Bændablaðið - 17.11.2016, Síða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 9.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgarar kostar 4.950 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Það er alveg með ólíkindum hvernig
hagsmunaaðilar í viðskiptum leyfa sér
að beita almennum neytendum fyrir sig í
tilraunum við að skara eld að eigin köku.
Þar hafa forsvarsmenn í Samtökum
verslunar- og þjónustu því miður verið
í fararbroddi og hafa nú algjörlega glatað
trúverðugleika sínum samkvæmt úttekt
Alþýðusambands Íslands.
Undanfarin ár, misseri og mánuði hefur
hver fréttatíminn af öðrum í ljósvakamiðlum
landsmanna verið undirlagður af áróðri
um þá meintu bráðu nauðsyn að afnema
hér öll innflutningsgjöld til hagsbóta fyrir
neytendur. Allt átti það að snarlækka
vöruverð. Samhliða hefur nær alltaf verið
ráðist á bændur landsins og afurðastöðvar
fyrir að hafa af almenningi stórfé í gegnum
„ríkisstyrki“. Einnig fyrir að geta ekki boðið
landbúnaðarvörur á samkeppnishæfu verði
við „ódýran“ innflutning.
Engu máli hefur skipt í áróðrinum
þó bent hafi verið á að innfluttu
landbúnaðarvörurnar séu stórlega niður-
greiddar með stuðningskerfum í gegnum
fyrirbæri eins og CAP hjá Evrópu-
sambandinu. Spurningum er þá heldur í
engu svarað um hvort þá sé siðferðilega
verjandi að Íslendingar þiggi erlenda
ríkisstyrki til að borga ofan í sig matinn.
Þá er heldur engu um það skeytt þótt
vitað sé að hættuleg ofnotkun sýklalyfja
í innflutningslöndunum sé að leiða til eins
mesta heilsufarsvanda sem þjóðir heims
hafa staðið frammi fyrir frá því sýklalyfin
voru fundin upp. Ekkert er heldur gert með
eiturefnanotkun við framleiðslu matvælanna
sem hingað eru flutt. Á sama tíma er vitað
og ítrekað staðfest að íslenskir bændur eru
að framleiða einhver heilsusamlegustu
matvæli sem þekkjast um víða veröld.
Bændur eru síðan stöðugt að ganga lengra
í þeim efnum. Þannig hafa íslenskir
sauðfjárbændur komið því í gegn að búið
er að banna þeim sjálfum með reglugerð að
nota erfðabreytt fóður fyrir sitt fé, knúnir
áfram af metnaði til að skila sem bestri vöru.
Þessi metnaður er þó greinilega lítils virði
í augum landbúnaðarvöruinnflytjenda og
popúlista í pólitíkinni.
Í frétt sem ASÍ birti á vefsíðu sinni kemur
fram að verslunin í landinu hefur EKKI
verið að skila öllum gjaldaniðurfellingum til
neytenda. Meira að segja í sumum tilfellum
hefur vöruverðið hækkað. Er það rakið í
fjölmörgum atriðum, eins og lesa má á
blaðsíðu 10 í þessu blaði.
Gengi krónunnar hefur styrkst um
12% síðan í október 2015 og um 18% ef
litið er tvö ár aftur í tímann. Almennur
virðisaukaskattur lækkaður úr 25,5% í 24%
og vörugjöld afnumin af margvíslegum
vörum. Við upphaf árs 2016 voru tollar
afnumdir af fötum og skóm. Síðsumars
samþykkti svo Alþingi samning við
ESB um stórfelldar tollaívilnanir á
landbúnaðarvörum.
Hver man svo ekki eftir háværum áróðri
úr ranni verslunarinnar um lífsnauðsyn
þess að afnema tolla á buffalóosti.
Engu var líkara en að þjóðinni steðjaði
gríðarleg hætta vegna skorts á tollalausum
buffalóosti, sem fáir vissu hvað var.
Afnám hafta á innflutningi á hráu
kjöti og óheftar heimildir til innflutnings
á landbúnaðarvörum hefur líka ítrekað
verið flaggað í umræðunni. Um leið leyfa
hagsmunaaðilar sér að stilla sér upp nánast
sem hluti af Neytendasamtökunum. Þeir
segja allan þeirra áróður einungis fram
settan með hag neytenda að leiðarljósi. Af
hverju neytendur hafa síðan ekki fengið að
njóta niðurfellingar ótölulegs fjölda gjalda
er síðan spurning sem þessir ágætu menn
verða að fara að svara af einhverju viti.
Það dugar ekki að mæta ítrekað í Kastljós
Sjónvarpsins með tóma steypu og bull í
farteskinu. /HKr.
Hagur neytenda?
Ísland er land þitt
Sumarkvöld á Kópaskeri. Kauptúnið Kópasker er á vestanverðri Melrakkasléttu. Þorpið stendur við Öxarfjörð og er eini þéttbýlisstaðurinn í
Öxarfjarðarhreppi. Þann 1. janúar 2016 voru íbúar Kópaskers 124 talsins. Á Kópaskeri var löggildur verzlunarstaður um 1880 en kauptúnið fór
að byggjast eftir 1910. Aðalatvinnuvegurinn er þjónusta við íbúa sveitanna í kring og stærsti vinnuveitandinn er sláturhúsið og kjötvinnslan
var frá Kópaskeri fyrr á árum en nú eru aðeins gerðar út þaðan nokkrar trillur. Mynd / HKr.
Það er slitnað upp úr fyrstu umferð
stjórnarmyndunarviðræðna en áfram
halda tilraunir til að mynda nýja ríkisstjórn
í landinu. Eins og rætt var um hér á þessum
stað í síðasta blaði þá voru kosningaúrslitin
ekki afgerandi. Vilji er til breytinga en ekki
byltingar. Þessi niðurstaða er meiri áskorun
en ef ein „blokk“ hefði unnið stóran sigur
og talið sig hafa umboð til byltingar án þess
að hlusta á minnihlutann.
Núverandi staða gerir þá kröfu til
stjórnmálamanna að þeir leggi meira á sig til
að ná saman – semja um niðurstöðu þannig að
allir geti verið bærilega sáttir á eftir. Það getur
verið vandamál og umræða síðustu daga hefur
ekki verið mjög þroskuð. Það hefur verið
mikið um útilokanir en minna um opnanir.
Það eru engin drottinssvik að gera málamiðlun
því að enginn einn flokkur getur gert tilkall
til höfundarréttar á sannleikanum.
Mismunandi skoðanir
Við höfum öll mismunandi skoðanir og við
deilum um fjölmarga hluti upp á hvern einasta
dag. Vilji almennings fæst ekki afhentur í
snyrtilegum gjafaumbúðum á Fésbókinni.
Hann verður ekki til á einum stað, heldur
út um allt samfélagið og hann er ekki ein
skoðun heldur fjölmargar. Samfélagið okkar
er einfaldlega fjölbreytt og margbrotið, þótt
þjóðin teljist ekki fjölmenn á alþjóðavísu.
Þeir sem ætla sér að skilja samfélagið
verða að lágmarki að skilja hvað það er
fjölbreytt. Í því býr margs konar fólk sem
hefur ólíkan bakgrunn, reynslu, þekkingu
og menntun. Allt þetta skilar sér í ólíkum
viðhorfum til þess hvernig við viljum haga
sameiginlegum verkefnum. Um það myndum
við hópa, stjórnmálaflokka eða annars konar
samtök til að vinna okkar viðhorfum fylgi.
Stjórnmálaflokkarnir keppa um hylli okkar
í kosningum og við veljum þá sem við
treystum best eða finnum mesta samsvörun
með. Eða kjósum bara engan eins og einn af
hverjum fimm kjósendum gerði því miður í
nýliðnum kosningum. Var það vegna þess að
þeir treystu engum eða að ekkert framboð
höfðaði til þeirra? Á því eru vafalaust margar
skýringar en það er áfellisdómur yfir öllum
framboðunum að ekki tókst betur til.
Það þarf alltaf málamiðlanir
Stundum skila kosningar niðurstöðu sem
okkur líkar ekki við. Fyrir suma virðist
mikilvægara að einhverjum ákveðnum
flokki gangi illa en að öðrum gangi vel og
menn reiðast jafnvel þeim sem kjósa ákveðin
framboð og kalla öllum illum nöfnum. Það
mátti heyra að loknum kosningunum ýmsar
heitstrengingar um að þessi eða hinn myndu
ekki vinna saman.
Í stjórnarmyndunarviðræðum sem nú
hefur slitnað upp úr var harkalega ráðist á
einn þátttakanda, ekki vegna málamiðlana,
heldur vegna þess að hann ætti ekki að tala
við ákveðna aðila. En það er einmitt verkefnið
sem kjósendur fólu hinu nýja þingi.
Að ná niðurstöðu og gera málamiðlanir.
Hafa áhrif í samvinnu við aðra. Það er erfitt
fyrir marga, en það er það sem þarf að gera.
Það er hægt að fara fram á að ráða öllu ef
kjósendur hafa falið þér það vald, en hafi þeir
ekki gert það þá er ábyrgðin að reyna að ná
því fram sem hægt er – með því að leita sátta
við önnur sjónarmið.
Að skilja fólk sem er þér ekki sammála og
vinna með því að lausnum sameiginlegra mála
okkar samfélags. Ekki byggja andlegan múr
til að skilja sig frá því. Þetta er ekkert nýtt. Á
lýðveldistímanum hafa kjósendur aldrei falið
einum flokki stjórn landsins. Það hefur alltaf
þurft málamiðlanir til og svo er einnig nú.
Landbúnaðarstefna í stöðugri mótun
Eitt af því sem deilt er um eru vissulega
landbúnaðarmálin. Landbúnaðurinn hefur
notið mikils velvilja í íslensku samfélagi í
gegnum árin og flestir, ekki þó allir, vilja að
það sé stutt við bakið á honum. Það er erfiðara
að ná saman um hvernig á að gera það.
Lesendur þekkja vel umræðuna samhliða
afgreiðslu búvörusamninga. Nú er að taka
til starfa vinnuhópur til að endurskoða
samningana næstu misserin. Mikilvægt er
að nýta þann tíma vel til að ræða málin í heild.
Oft er umræða um þessi mál of bundin
við gagnrýni á landbúnaðarstefnuna – eða
landbúnaðarkerfið eins og það er oft kallað.
Við það þurfi að losna, en lítið um útfærðar
hugmyndir á móti. Hverju vilja menn
raunverulega breyta og er vilji til að leita sátta
við bændur um það? Það er ekki gott að vita.
Sumir vilja ganga í Evrópusambandið og
væntanlega taka þá upp landbúnaðarstefnu
þess. Það er heilmikið kerfi og verður ekki til
einföldunar væri það tekið upp hér og bændur
hafa lengi haft skýra stefnu þess efnis að þeir
telji aðild að ESB ekki skynsamlega.
Hávær innihaldslaus umræða
En meginspurningin er; hvert vilja menn
stefna? Í búvörusamningunum sem taka gildi
um áramótin eru margs konar stefnubreytingar.
Stundum er samt eins og umræðan nái aldrei
undir yfirborðið eins og skemmtilega var
orðað í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins
um síðustu helgi:
„...Næstbrýnast sé að uppræta hinn
hræðilega „búvörusamning“ sem 0,0001%
þjóðarinnar hefur lesið, en mun stærri
hluti aðeins séð afskræmingu nettrölla á,
en þau eru á meðal þeirra sem ekki hafa
lesið hann [...] Búvörusamningur hefur um
alllanga hríð tryggt stöðugleika innlendrar
landbúnaðarframleiðslu. Það væri skammsýni
að grafa undan svo eftirsóknarverðum þætti
íslensks þjóðlífs sem heilnæmur, hollur og
góður landbúnaður er. Eyðilegging, einkum
vegna sérvisku í bland við fordóma, yrði aldrei
aftur tekin.“
En til þess að ná árangri þarf að kafa undir
yfirborðið, hafa skýr markmið og vilja til að
ná niðurstöðu sem allir við borðið geti sætt sig
við. Bændur eru og hafa alltaf verið tilbúnir
í þá umræðu.
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Ásgerður María Hólmbertsdóttir amh@bondi.is – Sími: 563 0303 – augl@bondi.is − Vefsíða blaðsins:
www.bbl.is − (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Prentsnið – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Sigurður Eyþórsson
frkv.stj. Bændasamtaka Íslands
sigey@bondi.is
Tölum um efnið