Bændablaðið - 17.11.2016, Page 21

Bændablaðið - 17.11.2016, Page 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Rannsóknir sýna að ef aukin áhersla verði lögð á sjálfbæran landbúnað í heiminum þá geti það skilað af sér 2,3 billjónum dollara í beinhörðum peningum. Fyrirbæri sem heitir „Business and Sustainable Develop- ment Commission“ og hefur það að markmiði að styðja við þróun sjálfbærni á heimsvísu (Sustainable Develop- ment Goals - SDGs) fjallaði um þessi mál í sameiginlegri nýrri skýrslu með samtökunum AlphaBeta nýverið sem ber titilinn „Valuing the SDG Prize in Food and Agriculture“. Skilar sér sjöfalt til baka Þarna er reynt að verðmeta fæðu og landbúnað í samhengi við aukna sjálfbærni. Kemur fram að aukin sjálfbærni geti leyst úr læðingi 14 meiri háttar viðskiptatækifæri sem sem séu að verðmæti 2,3 billjónir dollara á ári fram til 2030. Hver þáttur er metinn til ákveðinna verðmæta. Þannig er talið að aukin innleiðing sjálfbærni í nautgriparækt muni fæða af sér árlegan hagnað upp á 15 milljarða dollara. Minni sóun matvæla í einkageiranum er metin á 405 milljarða dollara. Endurheimt lands sem búið er að skemma með eiturefnum og ofnýtingu er metið á 85 milljarða dollara á ári. Í skýrslunni segir að árleg fjárfesting upp á 320 milljarða dollara til að auka sjálfbærni muni skila sér sjöfalt til baka. Þetta muni opna á tækifæri til að mæta margvíslegum áskorunum í landbúnaði. Landbúnaður á tímamótum Núverandi matvæla- og landbún- aðar kerfi heimsins standa nú á tímamótum að mati skýrslu- höfunda þar sem vöxtur og afkoma grein- arinnar helst ekki lengur í hendur við fjölgun m a n n k y n s . Það eigi bæði við um þróun matvælaöflunar á landi og í hafinu. Á sama tíma og æ fleiri búa við meiri og betri fæðu en nokkur sinni, séu 800 milljónir manna vannærðir en offitufaraldur sé um leið að hrjá 165 milljónir barna. Í dreifbýlinu lifa 1,5 milljarðar smábænda enn undir fátækramörkum. Auknar kröfur og samkeppni um land, eldsneyti, fæðu og skógarafurðir eru á sama tíma að þrengja æ meir að skóglendi og öðrum náttúrugæðum. Það sé ekki bara að leiða til aukinna gróðurhúsaáhrifa, heldur líka til útrýmingar tegunda. Sameiginleg skýrsla AlphaBeta samtakanna og Business Commission tekur til hvernig viðskipti með mat og landbúnaður geti vaxið með sjálfbærum hætti og mætt sjálfbærnimarkmiðum (SDG) sem sett voru 2015. Í þeim eru 17 tímasett markmið sem miða að því að stöðva fátækt og hungur í heiminum fyrir 2030 og taka á áskorunum til að koma í veg fyrir frekari hlýnun loftslags. Landbúnaðargeirinn fellur þar beint undir SDG markmið 2 sem lýtur að því að stöðva hungur í heiminum, einnig SDG 3 sem fjallar um aukið heilbrigði, SDG 8 sem lýtur að auknum hagvexti, að draga úr ójöfnuði samkvæmt SDG 10, ábyrgri neyslu og framleiðslu í SDG 11, verndun loftslags samkvæmt SDG markmiði 12, verndun lífríkis undir vatnsyfirborði í SDG 14 og verndun lífríkis á jörðinni samkvæmt markmiði SDG 15. Samkvæmt skýrslunni ætti aukin sjálfbærni í landbúnaði og fæðuöflun að geta fætt af sér 80 milljón ný störf víða um heim, þó aðallega í þróunarlöndunum. Inni í því eru talin 21 milljónir nýrra starfa í Afríku, 22 milljónir á Indlandi, 12 milljónir í Kína og 15 milljónir starfa í öðrum Asíuríkjum. /HKr. Sjálfbær þróun og viðskipti í landbúnaði: Fjárfesting í aukinni sjálfbærni getur skilað sér sjöfalt til baka FLÚRLAMPAR RAKAHELDIR afsláttur 20% 2x58 W perur og 2x36 W perur við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Bakteríudrepandi, græðandi og mýkjandi Tea Tree krem og sápa fyrir þurrar og sárar hendur. F áb t “b d ” k ár ær æn a rem og s pa fyrir húð sem er undir miklu álagi. Fæst í Lyfju og Apótekinu um allt land. Bakteríu- drepandi krem og sápa Fæst í Lyfju og Apótekinu um allt land.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.