Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 47

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Það er hægt að minnka líkurnar á bruna í dráttarvélum og heyvinnutækjum með ýmsum ráðum: Upp með koppafeitissprautuna! Fyrir nokkru sagði Sveinbjörn bóndi á Heiðarbæ 2 í Þing- vallasveit mér frá kynnum sínum af koppa feitissprautu sem hann hafði nýlega keypt hjá Orku. Sagði hann þessa sprautu mun auðveldari í notkun en þær hefð- bundnu sem flestir þekkja. Ég fór í heimsókn í Orku og hitti Jón Arnar sölumann sem sýndi mér sprautuna sem þeir í Orku kalla „batteríis smurbyssu“. Kunnugleg vandamál smurmeistarans Jón Arnar sagði mér að þeir við- skiptavinir Orku sem hefðu keypt svona sprautu væru mjög ánægðir með hana. Þeim líkaði vel að geta verið með aðra höndina á gikknum og haldið í endann sem fer upp á koppinn með hinni hendinni. Oft vill stúturinn skreppa af koppnum þegar dælt er og þarf þá annaðhvort auka- mann til verksins eða að beita öðrum brögðum til að dæla smurfeitinni í koppana. Þótt verðið sé nálægt 60.000 kr. þá er svona verkfæri fljótt að borga sig miðað við tíma sem getur farið í að skipta um legur ef þær eyðileggjast vegna smurleysis. Auðvelt að skipta um koppa ef illa gengur að smyrja Fyrir nokkrum árum vann ég á jarðýtu í nokkra daga fyrir kunningja minn. Áður en ég byrjaði að vinna á henni sýndi eigandinn mér hvar koppaf- eitissprautan væri geymd í vélinni og einnig lítið box fullt af nýjum smurkoppum ásamt litlum skipti- lykli. Leiðbeiningar til mín voru að smyrja í koppa í hvert skipti þegar ég tæki olíu á vélina og ekki hika við að skipta um kopp ef treglega gengi að koma koppafeiti inn í koppana. Svona koppabox fást víða og kosta ekki mikið, og sem dæmi þá er Fossberg með þrjár mismunandi stærðir af koppaboxum sem kosta ekki mikið. Smurviðhald tækja er besta fjárfesting tækjaeigandans Á hverju ári koma fréttir af dráttar- véla- og tækjabrunum. Samkvæmt rannsóknum sem dráttarvélaframleið- andinn John Deere gerði í USA þá er 75% tilfella þar sem dráttarvélar brunnu orsökin að eldur byrjaði og náði að magnast upp vegna óhreininda (þurrt gras, lauf og olíulekaóhrein- indi). Hins vegar kom fyrsti neistinn sem læsti sig í óhreinindin frá legum sem voru þurrar, brotnar og ofhitnuðu. Við nánari lestur á þessari rannsókn, sem vitnað er til, þá hafði gleymst að smyrja í legur (koppa), koppar stífl- aðir og tóku ekki smurningu. Svona afsakanir á enginn að láta frá sér, það þarf að smyrja reglulega í alla koppa og ef koppur er stíflaður er í 99% til- fella mjög auðvelt að skipta honum út. liklegur@internet.is ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði DANS SNÚA HEYI NYTSEMI HALLANDI MÁLMUR ÓSLÉTTUR SÖNGLA SFÓTA-BÚNAÐUR T R I G A S K Ó R KSÖGULJÓÐ V I Ð A RÚMHANGA K O J A RBEIN I F G L Á P A U S J Ó N A KRAFTURÓRÓLEG A F L HÓFDÝR AFSPURN LISTA- MAÐUR U M T A L OFRA TVEIR EINS F Ó R N A SPRIKLSKEINA ÁANDLITSÆLA GÓNA ALDIN S A K N A SKAR ÁHRIFA- VALD FÍFLAST Í T A K RAKI NÖLDRA SRÍÐNIHARMA Ö S K U FJÖTURMATJURT H A F T HLEYPAÞÖGN Y S T ASÓT N N KROPPASETTU N A R T A GÁTAÍHUGA Þ R A U TÓNEFNDUR G I L EYÐANARSL S Ó A URMULLBIRGJA M E R G Ð TRÍTLASKARÐ S TRÉGLOPPU Ö S P VAN-ÞÓKNUN S V E I HOLATÚN G A T V E G N A AÐEFNI T I L Í RÖÐ H I ÞRÁ IFARNAST E Y Ð A S T BÁSÍ RÖÐ S T Í A HRÓPSVELL Ó PRÝRNA I T Ð U U FRJÁLSA R L NABBI A A U R S T A A VEIÐA FANGI F G I Í S S K L A INNYFLI Í RÖÐ 40 FRÍ HANGSA MJÖG SARG DUNDA YFIRRÁÐ GLÓÐA SÓL- HRINGUR FUGL UPPHEFÐ KVEÐJA KJAFI FUM SKRÁNING ÞARMAR TVEIR EINS HÆRRA ÞANGAÐ TIL KRINGUM LOKKA SAMTÖKSKÓLA-MEISTARI ILLFÆR HAND- LAGINN FROÐA LEYFI FLÓN RYSKINGAR KULNA FISKA TVEIR EINSGEIGUR FYRSTUR BRJÁL ÍLÁT ÁTT SAGA FERÐ BAUKA SÆTI FRÁ- DRÁTTUR GJALD- MIÐILL FESTING VESKI JAPLA MATAR- ÍLÁT ANGARSÁR UTANHÚSS LABB MÁNUÐUR ÓNEFNDUR Á FÆTI LÚKA HÓFDÝR LYKT EINKAR MJAKA SÝNI GUSTA TVÍHLJÓÐI HLJÓM RÁS DJÖFSI VESÆLL ÓBUNDINN PÁPI BÆLA NIÐURÚTUNGUN SRÍÐNI 41 Jón Arnar, sölumaður hjá Orku, með eigulegt verkfæri, rafmagnskoppa- feitissprautu. Bráðnauðsynlegt er að eiga gott úrval af smurkoppum til skiptanna. Fornbílaklúbbur Íslands hélt sitt 13. landsmót á Selfossi um þarsíðustu helgi. Það er orðin venja hjá forsvarsmönnum Fornbílaklúbbsins að bjóða Ferguson-félaginu að vera með. Áhugi á gömlum dráttarvélum er vaxandi og margir sem eru forvitnir um tæknibúnað liðinna tíma. Mikil gróska er um allt land í uppgerð gamalla véla en vélarnar sem sýndar voru á Landsmótinu eru allar upp- gerðar af eigendum sínum. Að þessu sinni komu félagsmenn með sínar vélar og eru eigendur þeirra Gísli Grétar Magnússon frá Selfossi (Gísli átti fimm vélar þarna), Magnús Flosi Jónsson, Þorlákshöfn, sem er eigandi MF35X og Magnús Sveinbjörnsson, Selfossi, sem er eigandi Hanomag. Glæsigripir sem hafa marga fjöruna sopið. Frá hægri: Hanomag Perfect 300, MF 185, MF 35X, MF135, MF 35X, Ferguson TEF, Ferguson 35 Gullbelgur. Mynd/ Sigurður Skarphéðinsson. Fergusonfélagið sýndi gamlar dráttarvélar á Selfossi

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.