Bændablaðið - 17.11.2016, Page 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Gréta Berg myndlistarmaður er
með sýningu á verkum sínum í
Almars bakaríi í Hveragerði um
þessar mundir.
Sýning Grétu að þessu sinni er
í Almars bakaríi að Sunnumörk
2 í Hveragerði og stendur fram
að áramótum. Gréta hefur haldið
fjölda einka- og samsýninga í
gegnum árin.
Síðastliðið sumar stóð hún
fyrir námskeiði á Sólheimum
í Grímsnesi sem hún kallaði
Vedalist. Að sögn Grétu tengdist
námskeiðið því að láta flæða frá
hjartanu án þess að ákveða með
hugarorkunni hvert ferðinni er
heitið. Gréta segir að slíkt flæði
sé ótrúlega skemmtilegt, heillandi
og uppskeran oft skrautleg. /VH
Massey Ferguson 5600
Lipur og eyðslugrannur vinnuþjarkur
Það er ekki að ástæðulausu að Massey Ferguson er ein mest selda dráttarvél undanfarinna ára
8.630.000
með ámoksturstækjum
Kr. 10.701.200 m. vsk.
5610 (105 hö). Verð frá kr. án vsk
10.060.000
með ámoksturstækjum
Kr. 12.474.400 m. vsk.
5613 (130 hö). Verð frá kr. án vsk
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Feðgar á ferð eru skemmtilegir
þættir sem sýndir voru á Stöð 2
sumarið 2015 og sumarið 2016,
alls tuttugu þættir.
Í þáttunum heimsækja
þeir feðgar, Magnús Hlynur
Hreiðarsson fréttamaður og
Fannar Freyr Magnússon jákvætt
og skemmtilegt fólk á Suðurlandi,
Suðurnesjum, Vesturlandi og
höfuðborgarsvæðinu. Fólkið er
á öllum aldri og hefur frá mörgu
skemmtilegu að segja. Jákvæðni og
lífsgleði er mottó þáttanna. Nú gefst
öllum tækifæri á að sjá þættina, ekki
síst þeim sem eru ekki áskrifendur
á Stöð 2 og misstu því af þáttunum.
Í þáttunum eru 16 systkinin
frá Kjóastöðum í Biskupstungum
m.a. heimsótt, 80 ára afmæli Björns
Sigurðssonar, bónda í Úthlíð, er gerð
góð skil. Farið er í sauðburð á Skarð
í Landsveit, Guðni Guðmundsson,
dósasafnari á Þverlæk í Holtum,
er heimsóttur, skrýtnustu hundar
landsins eru skoðaðir. Þá er
farið í sjósund á Akranes, frábær
tónlistarfjölskylda í Borgarnesi
er heimsótt, skeiðaspilari í
Keflavík fer á kostum og tekið er
hús á Þórði Tómassyni, 95 ára, í
Skógum. Einnig er 9 ára undrabarn
í píanóleik heimsótt og einn þáttur
er um þá staðreynd að ekkert kynlíf
er á himnum, svo eitthvað sé nefnt
um efnistök þáttanna.
Hægt er að panta DVD-diskana
á heimasíðunni www.fedgaraferd.
is og þeir eru líka seldir í Krónunni
í Lindarhverfinu í Kópavogi og í
Krónunni á Selfossi.
Feðgar á ferð
á tveimur
DVD-diskum
Feðgarnir Magnús Hlynur Hreiðars-
son og Fannar Freyr eru nú komnir
með þætti sína á tvo DVD-diska í
sama hulstrinu. Þeir segja diskana
nema 3.500 krónur í gegnum heima-
síðuna + sendingarkostnaður á www.
fedgaraferd.is
MENNING&LISTIR
„Hamingjustaðir
í flæðilist“
Skútuvogi 11 www.neyd.is s: 510 8888
Opið alla virka daga 8-18 laugardaga 10-14
Vantar
Hurðapumpur