Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Sauðfjársæðingar 2016 – Mikilvægi sauðfjársæðinga Óhætt er að fullyrða að einn áhrifamesti þátturinn í sauð fjárkynbótum hér á landi síðustu áratugina séu sauðfjársæðingarnar. Þær gefa færi á aukinni notkun á reyndum úrvalsgripum en notkun á þeim í ákveðnum mæli hámarkar erfðaframfarirnar. Rannsóknir hafa sýnt að til þess að hámarka erfðaframfarir í íslenskri sauðfjárrækt væri æskilegt að um 15% af ánum væru sæddar, 35% fái við reyndum heimahrútum og 50% fái við lambhrútum. Allt byggir þetta jú á því að val hrúta á öllum stigum heppnist sem skyldi en þar höfum við nokkur öflug hjálpartæki. Má þar nefna ómmælingarnar, líflambadómana, EUROP matið og kynbótamatið. Augljós dæmi eru um ávinning sæðinganna. Kemur það m.a. fram í því að ef borin eru saman þau bú sem skara framúr í gæðum og magni afurða við lakari bú að sæðingar eru mun meira stundaðar af fyrrnefnda hópnum. Eins ef má rekja framfarir í einstaka eiginleikum að stærstum hluta til stöðvarhrútanna. Þannig spilaði t.d. val og notkun sæðingastöðvahrúta stóran þátt í að góður árangur hefur náðst á tiltölulega stuttum tíma í ræktun fyrir hóflegri fitusöfnun. Við val á sæðishrútum eru menn hvattir til að nota fleiri hrúta en færri og vera duglegir að prófa þá nýju hrúta sem nú koma inn á stöðvarnar. Hrútarnir standa vissulega fyrir mismunandi kosti og henta því misjafnlega fyrir einstök bú, en allir eiga þeir að hafa eitthvað til brunns að bera sem úrvalskynbótagripir. Hrútavalið 2016 Í þeirri hrútaskrá sem bændur munu fá í hendur á næstu dögum verður kynntur sá öflugi hrútakostur sem í boði verður á komandi fengitíð. Reynt er að hafa úrvalið fjölbreytt, því hluti af ræktunarmarkmiðinu er að varðveita fjölbreytileikann m.t.t. þátta eins og hornalags, lita og ullargæða. Í hrútaskrá má finna yfirburðaeinstaklinga fyrir ákveðna eiginleika en jafnframt fjölgar stöðugt hrútum sem sameina ólíka kosti og telja má sem alhliða kynbótahrúta. Í skránni eru 48 hrútar. Hyrndir hrútar eru 31 og þar af 12 nýir. Kollóttir hrútar eru 13 og þar af 5 nýir. Þetta er sami fjöldi nýrra hrúta og teknir voru inn á síðasta ári í þessa flokka. Áfram er á stöð feldfjárhrúturinn Lobbi 09-939. Þá eru tveir forystuhrútar í hópnum og annar þeirra er nýr á stöð (Gils 13-976). Síðan var tekinn inn glæsilegur ferhyrndur hrútur, Alur 13-975 frá Þúfnavöllum 2. Í töflu 1 má sjá lista yfir hrútakostinn og staðsetningu þeirra í vetur, en hluti þeirra dvelur á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands í Þorleifskoti og hluti þeirra á Sauðfjársæðingastöð Vesturlands í Borgarnesi. Nýju hrútarnir eru listaðir upp á eftir reyndu hrútunum í töflunni og eru skáletraðir. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Eyþór Einarsson ábyrgðamaður í sauðfjárrækt ee@rml.is Búnaðarsamtök Vesturlands Mán. 21. nóv. Hvanneyri kl. 20:30 Búnaðarsamtök Vesturlands Þri. 22. nóv. Grunnskólinn Reykhólum kl. 14:00 Búnaðarsamtök Vesturlands Þri. 22. nóv. Breiðabliki, Snæfellsnesi kl. 20:30 Búnaðarsamtök Vesturlands Mið. 23. nóv. Holt, Önundarfirði kl. 17:30 Búnaðarsamtök Vesturlands Fim. 24. nóv. Dalabúð, Búðardal kl. 20:00 Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Mán. 28. nóv. Sævangur, Ströndum kl. 13:30 Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Mán. 28. nóv. Ásbyrgi, Miðfirði Kl. 20:00 Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Þri. 29. nóv. Sal BHS Húnabr. 13, Blönduósi kl. 13:30 Búnaðarsamband Skagafjarðar Fim. 24. nóv. Tjarnarbær, Sauðárkróki kl. 20:00 Búnaðarsamband Eyjafjarðar Mið. 30. nóv. Hlíðarbæ kl. 20:00 Búnaðarsamband S-Þingeyinga Þri. 29. nóv. Breiðamýri kl. 20:00 Búnaðarsamband N-Þingeyinga Þri. 29. nóv. Svalbarði, kl. 13:00 Búnaðarsamband Austurlands Mán. 28. nóv. Breiðdalsvík, Hótel Bláfell, kl: 15:00 Búnaðarsamband Austurlands Mán. 28. nóv. Hótel Valaskjálf (Þingmúli), Egilsstöðum kl. 20:00 Búnaðarsamband Suðurlands Mán. 21. nóv. Hótel Klaustur kl. 13:00 Búnaðarsamband Suðurlands Mán. 21. nóv. Smyrlabjörg kl. 20:00 Búnaðarsamband Suðurlands Þri. 22. nóv. Smáratún, Fljótshlíð kl. 14:00 Búnaðarsamband Suðurlands Þri. 22. nóv. Þingborg kl. 20:00 Hyrndir hrútar: Hyrndir hrútar: Hængur 10-903 frá Geirmundarstöðum, Skarðsströnd Borkó 11-946 frá Bæ, Árneshreppi Salamon 10-906 frá Hömrum, Grundarfirði Bekri 12-911 frá Hesti, Borgarfirði Höfðingi 10-919 frá Leiðólfsstöðum, Laxárdal Jónas 12-949 frá Miðgarði, Stafholtstungum Kölski 10-920 frá Svínafelli (Víðihlíð), Örævasveit Kjarni 13-927 frá Brúnastöðum, Fljótum Kornelíus 10-945 frá Stóru-Tjörnum, Ljósavatnsskarði Burkni 13-951 frá Mýrum 2, Hrútafirði Drífandi 11-895 frá Hesti, Borgarfirði Dreki 13-953 frá Hriflu, Þingeyjarsveit Kraftur 11-947 frá Hagalandi, Þistilfirði Grímur 14-955 frá Ytri-Skógum, Eyjafjöllum Hrauni 12-948 frá Hjarðarfelli, Snæfellsnesi Malli 12-960 frá Bjarteyjarsandi, Hvalfjarðarsveit Kaldi 12-950 frá Oddstöðum, Lundarreykjardal Stólpi 13-963 frá Hjarðarfelli, Snæfellsnesi Lækur 13-928 frá Ytri-Skógum, Eyjafjöllum Toppur 13-964 frá Kaldbak, Rangárvöllum Börkur 13-952 frá Efri-Fitjum, Fitjárdal Kústur 14-965 frá Garði, Þistilfirði Tangi 13-954 frá Klifmýri, Skarðsströnd Vinur 14-966 frá Haukatungu, Snæfellsnesi Gróði 11-958 frá Hólsgerði, Eyjafirði Tinni 15-968 frá Ytri-Skógum, Eyjafjöllum Hörður 11-959 frá Gerði, Suðursveit Alur 13-975 frá Þúfnavöllum 2, Hörgárdal - Ferhyrndur Bergur 13-961 frá Bergsstöðum, Miðfirði Ungi 13-938 frá Sandfellshaga 1, Öxarfirði – Forystuhrútur Klettur 13-962 frá Borgarfelli, Skaftártungu Bjartur 15-967 frá Ytri-Skógum, Eyjafjöllum Hroki 15-969 frá Hesti, Borgarfirði Gils 13-976 frá Klukkufelli, Gilsfirði - Forystuhrútur Kollóttir hrútar: Kollóttir hrútar: Roði 10-897 frá Melum 1, Árneshreppi Baugur 10-889 frá Efstu-Grund, Eyjafjöllum Krapi 13-940 frá Innri-Múla, Barðaströnd Hnallur 12-934 frá Broddanesi 1, Kollafirði Serkur 13-941 frá Hjarðarfelli, Snæfellsnesi Voði 13-943 frá Heydalsá, Steingrímsfirði Magni 13-944 frá Heydalsá, Steingrímsfirði Brúsi 12-970 frá Kollsá, Hrútafirði Þoku-Hreinn 13-937 frá Heydalsá, Steingrímsfirði Ebiti 13-971 frá Melum 1, Árneshreppi Fannar 14-972 frá Heydalsá, Steingrímsfirði Plútó 14-973 frá Heydalsá, Steingrímsfirði Lobbi 09-939 frá Melhól, Meðallandi - Feldfjárhrútur Spessi 14-974 frá Melum 1, Árneshreppi Hrútaskráin er væntanleg úr prentun mánudaginn 21. nóvember. Ritstjóri hennar er, líkt og undanfarin ár, Guðmundur Jóhannesson en textar um hrúta eru ritaðir af sauðfjárráðunautum RML. Í kjölfar útgáfunnar hefst röð kynningarfunda á vegum búnaðarsambandanna vítt og breitt um landið og þar verður m.a. skránni dreift. Á fundunum munu sauðfjárráðunautar RML lýsa kostum hrútanna og ræða ræktunarstarfið. Yfirlit yfir fundina er að finna í töflu 2. Vonandi sjá sem flestir áhugamenn um sauðfjárrækt sér fært að mæta og bændur hvattir til að vera duglegir að nýta sér kosti sæðinganna til að kynbæta fé sitt. „Hrútafundir“ og hrútaskrá HRÚTASKRÁ Sauðfjársæðingastöð Vesturlands Sauðfjársæðingastöð Suðurlands 2016 - 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.