Bændablaðið - 17.11.2016, Qupperneq 16

Bændablaðið - 17.11.2016, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Uppvakningar eru draugar sem vaktir eru upp af lifandi mönnum til að þjóna ákveðnum tilgangi, oftast til illverka. Ekki er því að undra að þeir séu bæði skapvondir og úrillir, þegar verið er að raska ró þeirra sem liggja í friði. Ekki eru allir sammála um hvernig vekja skal draug en í þjóðsögum Jóns Árnasonar má finna eftirfarandi lýsingu. Fyrst skal þess að gætt að það sé gert að nóttu til, sem er milli föstudags og laugardags og það sé milli 18. og 19. eða 28. og 29. mánaðardags, það er sama í hvaða mánuði eða viku það er. Særingarmaðurinn skal kvöldið áður hafa snúið faðirvorinu öfugt og skrifað það á blað eða skinn með keldusvínsfjöður úr blóði sínu sem hann tekur úr vinstra handlegg. Einnig skal hann rista rúnir á kefli. Fer hann svo með hvort tveggja út í kirkjugarð um miðnætti og gengur að því leiði sem hann hefur valið. Þykir ráð að velja fremur hin minni. Leggur hann keflið á leiðið og veltir því fram og aftur og þylur öfugt faðirvorið ásamt töfraformúlum. Þegar leiðið fer að ókyrrast, birtast ofsjónir á meðan draugurinn er að mjakast upp. Uppvakningar eru sárnauðugir að hreyfa sig og gengur þetta því seint fyrir sig. Draugurinn biður særingarmanninn að leyfa sér að liggja í friði, en ekki má særingarmaðurinn gefa undan né láta sér bregða við ofsjónirnar. Hann skal halda áfram við gjörninginn uns draugurinn er kominn hálfur upp. Þegar draugurinn er kominn hálfur upp á að spyrja hann tveggja spurninga en ekki þriggja því þá hverfur draugurinn niður aftur, fyrir þrenningunni. Fyrsta spurningin er vanalega hver hann hafi verið í lífinu og sú seinni hversu hraustur hann sé. Ef draugurinn segist hafa verið meðalmaður eða meir er ráðlegt að hætta, því það liggur fyrir særingarmanni að takast á við drauginn. Draugar eru ákaflega sterkir og sagt er að þeir magnist um helming umfram það sem þeir voru í jarðlífinu. Þetta er ástæða þess að særingarmenn velja helst börn, tólf til fjórtán ára gömul, en ekki menn sem komnir eru undir þrítugt. Sé ákveðið að halda áfram, skal særa uns hann er allur kominn upp. Þegar draugar koma fyrst upp úr gröfum sínum vella öll vit þeirra, munnur og nasir, í froðuslefju og saur, heitir þetta náfroða. Froðu þessa á særingarmaðurinn að sleikja af draugnum. Síðan skal hann vekja sér blóð undan litlu tá á hægra fæti og vökva með því tungu draugsins. Nú hefjast slagsmálin við drauginn, menn eru ekki á einu máli um það hvor ræðst á hvern, draugurinn eða kuklarinn, en hafi draugurinn betur dregur hann særingarmanninn niður í gröfina með sér. Hafi særingarmaðurinn betur, er draugurinn skyldugur til að þjóna honum. Karlar sem vaktir eru upp nefnast Mórar en kvenmenn Skottur. Þeir uppvakningar sem særðir eru upp áður en líkið nær að kólna, þykja rammastir og verstir viðureignar. Það verður einnig að sjá þeim fyrir mat, því þeir þurfa að nærast eins og lifandi menn. /VH Að vekja upp draug Eins og komið hefur fram á síðustu vikum hefur færst mjög í vöxt að sauðfjárbændur kjósi að selja afurðir sínar sjálfir, meðal annars vegna hins lága verðs sem þeim stendur til boða hjá afurðastöðvunum. Samkvæmt nýlegum upplýsingum frá Matvælastofnun (MAST) höfðu 17 umsóknir borist um starfsleyfi frá 30. september síðastliðnum. Til að bregðast við þessum áhuga gaf stofnunin út leiðbeiningar þann 27. október síðastliðinn; um framleiðslu og sölu á búfjárafurðum beint frá býli þar sem tilslakanir á regluverkinu eru útskýrðar. Dóra S. Gunnarsdóttir leiðbeinir varðandi þessi mál af hálfu Matvælastofnunar, þar sem hún er forstöðumaður á sviði neytendaverndar. Hún segir að ný reglugerð hafi verið gefin út fyrir skemmstu sem hafi það markmið að auka sveigjanleika í lítilli og hefðbundinni mat- vælaframleiðslu, til að auðvelda framleiðendum að uppfylla kröfur matvælalöggjafarinnar. „Lög nr. 93/95 um matvæli kveða á um að matvælafyrirtæki skuli hafa starfsleyfi. Matvælafyrirtæki er fyrirtæki sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi. Dreifing er hvers konar flutningur, framboð og afhending, þar með talið innflutningur, útflutningur og sala. Samkvæmt 9. gr. laganna þurfa öll matvælafyrirtæki að hafa starfsleyfi frá hlutaðeigandi opinberum eftirlitsaðila,“ segir Dóra. Slakað á kröfum í nýjum reglum Í nýrri reglugerð (nr. 856/2016) eru talsverðar nýjungar sem eiga að höfða til lítilla matvælafyrirtækja, þar sem vinnsla matvæla er hliðarbúgrein með annarri starfsemi. Hún gefur afslátt af ákveðnum kröfum í hollustuháttareglum og skapar aukið svigrúm til framleiðslu séríslenskra hefðbundinna matvæla, svo sem reykingar á kjöti í litlum reykhúsum eða torfkofum og þurrkunar á fiski í hjöllum og trönum. Ákveðinn sveigjanleiki er veittur fyrir litlar mjólkurvinnslur, litlar kjöt- og fiskvinnslur, litlar eggjapökkunar- stöðvar og litlar matvæla-vinnslur. Til dæmis er ekki skylt að kljúfa skrokka af ákveðnum dýrum í slátur- húsum fyrir h e i l b r i g ð i s - skoðun. Einnig er veitt aðlögun að kröfum fyrir lítil sláturhús. Dóra segir, varðandi kostnaðinn við starfsleyfi, að gjald fyrir reglubundið eftirlit með fyrirtækjum í frumframleiðslu (þau hafa ekki verið áhættuflokkuð) nemi fastri fjárhæð í samræmi við þá eftirlitsskyldu starfsemi sem fram kemur í viðauka I með gjaldskrá Matvælastofnunar (nr. 567/2012) og er greitt fyrir hverja eftirlitsheimsókn. „Sauðfjárrækt er ekki tilgreind í viðauka I, en gjald fyrir annað eftirlit er 8.348 krónur á klukkustund auk ferðakostnaðar, samanber 8. grein gjaldskrárinnar.“ Vinnsla og geymsla heima á bæ er áhættuflokkuð „Vinnsla og geymsla heima á bæ telst til síðari stiga og áhættuflokkun nær til þeirrar starfsemi. Fyrirtæki í vinnslu matvæla hafa verið áhættuflokkuð og tímar í eftirliti ákvarðast samkvæmt því. Lítil fyrirtæki fá ekki marga tíma – kannski 2–4 á ári. Gjald fyrir reglubundið eftirlit með fyrirtækjum sem hafa verið áhættuflokkuð er 20.870 krónur á klukkustund. Aðeins er greitt fyrir eftirlit sem framkvæmt er á eftirlitsstað og greitt er fyrir hvern hafinn stundarfjórðung. Til viðbótar við ofangreind gjöld skal greiða 3.330 króna akstursgjald fyrir hverja eftirlitsheimsókn,“ segir Dóra. Að sögn Dóru skiptir máli hver meginstarfsemin er varðandi það hvert framleiðandinn eigi að snúa sér til að fá að sækja um starfsleyfi. „Það er mismunandi hver gefur út starfsleyfi. Ef það er í sauðfjárrækt fer MAST með eftirlitið – og því einnig með eftirlit með sölu afurðanna. Það er reynt að koma í veg fyrir að tveir aðilar fari í matvælaeftirlit á sama stað.“ Nýju reglugerðina er hægt að nálgast á vefnum reglugerd.is, undir atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti. /smh Tilslakanir í regluverki smáframleiðenda: Aukið svigrúm til framleiðslu séríslenskra hefðbundinna matvæla STEKKUR Skipulag er alltaf tengt staðsetningu og er því nátengt landinu. Gæði skipulags ráðast meðal annars af því hve vel það er sniðið að legu landsins. Á vissan hátt er landslagið rammi skipulagsins. Íslenska landslagið er stórbrotið, mikilfenglegt og oft á tíðum hrikalegt. Í því liggur fegurð þess. Landslag táknar samkvæmt Íslenskri orðabók „heildarútlit landsvæðis, form náttúru á tilteknum stað“. Merking orðsins og hugtakið sem vísað er til með orðinu landslag á sér aðrar rætur í íslensku en í flestum germönskum málum eins og Edda Waage fjallaði um í doktorsritgerð sinni 2013. Á ensku, þýsku og Norðurlanda- málunum utan íslensku er notað orð samstofna hinu forna landskapur (landskab, landscape) þ.e. hvernig landið er mótað. Samkvæmt Morkin skinnuhandriti frá um 1275 þá notuðu Íslendingar orðið landsleg, þ.e. hvernig landið liggur. Landslag vísar í legu landsins eins og það er í náttúrunni. Almennt er ekki átt við hvernig það hefur verið brotið undir ræktun eða aðra starfsemi mannanna. Landslag í hugum flestra Íslendinga vísar í ósnortið landslag. Víða erlendis er slíkt hugtak vart til lengur og landslag (landscape) vísar til landsins þótt ásýnd þess stafi öll frá ákvörðunum manna um hvað skuli rækta hvar. Byggakrar og skógræktarreitir eru í hugum margra Íslendinga fyrirbæri sem er komið fyrir í landslaginu en verða seint hluti af því. Menningarlegi munurinn sem endurspeglast í þessari hugsun er að maðurinn býr í landslaginu og aðlagar líf sitt að því frekar en að breyta landslaginu til samræmis við þarfir sínar. Það er nauðsynlegt að þekkja og skilja landið sem maður býr í. Landslagið og landgæðin hafa áhrif á hvar maðurinn hefur valið sér að búa í gegnum aldirnar. Smám saman lærðu menn að lesa landið og velja sér bústað út frá því sem best hentaði. Samkvæmt markmiðum skipulagslaga 123/2010 þá ber okkur að „tryggja vernd landslags“. Nú er oft unnin landslagsgreining til að gera sér grein fyrir staðháttum. Segja má að landslagsgreining sé bókstafslega unnin frá grunninum og upp (e. bottom-up), þar sem landið er greint allt frá berggrunni að fuglalífi og veðurfari. Mikilvægt er að taka tillit til landslags á norðurslóðum þar sem skuggar eru langir og vetur kaldir og vindasamir. Með stóraukinni aðsókn ferðamanna til landsins má segja að landslag sé ein okkar helsta útflutningsvara og mikið af áskorunum sem við þurfum að takast á við í skipulagsmálum. Hingað til höfum við verið að skipuleggja fyrir íbúana sem hafa lært að búa í landinu. Nú þurfum við líka að skipuleggja fyrir ferðamenn – neytendur sem þekkja ekki landið. Skipulagning fyrir ferðamennsku er tvíeggjað sverð því margir ferðamenn sækja í að upplifa þá tilfinningu að vera einir í óspilltri náttúrunni. Aðdráttaraflið er ósnortið náttúrulegt landslag sem er ólíkt því landslagi sem þekkist í þéttbýlli löndum sem er oftar en ekki mótað af manninum. Á Íslandi upplifa ferðamenn fámenni, jafnvel á eftirsóttum stöðum þar sem íbúum landsins þykir orðið margt um manninn. Þeir hafa aðrar hugmyndir um margmenni en við Íslendingar og hafa kannski vanist því að búið sé að sníða umhverfið þannig að ekki stafi hætta af náttúrunni. Við þurfum að passa að landið líði ekki fyrir ferðamannastrauminn og þurfum að beina honum víðar um landið. Að sjálfsögðu þarf að huga að grunnþörfum mannsins og koma upp aðstöðu, þar á meðal salernum, sem víðast. Þetta snýst líka um framboð og eftirspurn. Ekki viljum við að nýja „ferðamannatorfan“ hætti að ganga inn í íslenska lögsögu. Því fylgir áskorun að bæta öryggi, aðgengi og aðstöðu á ferðamannastöðum og skipuleggja þá þannig að þeir virki náttúrulegir og spennandi en séu jafnframt skipulagðir og öruggir. Að ferðmannastaðurinn haldi yfirbragði ósnortinnar náttúru þar sem hægt er að njóta landslags sem ekki er skapað af manninum. Dóra S. Gunnarsdóttir. SKIPULAGSMÁL Söluvaran landslag Sigríður Kristjánsdóttir lektor − auðlinda- og umhverfisdeild LbhÍ sigridur@lbhi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.