Bændablaðið - 07.07.2016, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Hernaðinum gegn
Eldhrauni verður að linna
Á síðastliðinni hálfri öld hafa
landeigendur og bændur í
Landbroti staðið fyrir umfangs-
miklum áveitu framkvæmdum úr
Skaftá út á Eldhraun á Út-síðu í
Skaftárhreppi. Tilgangur fram-
kvæmdanna hefur verið að
freista þess að auka og tryggja
vatnrennsli í lækjum, sem koma
undan hrauninu og hafa státað
af mikilli fiskgengd. Afleiðingar
þessara veitinga jökulvatns út á
hraunið eru að þúsundir hektarar
af fágætum gamburmosabreiðum,
sem að hluta til eru á náttúruminja-
skrá, hafa farið undir sand og leir
og leitt til sandfoks yfir nærliggj-
andi byggðir.
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
fór hótelbóndinn í Efri Vík í Landbroti
mikinn og krafðist þess að stjórnvöld
myndu veita vatni út á Eldhraun
ella myndi hann grípa sjálfur til
vatnaveitinga. Vonandi kemur ekki til
þess, hafandi í huga hið fornkveðna;
„Með lögum skal land byggja – en
ólögum eyða.“ Það kom hvergi
fram í viðtölum Bændablaðsins um
þessi mál að vatnaveitingarnar hafa
leitt til mikilla náttúruspjalla og
gróðureyðingar á liðnum áratugum.
Talið er að í byrjun síðustu aldar hafi
Eldhraunið verið að mestu þakið
gamburmosabreiðum sem munu vera
þær stærstu í heiminum. Landgræðsla
ríkisins hefur ályktað að sandur og
jökul leir úr Skaftá hafi borist yfir og
eytt gamburmosabreiðum í Eldhrauni
á allt að 3.000 hektara svæði og er
gróðureyðingin þar talin ein sú örasta í
byggð hér á landi í dag og má hana að
einhverju leyti rekja til vatnaveitinga
landeigenda og bænda í Landbroti.
Vatnsþurrð í Grenlæk og fleiri
lækjum undan Eldhrauni
Því fer fjarri að ekki hafi verið
vatnsþurrð í Grenlæk fyrr en nú.
Ýmsar heimildir eru fyrir því að slíkt
hafi öðru hvoru átt sér stað, a.m.k.
frá byrjun síðustu aldar. Ljóst er að
vatnsþurrð í lækjum í Landbroti,
Tungulæk, Grenlæk o.fl. lækjum, var
algeng á síðustu öld. Samt sem áður
hafa bændur ótrauðir byggt rafstöðvar
við þessa læki, fiskeldisstöðvar og
glæsileg veiðihús. Þeir treystu á það
áður fyrr að þeir gætu að vild vaðið
inn á annarra manna eignarlönd
og sótt sér vatn með ólögmætum
vatnaveitingum. Þannig voru lönd
annarra sett undir sand og leir. Nú
treysta þeir á að þeir geti eins og
oft áður beitt stjórnvöld pólitískum
þrýstingi til að grípa til örþrifaráða,
án tillits til þeirra náttúruspjalla sem
slíkt hefði í för með sér.
Fyrri vatnaveitingar í Árkvíslar
Með tilkomu stórvirkra vinnuvéla um
miðja síðustu öld, hófust vatnaveitingar
til að verja samgöngumannvirki og til
að freista þess að auka vatnsrennsli í
lækjum sem koma undan austurjaðri
Eldhrauns í Landbroti og suðurjaðri
þess í Meðallandi. Loftmyndir frá
síðustu öld sýna að náttúrulegt
rennsli í Árkvíslum og Bresti er miklu
minna en það rennsli sem rörin þrjú
í garðinum í Árkvíslum, sunnan við
tóftir eyðibýlisins Ár, geta flutt í dag.
Leiða má að því líkum að bændur í
Landbroti hafi byrjað á áttunda
áratugnum að auka rennslið úr Skaftá
í Árkvíslarnar og í Brest og vitað að
þeir létu vinna að vatnaveitingum á
þeim slóðum um 1980. Enn fremur
eru ummerki víða um Eldhraunið,
austan við Brest, um margháttaðar
vatnaveitingar í hrauninu, þótt sum
þeirra séu nú sandi orpin. Vorið 1998
var enn mikil vatnsþurrð í lækjum
undan Eldhrauni eins og öðrum
vatnsföllum á Suðurlandi. Upphófst
þá mikill darraðardans bænda í
Landbroti, sem leiddi til pólitískra
inngripa sem fólust í að garður með
rörum, sem Vegagerð ríkisins hafði
látið gera við útfall Skaftár í Árkvíslar
til að tempra vatnsrennslið miðað við
það sem verið hafði, var fjarlægður.
Síðan var sá varnargarður endurgerður
árið 2000 og var sveitarstjórn
framkvæmdaaðili verksins samkvæmt
leyfi stjórnvalda til fjögurra ára. Síðan
hafa staðið deilur um það vatnsrennsli
og standa enn. Þær verða ekki raktar
hér þar sem Veiðifélag Grenlækjar o.fl.
hafa stefnt sveitarstjórn Skaftárhrepps
og íslenska ríkinu fyrir að hafa tekið
vatn af bændum með aðgerðum í
Árkvíslum og við Brest. Aðgerðir
Vegagerðarinnar á svæðinu hafa hins
vegar fyrst og fremst beinst að því að
halda vatninu sem kemur í Árkvíslar
og Brest inn á hrauninu með gerð 7
km langra varnargarða, í stað þess að
renna vestur í Eldvatnið. Þær aðgerðir
hafa hjálpað bændum í Botnum og að
mati Grenlækjarmanna einnig aukið
vatnsrennsli lækja í Landbroti.
Vatnaveitingar í Skálarál
Vitað er að landeigendur og bændur
í Landbroti hafa alveg frá því á
sjöunda áratug sl. aldar staðið
fyrir vatnaveitingum í Skálarál. Á
loftmyndum frá 1945 nær Skálaráll
aðeins dálítið austur fyrir heimreiðina
að bænum Skál. Upp úr 1960 var
fengin jarðýta til þess að ryðja farveg
áfram austur í gegnum svokallaðar
Dyngjur. Nokkrum árum seinna létu
þeir vinna við vatnaveitingar vestar
í Eldhrauni þ.e. hjá Skálarstapa til
þess að veita Stapaál suður á hraunið
í stað þess að renna aftur í Skaftá.
Þetta jók rennslið í Skálarál og þegar
hann náði austur fyrir Dyngjurnar
rann hann aftur út í Skaftá á móts
við Krókatorfu. Þá lét landeigandi
Tungulækjar byggja varnargarð í
sveig til að stöðva það rennsli og
veita vatninu suður á bóginn í áttina til
Tungulækjar og Grenlækjar. Sá garður
var síðar iðulega styrktur, hækkaður
og lengdur en er nú að hluta til kominn
undir sand. Þessar vatnaveitingar
urðu til þess að Hringvegurinn þar
suður af lokaðist í Skaftárhlaupi í
ágúst 1997 og Vegagerðin neyddist
til þess að hækka veginn á alllöngum
kafla. Allar þessar vatnaveitingar í
Skálarál eru ólögmætar að mati
Orkustofnunar og hafa valdið
gríðarlegum náttúruspjöllum á
gamburmosabreiðunum sem eru
á náttúruminjaskrá. Öll þessi
eyðilegging er og í eignarlöndum
annarra en Landbrotsbænda.
Áhrif vatnaveitinga á gróður í
Eldhrauni og sandfok
Hafa verður í huga þá þýðingarmiklu
staðreynd að þegar jökulvatn hefur
runnið lengi í sömu áveitufarvegum
eins og í Bresti og í Skálarál þá er
botninn orðinn svo þéttur að mjög
lítið vatn sígur niður í grunnvatnið.
Verði áveitan í Árkvíslar látin halda
áfram í sama mæli og undanfarin ár,
það er miklu meira vatnsrennsli en hið
náttúrulega vatnsrennsli var t.d. fyrir
1980, mun áveituvatnið innan fárra
ára taka að renna í náttúruperluna
Fljótsbotn og síðan í Hólma sem
einnig er fágæt náttúrperla ferskvatns
hjá bænum Botnum í Meðallandi.
Áveituvatnið í Bresti mun þá einnig
renna á næstu áratugum austar í
Eldhrauninu og niður í byggðina í
Meðallandi. Sandfokið í Eldhrauni
heldur áfram að aukast og ógna
umferðaröryggi á Hringveginum og
gróðureyðingin eykst enn meir.
Áframhaldandi vatnaveitingar
í Skálarál munu leiða til þess að
sandsvæðin ná niður að Hringveginum,
með tilheyrandi sandfoki og óöryggi
fyrir umferð. Hringvegurinn mun
lokast í næstu Skaftárhlaupum
sökum vatnsaga. Jökulvatn hefur
nú þegar litað Tungulæk í síðustu
Skaftárhlaupum og hann og Grenlækur
munu þá á næstu árum og áratugum
verða jökullækir, lífríkið hrynur þar
með, sem og fiskgengd. Hvers eiga
komandi kynslóðir að gjalda?
Hvað er til ráða?
Það eru fá svæði á Íslandi þar sem
vatnafar hefur verið rannsakað jafn
ítarlega og í Eldhrauni. Landsvirkjun,
Vatnamælingar Orkustofnunar,
Vegagerðin, Landgræðsla ríkisins,
Veðurstofa Íslands, Veiðimálastofnun,
Suðurorka, Skaftárhreppur o.fl. hafa
samtals kostað hundruð milljóna
króna til rannsókna á svæðinu. Alls
engar vísindalegar rannsóknir hafa
nokkru sinni sannað með óyggjandi
hætti að aukið vatnsrennsli úr Skaftá
í Árkvíslar og Brest hafi nokkur áhrif
á vatnsmagn Grenlækjar í Landbroti.
Vatnamælingar Orkustofnunar og
Veðurstofu Íslands hafa þó leitt að
því líkum að aukið vatnsrennsli út
í Árkvíslar og Brest hækki vatns-
borðið í grunnvatnsgeyminum í
Eldhrauni og í rigningartíð og í
Skaftárhlaupum flæði úr geyminum
í lækina í Landbroti og Meðallandi.
Vatnaveitingar í Skálarál hafi hins
vegar beinni tengsl við Tungulæk og
Grenlæk.
Brýnasta verkefnið vegna stöðvun-
ar sandfoks og gróðureyðingar út frá
Skaftá er að ná samkomulagi við hlut-
aðeigandi aðila um að hætta alfarið að
veita jökulvatni út á Eldhraunið og
hefja þar landgræðslu með melgresi
og áburðargjöf. Fátt virðist hins vegar
vera því til fyrirstöðu að auka vetr-
arrennsli út á hraunið, þegar vatnið
er tærara.
Það er alveg ljóst að vatnaveitingar
bænda og landeigenda í Landbroti á
jökulvatni út á Eldhraunið hafa valdið
gríðarlegum og óafturkræfum nátt-
úru- og gróðurspjöllum. Þær hafa enn-
fremur auðveldað Skaftárhlaupum að
flæmast miklu víðar um Eldhrunið en
ella. Ljóst er að vatnsþurrðin í lækjum
undan Eldhrauni veldur bændum og
landeigendum í Landbroti miklum erf-
iðleikum. Það er hins vegar algjörlega
óásættanlegt að freista þess að leysa
einn umhverfisvanda með því að auka
á annan. Þá munu umhverfisspjöll
vera unnin með vissu. Mál er að linni.
/Sveinn Runólfsson
Lesendabás
Áveituframkvæmdir hafa leitt til þess að Skaftárhlaupin fara lengra út á
Eldhraunið sem var áður klætt gamburmosa. Mynd / Þórir N Kjartansson
Skaftárhreppur
til framtíðar
Ein af aðgerðum byggða áætlunar
2014–2017 er byggðafestuverk-
efnið Brothættar byggðir. Um
er að ræða sértækt verkefni
Byggðastofnunar til að aðstoða
byggðarlög sem standa höllum
fæti. Aðgerðin fellur undir eitt
af lykilsviðum byggðaáætlunar
er snýr að sértækum aðgerðum á
varnarsvæðum.
Ríki, sveitarfélag, stoðkerfi
og íbúar taka höndum saman um
eflingu byggðarlagsins. Ekki er
meiningin að búa til nýtt lag ofan á
stoðkerfið, heldur vettvang þar sem
leiddir eru saman kraftar og mynduð
eins konar „sérsveit“. Sérstaða
verk efnisins er fólgin í virkri
þátttöku íbúa og víðtæku samstarfi
stjórnkerfis og stoðstofnana við
viðkomandi samfélag.
Skaftárhreppur er eitt af þeim
byggðarlögum sem hafa verið
samþykkt inn í Brothættar byggðir.
Verkefnið sem hlaut nafnið
Skaftárhreppur til framtíðar er
komið vel á veg en ýmis ljón eru í
veginum. Sum skrítin þegar haft er
í huga að um hluta af byggðaáætlun
er að ræða þar sem skírskotað er til
víðtæks samstarfs stjórnkerfis og
stoðstofnana.
Við höfum kynnt verkefnið
skriflega fyrir stofnunum ríkisins og
átt fund með nokkrum þeirra. Því er
það óþægilegt þegar sveitarfélagið
og íbúar þess lenda í klemmu
stofnana og stjórnsýslu. Sérstaklega
þegar tilgangurinn virðist vera sá
einn að tefja og útkoman leiðir
hæglega að því að byggð veikist.
Lesendur Bændablaðsins muna
sjálfsagt margir eftir fréttum um
vatnaveitingar í Skaftárhreppi.
Fréttum af vatnsþurrð í Meðallandi
og Landbroti þó nægt vatn sé í
Skaftá. Fréttum af heimarafstöðvum
sem þagna og veiðiám sem þorna.
Fyrir þann sem situr hjá og reynir
að skilja hvað er að gerast og setur
málið í samhengi við verkefnið
Brothættar byggðir er erfitt að sjá
annað en togstreitu milli stofnana
ríkisins. Togstreita sem leiðir af sér
að réttur fólks til vatns er fótum
troðinn.
Þetta er ekki eina mynd þess að
stjórnkerfi og stoðstofnanir horfa
framhjá verkefninu og fara svo
stíft eftir regluverki að einna helst
er að sjá að eitt helsta markmiðið
sé að byggð leggist sem fyrst af.
Vegagerðin er með eindæmum
fylgin sér, tekur vegi af vegaskrá um
leið og enginn er með lögheimili á
býli. Engar fregnir hafa borist um að
mótmæli sveitarstjórnar hafi verið
tekin til greina. Á þeim svæðum
þar sem jarðir eru í einkaeigu hafa
eigendur stundum fengið einstak-
linga ,,að láni,, það er að segja fólk
hefur verið tilbúið að skrá sig með
lögheimili þó um eiginlega búsetu
sé ekki að ræða. Ef ríkið á jörð þá
er það óframkvæmanlegt. Það er
erfitt að sjá fyrir sér að stofnunin
Ríkiseignir hvetji þann sem hættir
ábúð til að skrá áfram lögheimili á
jörðinni til að stofnunin Vegagerðin
felli ekki vegi af vegaskrá. Það er
þrautin þyngri að koma vegum aftur
á vegaskrá. Vegagerðin tekur sér það
vald að efast um að fólk ætli sér í
raun að eiga lögheimili á jörðum og
ef því er haldið til streitu þá er boðið
að fólk taki þátt í að endurbyggja
veg sem hefur skemmst á meðan
hann var utan skrár.
Tilhugsunin um hvernig veg-
hald verður til framtíðar í dreifðum
byggðum landsins er ógnvekjandi,
það er ef ekki verður tekið á þessu.
Í Skaftárhreppi eru margar jarð-
ir í eigu ríkisins. Of margar eru
ósetnar. Þær sem heimild er til að
selja eru ekki auglýstar. Sjálfsagt
eru skýringar á því. Ein gæti verið
að stefnu um jarðir í eigu ríkisins
vantar. Skaftárhreppur hefur boðið
fram krafta og þekkingu. Við vilj-
um koma að mótun stefnu um rík-
isjarðir, í Skaftárhreppi. Við viljum
vera gerendur, taka ábyrgð og móta
framtíð. Viðbrögð eru lítil. Á meðan
leggjast girðingar niður, tún fara úr
rækt og hús grotna.
Margt af þessu á ekki einungis
við um Skaftárhrepp, flest á við um
byggðarlög hvort sem þau eru innan
eða utan verkefnisins Brothættar
byggðir.
Leiðir til úrbóta væri samtal
stofnana og íbúa. Í stað þess að
stofnanir tilkynni ákvarðanir þá
verði samráð, kynnt að hverju er
stefnt um leið og spurt er hverjar
þarfir íbúa og fyrirtækja eru.
Með kveðju úr Skaftárhreppi,
Eirný Vals, verkefnastjóri,
Skaftárhreppur til framtíðar
Eirný Vals.
Tölvupóstur: info@europartar.is · Sími: 777 5800
www.europartar.is
Vélar, skiptingar og
gírkassar í miklu úrvali
Sendu okkur fyrirspurn á europartar.is
og við finnum varahlutinn sem þig vantar
á hagstæðum kjörum
Sendum hágæða varahluti frá
Þýskalandi, Svíþjóð og Póllandi
Minni varahlutir afhentir á 3-7 dögum
Stærri varahlutir afhentir á 7-14 dögum
Varahlutir koma fljótt og örugglega til
landsins með DHL hraðþjónustu