Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Í apríl 2012 keyptum við jörðina af Pálmari og Sigurbjörgu og fluttum á Egg. Þá hafði kúabúskap hér verið hætt. Við tókum fjósið í gegn og keyptum kýr og vorum byrjuð að mjólka um miðjan maí. Davíð er frá Réttarholti í Akrahreppi en þar er kúabúskapur, en Embla er frá Grásteinum í Mosfellsdal þar sem garðplöntustöð var. Á Egg er básafjós, byggt 1977– 1978 með 36 básum og kálfastíum og áfastri 300 fermetra hlöðu. Við breyttum gömlu fjárhúsi í 10 hesta hús í fyrra en einnig höfum við byggt tvö 40 fm gróðurhús. Við höfum verið í skógrækt síðan 2013 en við höfum plantað nokkrum km af skjólbeltum auk um 30.000 plöntum í skóg. Það er þó nóg eftir því fyrirhugaður er 36 ha skógur. Býli: Egg. Staðsett í sveit: Í Hegranesi í Skagafirði. Ábúendur: Davíð Logi Jónsson og Embla Dóra Björnsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum eina dóttur, Auði Fanneyju Davíðsdóttur, köttinn Óreó og Border Collie-inn Glímu. Stærð jarðar? 253 hektarar. Gerð bús? Kúabú. Fjöldi búfjár og tegundir? 36 mjólkurkýr og auk þess u.þ.b. 60 kvígur í uppeldi. 4 reiðhross og 20 stóðmerar. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Allir dagar byrja á mjöltum um sjöleytið. Við gefum kúnum og kálfunum aftur milli 1 og 2 á daginn og svo eru kvöldmjaltir aftur um klukkan 6 á kvöldin. Milli mála gerum við svo ýmislegt en það er að mestu árstíðabundið. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Það fer eftir því hvort þú talar við Davíð eða Emblu. Davíð finnst heyskapur skemmtilegastur en Emblu ekki. Embla er meira fyrir garðyrkju, jarðrækt, skógrækt, mjaltir og útreiðar. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Vonandi stærri og meiri. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Það er nauðsynlegt að halda uppi málefnum bænda en okkur finnst kannski vanta skýrari stefnu til langs tíma. Það mæðir mikið á kerfinu núna og mikilvægt að vel takist til. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Það er ómögulegt að segja. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Skyr, fyrst og fremst og grænmeti ef það er markaðssett rétt. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Ostur, smjör og rifsberjasulta. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Grillað folaldakjöt og grænmeti. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það er náttúrlega eftirminnilegt að hefja búskap og setja fyrstu kýrnar inn í fjósið, en líklega er eftirminnilegast samt þegar kviknaði í fjósinu að næturlagi 2013. Sem betur fer urðu nágrannar okkar varir við reykinn og vöktu okkur. Það hefði getað farið mun verr. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Kanilsnúðar, kransatoppar og Snickerskaka Hér er uppskrift að sígildum snúðum. Hinum fullkomna snúð er náð með því að baka hann í formi því þá verður fyllingin að karmellu í forminu og snúðarnir hreint sælgæti. Kanilsnúðar bakaðir í muffinsformi um 12 stykki Deigið › 5 dl köld mjólk › 50 g ger › 1 stórt egg › 1 kg af hveiti › 150 g af sykri › 10 g af salti sjávar › 15 g kardimommur muldar eða smá sletta af kardimommudropum › 150 g smjör Fylling › 200 g mjúkt smjör › 200 g sykur › 20 g mulinn kanill Þar að auki › 1 egg til að pensla fyrir bakstur › smá sykur til að strá yfir fyrir bakstur Hellið kaldri mjólk í skál og hrærið saman við gerið. Bætið eggjum, hveiti, sykur, salt og kardimommum saman við og hnoðið deigið þar til það er alveg slétt og gljáandi og losnar frá skálinni. Það tekur um 7–8 mínútur. Best er að nota hrærivél, setja hana á krók eða spaða og hræra á litlum hraða. Skerið smjörið í litla teninga og setjið þá í deigið, sem verður nú hnoðað þar til það er slétt og glansandi. Það tekur um 7–8 mínútur. Leyfið deiginu svo að hvíla undir klút í 1½ klukkustund þangað til það hefur stækkað um helming. Sláið deigið niður og látið kólna í kæli í að minnsta kosti klukkustund. Meðan deigið hvílir er hrært í fyllinguna með því að blanda, smjöri, sykri og kanil saman. Fletjið deigið út á hveitistráðu yfirborði og rúllið út í stykki sem eru um 30 sinnum 60 sentimetrar að stærð. Smyrjið fyllingunni jafnt ofan á deigið. Rúllið út og skerið í sneiðar, setjið í smurð form, til dæmis silikon eða ál muffinsform. Látið hefast á heitum stað þangað til snúðarnir hafa tvöfaldast í stærð. Penslið með eggi og bakið við 200 gráður í um 12–14 mínútur (það má strá kanilsykri yfir fyrir bakstur til að fá stökka skel á toppinn). Kransatoppar › 500 g gott marsípan (að minnsta kosti 60 prósent möndlur) › 200 g sykur › ½ bolli eggjahvítur Skiptið marsípaninu í litla bita og setjið í hrærivél. Hrærið sykur og eggjahvítur saman í skál. Hellið sykurblöndunni yfir marsípanblönduna og hrærið saman. Hitið ofninn í 190 gráður. Mótið kransabitana eins og óskað er og bakið þar til þeir eru orðnir gulbrúnir, eða um 10 mínútur. Gæti tekið minni tíma svo passið upp á að bitarnir séu mjúkir. Látið standa í klukkutíma áður en kransabitarnir eru borðaðir. Svo er hægt að dýfa þeim í súkkulaði, eða gera ýmis bragðafbrigði; til dæmis með berjum eða eplum. Það má líka fylla með hnetum eða pistasíu hnetumassa. Kransatopparnir geymast í nokkra mánuði í frysti. Snickerskaka 20 stykki Hér er lúxusútgáfa af sígildu Snickers, með hnetu smjöri og ríkulega húðað með mjólkur súkkulaði. Kökubotn › 240 g af mjúku smjöri › 160 g flórsykur › 60 g möndlumjöl eða fínt saxaðar möndlur › 2 meðalstór egg › korn af ½ vanillufræbelg eða 2 tsk. vanilludropar › 470 g af hveiti › 1 tsk. fínt salt Setjið smjör, flórsykur, möndlu- mjöl, egg, vanillufræ og 120 grömm af hveiti í hrærivélaskál og hrærið deigið saman með krók. Verið varkár og ofþeytið blönduna ekki. Bætið við restinni af hveitinu, um 350 g, og salti. Blandið hratt en vel saman. Skiptið deiginu í tvo jafna hluta og rúllið deigið út í 2,5 mm þykkt milli tveggja blaða af vaxpappír. Setjið það í kæli og látið deigið hvíla í að minnsta kosti klukkustund. Hitið ofninn í 180 gráður. Takið deigið úr kæli og setjið í form að eigin vali og gatið nokkrum sinnum með gaffli. Takið álpappír og pressið niður í bakstri með þurrkuðum baunum eða hrísgrjónum (má sleppa en þá gæti deigið lyfst aðeins upp við baksturinn). Bakið ljósbrúnt í nokkrar mínútur. Jarðhnetufylling › 150 g af hunangi › 100 g kókosfita › 60 g af smjöri › 600 g salthnetur › mjólkursúkkulaði til að hjúpa stykkin Hitið hunang og kókosfitu saman. Bræðið smjör og hellið því yfir blönduna. Saxið salthnetur og setjið í blönduna (spara smá fyrir skraut). Hellið öllu yfir botninn. kælið og skerið í 20 löng stykki. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og dýfið svo hverju stykki í eða smyrjið yfir og skerið svo í langa bita á eftir. Skreytið toppinn með hökkuðum salthnetum. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Egg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.