Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Hluti af vetrarverkunum
Akureyri s. 440 1420 • Grindavík s. 426 8290 • Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574
• Húsavík s. 440 1448
• Blönduós s. 467 1010Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245
Reyðarfjörður s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127
www.n1.is facebook.com/enneinn
Vatteraður með cordura efni á álagsflötum.
Rennilásar á skálmum. Hettu má renna af.
Stærðir: XS-5XL
Litir: gulur/appelsínugulur
Vnr. 9616 K2 2009
K2 Kuldagalli
K2 Kuldabuxur með smekk og axlaböndum.
Vatteraðar.
Stærðir: S-4XL
Litur: grár/svartur
Vnr. 9616 K2 2006K
K2 Kuldabuxur
Lambhúshetta úr flísefni, fóðruð með bómull.
Ein stærð.
Vnr. A421 2
Lambhúshetta
Showa hanskar, latexdýfður, fóðraður
vetrarhanski.
Vnr. A414 691777*
SHOWA hanskar thermo grip
Prjónaðir vinnuvettlingar, þykkir. Ull/nylon.
Vnr. A108 VV101
Vinnuvettlingar
K2 Kuldajakki, vatteraður með hettu sem
hægt er að smella af.
Stærðir: S-4XL
Litur: grár/svartur
Vnr. 9616 K2 2005
K2 Kuldajakki
Kuldabuxur með smekk og axlaböndum
Vatterað.
Stærðir: XS-5XL
Litur: gulur/appelsínugulur
Vnr. 9616 K2 BX6023
K2 Kuldabuxur með smekk
Vatteraður með cordura efni á álagsflötum.
Rennilásar á skálmum. Hettu má renna af.
Stærðir: XS-5XL
Litur: grár/svartur
Vnr. 9616 K2 2001
Kuldagalli
Kuldajakki, vatteraður með hettu sem hægt
er að smella af.
Stærðir: S-4XL
Litur: gulur/appelsínugulur
Vnr. 9616 K2 2005
K2 Kuldajakki
Vertu klár í kuldann!
Handónýtir vegir í uppsveitum Árnessýslu
„Ástandið er alls ekki gott,
vegirnir eru víða mjög slæmir
og þarfnast mikils viðhalds.
Það vantar miklu, miklu meira
fjármagn til Vegagerðarinnar svo
hún geti sinnt sínum störfum og
haldið vegunum við.
Ég veit að þeir eru allir af vilja
gerðir en það stendur á peningum
frá ríkisvaldinu,“ segir Ólafur
Guðmundsson, einn helsti vega-
sérfræð ingur
landsins.
Hann hefur
nýlega skilað
af sér skýrslu
til sveitar-
félaganna í
u p p s v e i t u m
Árnes sýs lu ,
Flóa hrepps og
Ásahrepps um
ástand veganna
á þessum
svæðum. Skýrslan er vægast sagt
svört því vegirnir eru meira og minna
handónýtir. Í bókun sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar segir m.a.:
„Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
hvetur ríkisvaldið til að leggja
meira fjármagn til uppbyggingar og
viðhalds á vegakerfinu enda löngu
orðið tímabært. Með áframhaldandi
fjölgun ferðamanna mun vegakerfið
gefa sig með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum fyrir íbúa, fyrirtæki
svæðisins og ferðamenn. Ekki er
lengur við þetta ástand unað þar sem
öryggismálum almennings er ekki
sinnt.“ /MHH
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
MENNING&LISTIR
Leitin að svarta
víkingnum
Út er komin hjá Bjarti bókin
Leitin að svarta víkingnum eftir
Bergsvein Birgisson.
Einn leyndardómur íslenskra
fornsagna eru örstutt brot um
„svartleitan“ mann sem þar bregður
fyrir – Geirmund heljarskinn.
Hann er sagður dökkur og ljótur,
með mongólska andlitsdrætti af
konunglegum uppruna, sagður
„göfgastur landnámsmanna“ og
ríður um sveitir Íslands með áttatíu
vígamenn, og á mörg stórbú þar sem
hann heldur mörg hundruð þræla. En
hver var Geirmundur heljarskinn?
Af hverju er engin saga varðveitt
af honum og af hverju hefur hann
nánast fallið í gleymsku?
Hér tekur Bergsveinn Birgisson
lesandann með sér í heillandi ferðalag
um forna tíma og fjarlæg lönd – en
einnig á slóðir Geirmundar við
Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Með
því að rýna í skjöl, fornleifar og nýta
nýjustu tækni kviknar fortíðin til lífs
og púslin raðast saman í spennandi
frásögn, sem er skrifuð af þekkingu,
skáldlegum innblæstri og stílgáfu.
Fyrsta útgáfa af Leitinni að svarta
víkingnum kom út á norsku og
hlaut frábærar viðtökur. Bergsveinn
er doktor í norrænum fræðum við
háskólann í Bergen í Noregi og hefur
skrifað jöfnum höndum skáldverk
og fræðirit. Þekktasta verk hans
er Svar við bréfi Helgu sem varð
metsölubók.
Bergsveinn Birgisson
leitin
að svarta
víkingnum
„Meistaraverk.“
AFTENPOSTEN