Bændablaðið - 17.11.2016, Page 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Matvælastofnun minnir á að
frestur til að skila haustskýrslu
rennur út sunnudaginn 20.
nóvember nk. Matvælastofnun
hefur sent þeim sem eru skráðir
umráðamenn/eigendur búfjár
tölvupóst eða bréf þess efnis.
Þar er minnt á að samkvæmt
lögum um búfjárhald, nr. 38/2013,
skulu umráðamenn búfjár skila
árlegri haustskýrslu fyrir 20.
nóvember um búfjáreign, fóður
og landstærðir. Eins og síðustu
ár skal skrá haustskýrslu með
rafrænum hætti á vefsíðunni
Bústofn, á vefslóðinni www.
bustofn.is.
Hestaeigendur í þéttbýli skili
líka tölum um hrosseign
Vakin er athygli á skyldu eigenda
hesta, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli,
að þeir skili inn tölum yfir fjölda
hrossa í eigu þeirra.
Þeir umráðamenn/eigendur
búfjár sem ekki hafa tök á því
að skila sjálfir í gegnum Bústofn
er bent á að Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins veitir aðstoð við
að ganga frá haustskýrslu. Fyrir þá
þjónustu er innheimt samkvæmt
gjaldskrá RML.
Haustskýrsluskil eru
grundvöllur stuðningsgreiðslna
Matvælastofnun vekur athygli á að
haustskýrsluskil eru grundvöllur
stuðningsgreiðslna sem og
undirstaða hagtalna í landbúnaði.
Búfjáreigendur eru minntir á að
Matvælastofnun skal fara í skoðun
til þeirra umráðamanna búfjár
sem ekki skila inn fullnægjandi
upplýsingum í haustskýrslu og
er slík heimsókn framkvæmd á
kostnað umráðamanns.
Bjarki Pjetursson,
sérfræðingur á Búnaðarstofu
Matvælastofnunar
...frá heilbrigði til hollustu
Frestur til að skila haustskýrslu
rennur út 20. nóvember
Fréttir
Framlag til jarðræktar og
hreinsunar affallsskurða
Alls bárust 27 rafrænar
umsóknir vegna jarðræktar og
27 rafrænar umsóknir vegna
affallsskurða til Matvæla -
stofnunar. Fram kvæmdir
eru komnar í úttektarferli
hjá úttektar aðilum á vegum
búnaðar sambanda, og átti
úttekt um að vera lokið 15.
nóvember 2016. Styrkir eru
síðan greiddir út fyrir árslok
2016.
Styrkhæf ræktun vegna
jarðræktar er ræktun grass,
korntegunda til dýrafóðurs og
manneldis, ræktun olíujurta, þar
með talin til lífdísilolíuframleiðslu
enda sé hratið nýtt til fóðurs,
ræktun grænfóðurs til beitar og
uppskeru á því ári sem uppskorið
er.
Beit búpenings telst vera
uppskera sem og nýting
kornhálms. Ræktun vetraryrkja
sem sáð er um mitt sumar og
endurræktun túna er tekin út á
uppskeruári.
Greitt er út á hundruð metra
vegna hreinsunar affallsskurða og
venjulegar reglur um upphækkanir
gilda. Framlög má aðeins veita ef
heildarlengd er a.m.k. 100 metrar.
Breidd skurðanna skal
minnst vera 6 metrar að ofan.
Úttektaraðili sannreynir stærð,
lengd og breidd skurðar og hvort
skilyrði til styrkveitingar eru að
öðru leyti uppfyllt.
Framlag til vatnsveitna
á lögbýlum
Alls bárust 28 rafrænar
umsóknir til Matvæla stofnunar.
Famkvæmdir eru komnar í
úttektarferli hjá úttektaraðilum á
vegum búnaðarsambanda og skal
úttektum vera lokið eigi síðar en
20. nóvember 2016. Styrkir eru
síðan greiddir út eigi síðar en 15.
febrúar 2017.
Fyrirvari er gerður um að
framkvæmdin standist kröfur
til úttektar í samræmi við
reglugerð nr. 180/2016 gefin út
af innanríkisráðuneytinu og þá
þarf Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
endanlega að samþykkja
fjárveitingu.
Ráðstöfun fjár vegna
ullarnýtingar 1. nóv. 2015
til 31. okt. 2016
Lokauppgjör vegna ullarnýtingar
verður greidd til bænda 21.
nóvember 2016.
Skilyrði fyrir greiðslu fjármuna
til bænda er að ullin hafi verið
flokkuð og metin í samræmi við
lög nr. 57/1990, um flokkun og
mat á gærum og ull, og reglugerð
nr. 856/2003, um ullarmat.
Fjárhæðinni skal deilt niður
hlutfallslega eftir gæðum á hvert
kíló hreinnar ullar miðað við
alla innlagða ull á tímabilinu 1.
nóvember–31. október.
Guðrún S. Sigurjónsdóttir
fulltrúi, Búnaðarstofu.
Það getur valdið heilabrotum að raða hrútum í sæti. Mynd / Aldís Gunnarsdóttir
Hrútasýning í Svalbarðshreppi:
Biskup valinn fegursti forystuhrúturinn
Mánudaginn 31. október var
haldin hrútasýning á vegum
sauðfjárræktarfélagsins Þistils í
Þistilfirði. Sýningin var haldin í
fjárhúsunum í Garði og mættu
allmargir bændur með hrúta sína.
Mikil hefð er fyrir hrútasýningum
í Þistilfirði og hefur þátttaka
yfirleitt verið góð þar.
Sýningin var í þremur hlutum,
veturgamlir hrútar, lambhrútar
og fegursti forystuhrúturinn.
Ráðunautarnir Steinunn Anna
Halldórsdóttir og Sigurður Þór
Guðmundsson dæmdu hrútana.
Af veturgömlu hrútunum var
efstur hrútur frá Svalbarði, Óður
15-101 undan Ljúflingi 11-101 frá
Hagalandi. Móðir Óðs er 11-110
undan hrút frá Sandfellshaga 2,
Gunna 09-103. Í öðru sæti var hrútur
frá Gunnarsstaðabúinu, Keisari
15-043. Faðir hans var Kóngur 122-
044, heimaalinn undan Gosa frá Ytri-
Skógum. Móðir Keisara, 10-081 er
undan Hróa frá Geirmundarstöðum.
Í þriðja sæti var hrútur frá Hófataki
á Gunnarsstöðum. Hann heitir Viti
15-340 undan Fjarka 10-150 frá
Sandfellshaga 2 og móðir Vita er
Elska 08-190 undan heimahrút,
Kóng Gosasyni.
Af lambhrútunum var efstur
hrútur no. 171 frá Flögu, í eigu
Fjólu Runólfsdóttur í Hófataki
á Gunnarsstöðum. Hrúturinn er
undan Dofra 15-261 frá Flögu undan
Hvata 13-926 og Kríu 07-027 sem
er undan Lóðasyni. Í öðru sæti var
hrútur no. 16-150 frá Hagalalandi,
undan Grím 14-955 frá Ytri-Skógum
og Klöppu 14-468 í Hagalandi en
hún er undan Saum 12-915 frá
Ytri-Skógum. Í þriðja sæti var
einnig hrútur no. 10 frá Hagalandi,
í eigu Gunnarsstaðabúsins,
sonur Jökuls 13-158 í Hagalandi,
Válasonar. Móðir hrútins er 11-120
í Hagalandi undan Ljóma 10-151 frá
Hafrafellstungu.
Í annað sinn er valinn fegursti
forystuhrútur Þistilfjarðar. Þar eru
aðrar áherslur í ræktuninni. Þar eru
kostirnir að vera háfættur, litfagur,
athugull, að bera sig vel og að vera
ekki of villtur. Í ár var það hrútur
frá Laxárdal, í eigu Friðgeirs Óla
Eggertssonar, Biskup 16-325 undan
Draumi 15-325 Flórgoðasyni og
Etnu 12-084 sem er frá Holti. Biskup
er af langræktuðu forystukyni í
Þistilfirði og hefur flesta þá kosti
sem forystuhrútur þarf að hafa.
Fræðasetur um forystufé gefur
eignabikar fyrir fegursta hrútinn
og er það hvatning til þeirra sem
rækta forystufé en í Þistilfirði eru
forystukindur á flestum bæjum.
Þær eru mikið notaðar við rekstra
milli hólfa og þegar sleppt er á fjall
á vorin og á haustin eru þær notaðar
við innrekstur og þegar verið er að
flytja fé milli hólfa.
Að lokinni sýningunni bauð
Þistill upp á kaffi og meðlæti. Þar
spjallaði fólk saman, karpaði um
hvort rétt væri raðað í sæti en þar
eru menn sjaldan sammála. Nokkrir
hrútar skiptu um eigendur enda
er þetta góður vettvangur til að
skoða hrútakost annarra og skipta
á hrútum. /DH
Friðgeir Óli Eggertsson með forystuhrútinn sinn, Biskup.
Mynd / Soffía Björgvinsdóttir
Lambhrútarnir. Fjóla á Gunnars-
stöðum og Ómar í Flögu halda í
efsta hrútinn en Haike og Gunnar í
Hagalandi halda í hrúta sem voru í
öðru og þriðja sæti. Mynd / AG
Veturgömlu hrútarnir og eigendur þeirra. Frá vinstri: Jóhannes með Vita,
Axel með Keisara og Einar með Óð. Mynd / Soffía Björgvinsdóttir