Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Austurlandsdeild Smalahundafélags Íslands:
Smalahundakeppni í Fljótsdal
Austurlandsdeild Smalahunda-
félags Íslands hélt fjárhunda-
keppni sunnudaginn 30. október
á Eyrarlandi í Fljótsdal. Að venju
var keppt í þremur flokkum,
það er að segja unghundaflokki,
B-flokki og A-flokki.
Alls voru 12 hundar skráðir til
leiks. Sex hundar kepptu í A-flokki,
þrír í B-flokk og jafnmargir í
unghundaflokki. Í A- og B-flokki
var mest hægt að fá 100 stig en 90
stig í unghundaflokki.
Mót sem þessi eru ómetanleg
fyrir greinina og útbreiðslu hennar.
Þrátt fyrir að enn vanti talsvert
upp á að bændur nýti sér hunda
til smalamennsku eins og þekkist
erlendis þá fer þeim fjölgandi sem
ná góðum tökum á sínum hundum.
Best sést þetta á áhuga og þátttöku
í mótum sem þessum. Á Eyrarlandi
tóku tveir nýir keppendur þátt sem
lítill vafi er á að munu láta að sér
kveða á þessum vettvangi á komandi
árum. Allir sem eitt sinn hafa náð
góðum tökum á smalamennsku með
hundum eru sammála um að erfitt
eða jafnvel ómögulegt sé að snúa
aftur í gamla farið.
Keppnin heppnaðist með miklum
ágætum, enda gott veður og allar
aðstæður hinar ágætustu. Úrslit og
stig voru sem hér segir:
A-flokkur:
1. Elísabet Gunnarsdóttir og
Skotta frá Daðastöðum, 90 stig
2. Aðalsteinn Aðalsteinsson og
Doppa frá Húsatóftum, 84 stig
3. Aðalsteinn Aðalsteinsson og
Frigg frá Kýrholti, 80 stig
4. Marzibil Erlendsdóttir og Skutla
frá Skálholti, 74 stig
5. Agnar Ólafsson og Brook frá
Wales, 71 stig
6. Maríus Halldórsson og Sara frá
Bjarnstöðum, 62 stig
B-flokkur:
1. Marzibil Erlendsdóttir og Saga
frá Dalatanga, 73 stig
2. Eiður Gísli Guðmundsson og
Assa frá Eyrarlandi, 59 stig
3. Ingvi Gudmundsson og Skundi
frá Möðrufelli, 58 stig
Unghundaf1okkur:
1. Þorvarður Ingimarsson og Spaði
frá Eyrarlandi, 74 stig
2. Maríus Halldórsson og Elsa frá
Halldórsstöðum, 72 stig
3. Marzibil Erlendsdóttir og Rotti
frá Sauðanesi, 62 stig
Austurlandsdeildin vill koma
þökkum á framfæri til styrktaraðila
keppninnar sem voru Jötunn Vélar,
Fóðurblandan og Landstólpi en
glæsilegir vinningar mótsins voru
í þeirra boði.
Einnig fær Lárus Sigurðsson frá
Gilsá sérstakar þakkir en hann sá um
dómgæslu á mótinu.
/AJH
Varahlutir fyrir ámoksturstæki
Varahlutir í Trima og Alö Quicke ámoksturstæki. Einnig stjórnbarkar, suðufestingar ofl.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Ingvi Guðmundsson og Skundi frá Möðrufelli að reka í réttina. Myndir / Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson