Bændablaðið - 17.11.2016, Page 42

Bændablaðið - 17.11.2016, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Júgurbólga í mjólkurkúm er langalgengasti sjúkdómurinn í mjólkurframleiðslunni og veldur bændum miklum búsifjum bæði vegna kostnaðar við meðhöndlun, afurðataps og fleiri þátta. Margar rannsóknir hafa verið gerðar víða um heim á kostnaðarþáttum sem tengjast júgurbólgu og má ætla að árlegt tap bænda vegna sjúkdómsins sé að jafnaði í kringum 10% af verðmætum mjólkurfram- leiðslunnar. Þetta getur þó verið æði misjafnt á milli búa og víða má ætla að þetta tap sé langtum meira. Frumutala mjólkur Frumutala mjólkur er líklega algengasti mælikvarði á júgurheilbrigðisástand kúabúa í dag enda mælir frumutalan fjölda þekjufruma og hvítra blóðkorna í mjólk. Hvítum blóðkornum fjölgar verulega þegar bólga eða bólgubreytingar í júgurvef verða af völdum sýkla. Þessi aðferð við gæðaeftirlit mjólkur hefur verið notuð í rúma hálfa öld og eru flest lönd með viðmið um heimilaðan hámarks- fjölda af frumum í hverjum millilítra mjólkur, eigi að nýta hana til manneldis. Í Evrópu á þriggja mánaða fa ldmeðal ta l f rumutölu tankmjólkur að vera lægra en 400 þúsund/ml en margar afurðastöðvar hafa mun lægra viðmið fyrir úrvalsmjólk líkt og þekkist hér á landi, þar sem einn af grundvöllum úrvalsmjólkurgreiðslu er að faldmeðaltal frumutölu fjögurra mælinga innan mánaðar sé 200 þúsund/ml eða lægra. Þó svo að margar afurðastöðvar miði einmitt við 200 þúsund/ml fyrir úrvalsmjólkurálag þá eru nokkrar sem greiða enn betur fyrir enn frumulægri mjólk. Þannig greiðir t.d. ein dönsk afurðastöð, Them Ost, úrvalsmjólkurálag niður í 100 þúsund frumur/ml. Them Ost, sem er sérhæfð afurðastöð í ostavinnslu, borgar aukið álag í 100 þrepum frá 200 þúsund frumum/ ml niður í 100 þúsund frumur/ml. Þannig fá innleggjendur betur og betur greitt fyrir mjólkina eftir því sem frumutalan verður lægri. Þetta hefur gert það að verkum að innlögð mjólk til afurðastöðvarinnar hefur tekið miklum breytingum og fyrir vikið hefur hráefnið sem unnið er með batnað til muna, svo mikið að hægt hefur verið að breyta vinnslunni og fá enn meiri arðsemi með mjólkurvinnslunni. Framlegðar- aukningin hefur með öðrum orðum greitt fyrir úrvalsmjólkurálagið. Hvað er há frumutala tankmjólkur? Undanfarna áratugi hefur þekking á frumutölu mjólkur og sýkingum í júgurvef tekið miklum framförum. Má nefna sem dæmi að fyrir um aldarfjórðungi var oft miðað við að væri frumutala einstaks júgurhluta hærri en 300 þúsund, þá væri um júgurbólgu að ræða. Í dag miða flest lönd við helmingi lægra viðmið þ.e. mælist kýrsýni með meira en 150 þúsund frumur/ml þá sé kýrin með sýkingu. Sé frumutala einstakra kúa hærri hafa rannsóknir sýnt að það dregur úr afurðaseminni að jafnaði auk þess sem t.d. dönsk rannsókn frá þessu ári sýndi að þau bú sem eru með lægri frumutölu hafa að jafnaði betri afkomu en þau sem hærri eru. Líkleg skýring felst í mun lægri tíðni á dulinni júgurbólgu en það er júgurbólgutilfelli sem ekki valda sýnilegum einkennum júgurbólgu. Af þessu leiðir að sé tankmeðaltalið hærra en 150 þúsund/ml þá ætti að leita leiða til þess að ná tökum á ástandinu, og það er alltaf hægt! Hvað er til ráða? Sé frumutala tankmjólkur hærri en 150 þúsund/ml þarf að skoða kýrsýnin vel og skálaprófa allar frumuháar kýr til þess að komast að því hvort tilfallandi hækkun hafi orðið á kýrsýnatökudegi eða hvort um raunverulega sýkingu er að ræða. Þá þarf alltaf að meta aðstæðurnar enda getur frumutala hækkað eftir því sem líður á mjaltaskeiðið auk þess sem frumutala hækkar með hækkandi aldri kúa svo dæmi sé tekið. Svari skálaprófið mælum við alltaf með því að erfðaefnisgreina kýrsýnin (PCR greina) enda þarf að vita nákvæmlega hvaða sýkill er að valda vandræðum í hverju tilfelli fyrir sig, enda eru viðbrögðin afar ólík eftir því hvaða sýklar eru að herja á kýrnar hverju sinni og eiga bændur alltaf að ráðfæra sig við sína dýralækna og mjólkurgæðaráðgjafa um hvernig eigi að bregðast við. Gróflega má flokka sýklana þannig að sé Staphylococcus aureus að valda vandræðum, er ástæðan oft vanstilling eða röng uppsetning mjaltatækja/mjaltaþjóna eða röng vinnubrögð við mjaltir/umhirðu mjaltaþjónanna. Sé Streptococcus uberis að valda vanda, eru kýrnar oftast of óhreinar og þarf þá oft að gera átak í bættum vinnubrögðum á búinu. Rétt er að taka fram að þegar sýkingarvandinn á rætur sínar að rekja í umhverfi kúnna er lausnin ekki að bera sótthreinsandi efni í tíma og ótíma á legusvæði kúnna. Skítur er og verður skítur þó svo að það sé búið að hella yfir hann sótthreinsandi efni. Skít þarf að hreinsa frá kúm oft á dag og halda honum frá kúnum! Sé E. coli að valda vanda er oft um samspilsþætti að ræða; oft skítugt legusvæði kúnna ásamt neikvæðu orkujafnvægi sem gerir ónæmiskerfi kúnna erfitt fyrir. Ef Klebsiella er vandamálið er reynsla okkar í Danmörku sú að oftast megi finna skýringuna í menguðu sagi eða spæni. Ef um kóagúlasa neikvæða stafylokokka er að ræða er oft um allt of hátt hlutfall af dulinni júgurbólgu að ræða í hjörðinni og er þá oftast horft til þess að meðhöndla í geldstöðunni (sjá síðar). Þó svo að alltaf sé mælt með því að gera sérstaka aðgerðaráætlun fyrir hvert bú, byggt á erfðaefnis- greiningu á sýklum í mjólk, má heilt yfir gefa hér nokkur almenn ráð: 1. Yfirfara mjaltatækin og vinnubrögð við mjaltir R e g l u b u n d i ð v i ð h a l d mjaltatækjanna er afar mikilvægt en við sjáum allt of oft ranglega stillt mjaltatæki og/eða bilaða tækni sem veldur skaða við mjaltir. Í Danmörku eru óháðir ráðgjafar sem starfa m.a. við það að gera úttektir á mjaltatækjum og mjaltaþjónum og þrátt fyrir þjónustusamninga sem bændur gera oft við fyrirtækin sem selja mjaltatækin þá finnast eiginlega ótrúlega oft bilanir eða rangar stillingar. Vísbendingar um rangar stillingar geta verið t.d. ef hefta þarf kýr fyrir mjaltir en við miðum almennt við að ef fleiri en 1–2 kýr af hverjum 100 mjólkandi spraka af sér tækjunum, þá sé eitthvað að. Þetta sést einnig á búum með mjaltaþjóna sé hlutfall ólokinna mjalta of hátt. Hefting kúa fyrir mjaltir er oft afleiðing rangrar virkni mjaltatækninnar eða rangra vinnubragða við mjaltir, en getur vissulega átt sér stoð í geðstirð sumra íslenskra kúa. Algengustu tæknilegu mistökin sem við finnum, bæði á hefðbundnum kerfum og mjaltaþjónum, eru sogskiptar sem ganga ekki í takt eða hafa rangt sogskiptihlutfall, óhreinindi í soglögnum sem heftir hreyfingu lofts og þar með veldur vanstillingu og óþéttir mjaltakrossar sem gerir það að verkum að þegar tækin eru tekin af þá fellur sogið allt of hratt. Önnur algeng mistök sem finnast eru ranglega staðsettar mjólkurlagnir og/eða rangur halli á mjólkurrörum, of litlar sogvélar miðað við þarfir kerfanna, vanstillir sogjafnar, lélegt viðhald frátökufötu og ranglega stilltir aftakarar. Varðandi vinnubrögð við mjaltir er erfitt að gefa upp eina staðlaða mynd en líklega eru algengustu mistökin þau að kýrnar eru ekki undirbúnar rétt fyrir mjaltir og selja því ekki nógu vel. Mjaltatíminn eykst og líkur á tómmjöltum einstakra júgurhluta aukast. Þá á alltaf að passa upp á hreinlæti við mjaltirnar og forðast að bera möguleg smitefni á milli kúnna, annað hvort með höndum, ermum eða mjaltatækjunum sjálfum. Reglubundin þrif þegar á mjöltum stendur er eðlilegur vinnuliður við mjaltir og sé mjólkað með mjaltaþjóni þarf að þrífa arm hans nokkrum sinnum á dag eigi vel að vera. 2. Þrífa spena með sápu og sótthreinsa Það kemur engum á óvart að Er frumutalan of há? Utan úr heimi Brugðist við matarskorti í stríðshrjáðri Aleppoborg: Bændur á svæðinu reyna að tryggja fæðuöryggi Þrátt fyrir hörmungar stríðsátaka í borginni Aleppo í Sýrlandi, sem hart er nú sótt að, neita bændur á svæðinu að gefast upp. Reyna þeir af veikum mætti að tryggja fæðuöryggi í borginni. Frá þessu var greint á fréttastöðinni Aljazeera 17. október síðastliðinn. Þar segir að í miðjum hörmungum stríðsátakanna reyni íbúarnir að komast af í daglegu lífi við afar erfiðar aðstæður. Sprengjum hafi rignt yfir borgina þar sem heimili fólks eru sprengd í loft upp. Fæðuskortur hafi stöðugt farið versnandi, en þar hafi bóndinn Salim Atrache séð tækifæri. Á 37 hektara landi í útjaðri borgarinnar hefur Atrache og sjálfboðaliðar Rauða liðsins svokallaða (Red Team), unnið við ræktun á kartöflum, gúrkum, kúrbít, eggaldinum, steinselju, spínati og fleiri tegundum. Telur Atrache að með uppskerunni sé hægt að fæða íbúa austurhluta borgarinnar. Margvíslegur vandi steðjar þó að, m.a. við að útvega eldsneyti til að knýja nauðsynleg landbúnaðartæki. Borgarbúar sjálfir hafa reyndar líka reynt að bjarga sér með því að rækta eigið grænmeti í húsagörðum og halda húsdýr sér til matar. Í þessari stríðshrjáðu borg eru matvæli ein verðmætasta viðskiptavaran. Afar lítið framboð hefur sprengt upp verð á matvælum í borginni. Að mati Atrache hafa sum matvæli tífaldast í verði og því séu viðskiptatækifæri fyrir bændur. Hann segist þó ekki ætla að selja uppskeruna á hærra verði en sem dugar fyrir kostnaði. Hann leggur ríka áherslu á að það sem hann og sjálfboðaliðarnir séu að rækta komist ekki í hendur stjórnarhersins, heldur sé það eingöngu ætlað íbúum í borginni og þeim sem eru á hverfissjúkrahúsunum. /HKr. Skálapróf er líklega einfaldasta og auðveldasta aðferðin sem þekkt er í dag Getum við orðið að liði? – Við seljum m.a. Frábærar vélar fyrir m.a. þvottahús, hótel og gistiheimili FR U M - w w w .f ru m .is Eigum hágæða þýskt hótellín

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.