Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 44

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Tónlistarhátíðin „Englar og menn“ hófst í Strandarkirkju á sunnu- daginn var en alla sunnudaga í júlí mun söngurinn óma um kirkjuna. Hátíðin er nú haldin í fjórða sinn og munu þekktir listamenn koma fram. Þema hátíðarinnar er englar og menn, land, náttúra, trú og saga, þar sem íslensk þjóðlög og sönglög, ásamt innlendum og erlendum trúarljóðum og klassískum verkum, verða í forgrunni. „Verndarvængur“ er yfirskrift tón- leikanna 10. júlí en þar koma fram Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona og Einar Clausen tenór og með þeim leika Chrissie Guðmundsdóttir á fiðlu, Ingunn Erla Kristjánsdóttir á selló og Hilmar Örn Agnarsson á orgel. Þann 17. júlí koma fram söngvararnir Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópran og Ásgeir Páll Ágústsson baritón og með- leikari þeirra verður Arnhildur Valgarðsdóttir organisti. ,,Í ljúfum blæ“ er svo yfirskrift tónleika hjónanna Þóru Einarsdóttur sópran og Björns Jónsonar tenórs sem haldnir verða 24. júlí og með þeim leikur Svanur Vilbergsson á gítar. Lokatónleikar hátíðarinnar verða 31. júlí en þar koma fram Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran og Ágúst Ólaffsson baritón og með þeim leikur Jón Bjarnason á orgel. Tónleikarnir hefjast allir kl. 14 og eru um 50 mínútna langir. Björg Þórhallsdóttir sópran- söngkona er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem er styrkt af Nýsköpunarsjóði Suðurlands, Tónlistarsjóði og Strandarkirkjunefnd. Aðgangseyrir að tónleikunum er 2.000 kr. Ekki er tekið við greiðslukortum. Að tónleik- um loknum er svo upplagt að fá sér hressingu hjá heimamönnum í kaffi- húsinu T-bæ eða í Pylsuvagninum. Strandarkirkja er þekkt áheita- kirkja og þykir þar vera sérstakur kraftur til hjálpar og bænheyrslu. Yfirskrift hátíðarinnar vísar til helgi- sagnarinnar um fyrstu kirkjuna þar, um ljósengilinn sem birtist sæför- um í sjávarháska og þeir hétu á í örvæntingu sinni. Hann vísaði þeim að landi og þeir reistu þar kirkju í þakklætisskyni Tónlistarhátíð í Strandarkirkju: „Englar og menn“ Strandarkirkja. Mynd /Helgi Kristjánsson Björg Þórhallsdóttir sópran söngkona syngur í Strandarkirkju 10. júlí nk. Saga íslenska fjárhundakynsins er sveipuð ævintýraljóma. Á árun- um 1937 og 1938 ferðaðist breski aðalsmaðurinn Mark Watson um Ísland. Á ferðalaginu sá hann íslenska fjárhunda og heillaðist af kyninu. Rúmlega áratug síðar, þegar Mark Watson kom aftur til landsins, uppgötvaði hann að íslensku hundarnir voru sjald- séðir. Þann 18. júlí verða 110 ár liðin frá fæðingu Íslandsvinarins Mark Watson. Til að heiðra minn- ingu hans verður haldið málþing í Þjóðminjasafni Íslands og Dagur íslenska fjárhundsins verður haldinn í fyrsta sinn. Íslandsvinurinn Mark Watson gaf fé til að endurreisa Glaumbæ í Skagafirði, hann gaf Íslendingum myndir Collingwoods og dýraspít- lala svo dæmi sé tekið af öllu því sem hann gerði fyrir land og þjóð. Og það var þessi maður sem ákvað að íslenska hundakyninu yrði að bjarga. Á árunum 1955–1960 lét hann safna saman nokkrum íslensk- um hundum í þeim tilgangi að flytja þá úr landi. Meðal annarra sem komu við sögu var Páll A. Pálsson, fv. yfirdýralæknir, og þeir bændur sem létu hundana sína af hendi til hreinræktunar svo kyninu yrði forð- að frá útrýmingu. Ekki fóru þó allir hundar af landi brott sem safnað var saman á Keldum. Tvær tíkur urðu eftir og eignuðust mörg afkvæmi og teljast formæður flestra þeirra hunda sem við þekkjum í dag. Síðar tóku nokkr- ir aðilar sig saman síðar um að varð- veita og hreinrækta íslenska fjár- hundinn. Skipulögð ræktun á kyninu hófst um 1965 þegar þau hjónin á Ólafsvöllum á Skeiðum, Sigríður Pétursdóttur og Kjartan Georgsson, fengu íslenska hunda til ræktunar að áeggjan Páls A. Pálssonar yfir- dýralæknis. Hundaræktarfélag Íslands stofnað á Hótel Sögu árið 1969 Sigríður var í forystu áhugamanna sem stofnuðu Hundaræktarfélag Íslands árið 1969. Mark Watson sem hvatti til stofnunar félagsins var gerður heiðursstofnfélagi á fundinum sem haldinn var á Hótel Sögu. Gunnlaugur Skúlason dýra- læknir var fyrsti formaður félags- ins. Á fyrstu árunum var starfsemi félagsins eingöngu tengd málefnum íslenska fjárhundsins. Deild íslenska fjárhundsins (DÍF) var stofnuð innan HRFÍ árið 1979. Deildin ber ábyrgð á útliti og heil- brigði hundsins ásamt ræktunar- markmiði tegundarinnar og á að vera í forystu með allt það sem tengist íslenska fjárhundakyninu. Guðrún R. Guðjohnsen var fyrsti formað- ur deildarinnar og síðar formaður HRFÍ í mörg ár. Guðrún hefur lagt mikið af mörkum við að viðhalda stofninum og fékk meðal annars sérstaka undanþágu frá lögum árið 1988 til að flytja inn íslenska fjár- hunda frá Danmörku til ræktunar. Árið 1996 var Guðrún R. Guðjohnsen aðalhvatamaður að stofnun ISIC sem er alþjóðlegt sam- starf um verndun íslenska hunda- kynsins. Lifandi táknmynd þeirra hunda sem komu með landnámsmönnum Íslenski fjárhundurinn telst ekki leng- ur í útrýmingarhættu. En Íslendingar þurfa að vera á varðbergi og standa undir því hlutverki að bera ábyrgð á ræktun kynsins og heilbrigði. Íslenskir fjárhundar eru lifandi tákn- mynd þeirra hunda sem landnáms- menn fluttu með sér til landsins. Hefði Mark Watson ekki gripið til aðgerða á svo áhrifaríkan hátt sem hann gerði er alls óvíst að við ættum íslenska fjárhundakynið. Hefði þessi breski Íslandsvinur ekki heillast af kyn- inu á sínum tíma ættum við líklega einungis myndir af íslenska hundinum og segðum sögur af hundinum sem við Íslendingar áttum öldum saman, hundinum sem lifði hér með forfeðr- um okkar, en við höfðum ekki vit á að varðveita á tuttugustu öldinni. 18. júlí verður Dagur íslenska fjárhundsins Til að heiðra minningu Mark Watson hefur Deild íslenska fjárhundsins ákveðið að halda Dag íslenska fjár- hundsins á fæðingardegi hans, 18. júlí. Dagurinn verður framvegis notaður til þess að vekja athygli á eina þjóðarhundi okkar Íslendinga, tilvist hans og sögu. Þann 18. júlí ár hvert munu vinir íslenska fjár- hundsins fagna deginum og minnast þeirra og heiðra sem með ótrúleg- um dugnaði og árræðni björguðu íslenska fjárhundakyninu frá því að verða aldauða. Þórhildur Bjartmarz, fv. formaður HRF Dagur íslenska fjárhundsins – Málþing haldið til að heiðra minningu Mark Watson sem barðist fyrir verndun íslenska hundsins Mark Watson. Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær Hver vill skipta um vinnu tilhögun og vinna sjálfstætt? Hver vill verða eigin herra í góðu umhverfi úti á landi 100 km frá 101 Reykjavík? Hver vill kaupa 45 m2 löglega íbúð, bjarta vistlega á 1,4 hekt- ara leigulóð með miklum byggingarrétti? Hver vill kaupa 105 m2 atvinnuhúsnæði í sérstaklega vönd- uðu húsi á hitaveitusvæði, bjart og vistlegt? Að auki er gott 40 m2 gróðurhús úr gleri og stáli. Hver vill kaupa nettan atvinnurekstur (tarnavinna) með lager til 5–7 ára sem gefur vel af sér og er í fullum gangi? Góð aukavinna. Fagleg ráðgjöf getur fylgt í 1–2 ár. Öll þjónusta í nálægu þéttbýli. Næg atvinna í næsta nágrenni. Sama hvað þú kannt með haus og eða höndum, það eru not fyrir allt, sérstaklega iðnaðarmenn. Hugsaðu djúpt en ekki of lengi. Brunabótamat eigna er samtals 45.267.000 (3/10/2015). Þegar þú ert búin/n að hugsa mátt þú hringja í síma 860-5570 og biðja um vettvangskönnun og spjall. Mér liggur ekkert á en það gæti gilt annað um þig. Hika er sama og tapa. Málverkasýning Grétu Berg: Leyndardómar steinsins Myndlistarkonan Gréta Berg opnar sýningu í gallerí Papacross í Vestmannaeyjum 14. júlí næst- komandi sem stendur til 27. júlí. Gréta verður við á sýningunni alla opnunardagana frá klukkan 14.00 til 18.00 en opnunartíminn verður eitthvað lengdur fram á kvöldið um helgar í góðu veðri. Gréta stundaði nám í myndlist við Myndlistaskólann í Reykjavík og á Akureyri og Handíða- og Myndlistarskólann í Reykjavík. Hún á 46 ára sýningarferli að baki og hefur verið með sýningar á Akureyri, Ísafirði, Reykjavík, Mosfellsbæ, Selfossi, Hveragerði og nú í Vestmannaeyjum. Upplýsingar á: www.umm.is. Gréta starfar sem hjúkrunar- fræðingur við Heilsustofnunina í Hveragerði og er leiðbeinandi í frjálsu flæði lita og tjáningu tilf- inninga, hug- og dáleiðslu. Í kynningu vegna sýningarinnar segir að Grétu finnist dans, litir, flæði, að teikna og mála það besta í lífinu. Henni finnst gott að hlusta á lækjarniðinn og njóta lífsins. Hún segir það sannarlega töfrandi að sjá myndir í steinum og flytja þær yfir á strigann og uppgötva síðan að í steinunum er að finna merkileg skilaboð til okkar frá þeim. /VH Gréta Berg myndlistarmaður. Þórhildur Bjartmarz með hundinn Arnarstaða Þór Þrumugný.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.