Bændablaðið - 17.11.2016, Page 28

Bændablaðið - 17.11.2016, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Austurlandsdeild Smalahundafélags Íslands: Smalahundakeppni í Fljótsdal Austurlandsdeild Smalahunda- félags Íslands hélt fjárhunda- keppni sunnudaginn 30. október á Eyrarlandi í Fljótsdal. Að venju var keppt í þremur flokkum, það er að segja unghundaflokki, B-flokki og A-flokki. Alls voru 12 hundar skráðir til leiks. Sex hundar kepptu í A-flokki, þrír í B-flokk og jafnmargir í unghundaflokki. Í A- og B-flokki var mest hægt að fá 100 stig en 90 stig í unghundaflokki. Mót sem þessi eru ómetanleg fyrir greinina og útbreiðslu hennar. Þrátt fyrir að enn vanti talsvert upp á að bændur nýti sér hunda til smalamennsku eins og þekkist erlendis þá fer þeim fjölgandi sem ná góðum tökum á sínum hundum. Best sést þetta á áhuga og þátttöku í mótum sem þessum. Á Eyrarlandi tóku tveir nýir keppendur þátt sem lítill vafi er á að munu láta að sér kveða á þessum vettvangi á komandi árum. Allir sem eitt sinn hafa náð góðum tökum á smalamennsku með hundum eru sammála um að erfitt eða jafnvel ómögulegt sé að snúa aftur í gamla farið. Keppnin heppnaðist með miklum ágætum, enda gott veður og allar aðstæður hinar ágætustu. Úrslit og stig voru sem hér segir: A-flokkur: 1. Elísabet Gunnarsdóttir og Skotta frá Daðastöðum, 90 stig 2. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Doppa frá Húsatóftum, 84 stig 3. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Frigg frá Kýrholti, 80 stig 4. Marzibil Erlendsdóttir og Skutla frá Skálholti, 74 stig 5. Agnar Ólafsson og Brook frá Wales, 71 stig 6. Maríus Halldórsson og Sara frá Bjarnstöðum, 62 stig B-flokkur: 1. Marzibil Erlendsdóttir og Saga frá Dalatanga, 73 stig 2. Eiður Gísli Guðmundsson og Assa frá Eyrarlandi, 59 stig 3. Ingvi Gudmundsson og Skundi frá Möðrufelli, 58 stig Unghundaf1okkur: 1. Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi, 74 stig 2. Maríus Halldórsson og Elsa frá Halldórsstöðum, 72 stig 3. Marzibil Erlendsdóttir og Rotti frá Sauðanesi, 62 stig Austurlandsdeildin vill koma þökkum á framfæri til styrktaraðila keppninnar sem voru Jötunn Vélar, Fóðurblandan og Landstólpi en glæsilegir vinningar mótsins voru í þeirra boði. Einnig fær Lárus Sigurðsson frá Gilsá sérstakar þakkir en hann sá um dómgæslu á mótinu. /AJH Varahlutir fyrir ámoksturstæki Varahlutir í Trima og Alö Quicke ámoksturstæki. Einnig stjórnbarkar, suðufestingar ofl. Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Ingvi Guðmundsson og Skundi frá Möðrufelli að reka í réttina. Myndir / Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.