hver Kínverji 63 kílóum af kjöti að meðaltali á ári. /smh Borgarbóndinn blómstrar í Osló Fasteignafélagið Bjørvika Utvikling í samvinnu við norsku bændasamtökin, Norges Bondelag, auglýstu í fyrra eftir lífrænum borgarbónda til að sinna búskap í Losætra í Bjørvika sem er á besta stað í miðbæ Oslóar. Andreas Capjon varð fyrir valinu en hann er bóndasonur og þekkir því vel til bústarfa. Nú er verkefnið komið vel af stað og hefur gengið framar vonum að sögn borgarbóndans. „Ég sá þetta auglýst og ákvað að sækja um, mig langar að skapa eitthvað stórkostlegt í gegnum þetta verkefni. Rækta bæinn og að rækta lífrænt er eitthvað sem er hjarta mínu nærri. Mitt verkefni er að gera svæðið grænna, meira lifandi og að stað sem fólk hefur áhuga á að koma til. Hér mun almenningur fá aðstoð við að rækta sinn eigin mat og fá innblástur við það ásamt því að fræðast um hvernig maturinn er búinn til,“ segir Andreas en fjöldi umsækjenda fyrir verkefnið var mun meiri en aðstand- endur verkefnisins þorðu að vona. Ásamt Bjørvika Utvikling og norsku Bændasamtökunum hafa norska vegagerðin (Statens Vegvesen) og matvörurisinn Norgesgruppen stutt verkefnið. Græn vin í miðborginni Svæðið sem um ræðir er um 5 hektarar að stærð og er eingöngu hugsað til lífrænnar ræktunar. Borgarbóndinn vinnur náið með ýmsum aðilum á svæðinu eins og bændum og listamönnum. „Þetta er hin græna vin í miðborginni okkar, á einstökum stað þar sem fólkið í borginni getur lært hvernig matvælaframleiðsla gengur fyrir sig. Hér á fólk sinn skika og fær aðstoð ef þess þarf og ég sé síðan um að rækta gamlar korntegundir, grænmeti og kartöflur,“ segir Andreas sem er nú bóndi í fullu starfi rétt við norska óperuhúsið og í kringum fjölda hótelbygginga, mitt á milli tveggja hraðbrauta. Sjálfur ólst Andreas upp á bóndabæ á Nesodden þar sem lífræn ræktun var alltaf í hávegum höfð. „ Ég hef átt minn eigin grænmetis- garð síðan ég var 12 ára gamall svo þetta er eitthvað sem fylgir manni. Ég þarf að finna að ég sé hluti af matarblóðrásinni minni, ef þú skilur hvað ég á við. Þetta er hluti af minni tengingu við lífið og við rætur mínar, það er að rækta. Ég tel að Norðmenn vilji komast í samband við hvað þeir borða og hringrás árstíðanna miðað við þá athygli sem verkefnið hefur fengið.“ Opna augu fólks Óhætt er að segja að ekki hafi skort á athyglina sem Andreas talaði um því bæði norskir fjölmiðlar og erlendir hafa fjallað ríkulega um norska borg- arbóndann. „Hér á Losætra hef ég mikla möguleika, vegna staðsetningar svæðisins, til að veita öðrum inn- blástur, koma með og njóta þessa með mér. Ég hef einnig unnið að því að koma á samstarfi við fleiri aðila, eins og til dæmis leikskóla og skóla í næsta nágrenni og eins við húsfélög sem hafa stór græn svæði á lóðum sínum eða uppi á þaki. Möguleikarnir eru víða til staðar og þetta snýst því líka svolítið um að opna augu fólks fyrir því hvað er hægt að rækta sjálf- Í Losætra er einnig eins konar skólagarðafyrirkomulag þar sem um 100 manns eiga sinn skika. Í bakgrunni má vel sjá Barcode-verkefnið þar sem nýtískulegir skýjakljúfar hafa sprottið fram í röðum. Myndir / ehg Andreas Capjon var valinn úr hópi fjölda umsækjenda til að verða hinn nýi borgarbóndi nánast í miðbæ Oslóar. Ísland þarf að semja á ný við Bretland um ýmis atriði sem í dag falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Ísland tók formennsku í EFTA um síðustu mánaðamót. Til skamms tíma er ekki talið að úrsögn Breta úr Evrópusambandinu hafi mikil áhrif umfram þau sem kunna að verða vegna viðbragða á mörkuðum í Bretlandi vegna gengis- breytinga. Lágt gengi breska pundsins gæti hugsanlega leitt til fækkunar á komu breskra ferðamanna hingað til lands. Til lengri tíma verður aftur á móti að ganga út frá því að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu muni hafa í för með sér uppsögn Breta á samningnum um Evrópska efna- hagssvæðið (EES). Af því leiðir að Ísland þarf að semja á ný við Bretland um atriði sem í dag falla undir EES- samninginn. Á það við um tolla, fjár- festingar, ferðir fólks milli landanna og flugsamgöngur sem dæmi. Tilkynning ríkisstjórnarinnar vegna úrsagnar Breta Í tilkynningu frá Ríkisstjórn Íslands vegna úrsagnar Breta úr Evrópusam- bandinu segir að Bretland sé eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands og grundvallast samskiptin á EES-samn- ingnum. Í ljósi þess ákvað ríkisstjórnin að utanríkisráðherra tæki málið upp á ráðherrafundi EFTA. Samhliða því mun utanríkisráðuneytið kanna mögu- leikann á gerð tvíhliða efnahags- og viðskiptasamnings milli Íslands og Bretlands. Einnig er verið að skoða hvernig hagsmunir Íslands verði best tryggðir í framhaldi af útgöngusamningi sem Bretland og Evrópusambandið munu væntanlega gera. Skipaður hefur verið starfshópur ráðuneytisstjóra forsætis- ráðuneytis, utanríkisráðuneytis, fjár- mála- og efnahagsráðuneytis, atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytis og velferðarráðuneytis til að samræma viðbrögð og aðgerðir. Ísland með formennsku í EFTA Um síðustu mánaðamót tók Ísland við formennsku í EFTA og í tilkynningu vegna þess segir að lögð verði áhersla á að fylgjast náið með viðræðum vegna útgöngu Breta úr ESB með það að markmiði að tryggja viðskiptahags- muni EES og EFTA-ríkjanna. /VH Ísland og úrsögn Breta úr Evrópusambandinu: Semja þarf um viðamikil mál Bretland er eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands og grundval- last samskiptin á EES-samningnum.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.