Bændablaðið - 17.11.2016, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Hafmeyjuteppi
HANNYRÐAHORNIÐ garn@garn.is
Hafmeyjuteppi hafa verið vinsæl
um nokkurt skeið og hafa yfirleitt
verið hekluð. Ég er mun meiri
prjónakona og ákvað í sumar
að prjóna svona teppi og hafa
múrsteinamunstur. Ég notaði
tækifærið til að mynda 9 ára
frænku mína þegar hún kom í
heimsókn frá Kaupmannahöfn,
með teppið ásamt því að sjá hvort
hún teldi að vel hefði tekist til hjá
mér.
Þetta teppi sló í gegn hjá Stínu
frænku og Aþenu ömmugulli og þær
voru alsælar og pöntuðu sér teppi
í sínum uppáhaldslitum. Auðvelt
er að stækka teppið með því að
fjölga lykkjum í uppfiti og prjóna
það lengra ef maður vill prjóna t.d.
fullorðinsteppi. Það er gaman að
segja frá því að Móri ömmugull
pantaði sér líka teppi og sagði hann
að það væri jú til Hafmeyjukóngur
svo þetta teppi er svo sannarlega ekki
bundið við kvenkynið eingöngu.
Stærðir: u.þ.b. 4-6 (7-11) 12-14 ára.
Garn: Kartopu Basak og Kartopu Kar-Sim.
(söluaðilar víða um land, sjá auglýsingu hér til
hliðar). Teppið kemur einnig fallega út í einum lit.
- Kartopu Basak, litur A: 3 (5) 7 dokkur
- Kartopu Kar-Sim, litur B: 2 (2) 3
dokkur
Prjónar: Hringprjónn 80 sm, nr 7-8 eða sú stærð
sem þarf til að prjónfesta í garðaprjóni, með
tvöföldum þræði, sé 13 lykkjur = 10 sm
Annað: 2 prjónamerki
Múrsteinamunstur: Munstrið er deilanlegt með
6 + 3 lykkjur. Óprjónuð lykkja er alltaf tekin eins
og prjóna eigi hana brugðið.
Umferðir 1-2 (með lit B): Prjónið slétt
Umferð 3 (með lit A): Prjónið 4 lykkjur slétt,
takið 1 lykkju óprjónaða *prjónið 5 lykkjur slétt,
takið 1 lykkju óprjónaða* Endurtakið frá *-* þar til
4 lykkjur eru eftir. Prjónið 4 lykkjur slétt
Umferð 4 (með lit A): Prjónið 4 lykkjur brugðið,
takið 1 lykkju óprjónaða, *prjónið 5 lykkjur
brugðið, takið 1 lykkju óprjónaða* Endurtakið
frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir. Prjónið 4 lykkjur
brugðið
Umferð 5 (með lit A): Prjónið eins og umferð 3
Umferð 6 (með lit A): Prjónið eins og umferð 4
Umferðir 7-8 ( með lit B): Prjónið slétt allar
lykkjur
Umferð 9 (með lit A): Prjónið 1 lykkju slétt, takið
1 lykkju óprjónaða * prjónið 5 lykkjur slétt, takið
1 lykkju óprjónaða* Endurtakið frá *-* þar til 1
lykkja er eftir. Prjónið 1 lykkju slétt
Umferð 10 (með lit A): Prjónið 1 lykkju brugðið,
takið 1 lykkju óprjónaða, *prjónið 5 lykkjur
brugðið, takið 1 lykkju óprjónaða* Endurtakið frá
*-* þar til 1 lykkja eru eftir. Prjónið 1 lykkju brugðið
Umferð 11 (með lit A): Prjónið eins og umferð 9
Umferð 12 (með lit A): Prjónið eins og umferð 10
Endurtakið þessar 12 umferðir þar til réttri lengd
er náð
Aðferð: Fyrstu 6 og síðustu 6 lykkjurnar eru alltaf
prjónaðar slétt og teljast ekki með í munstri.
Teppið er prjónað með tvöföldum þræði allan
tímann, ofan frá og niður, fram og til baka. Sporður
er prjónaður sér og saumaður á teppið í lokin.
Teppið: Fitjið upp með lit A 99 (111) 123 lykkjur
með tvöföldum þræði og prjónið 7 umferðir slétt
= 4 garðar (1. umferð er frá röngu). Prjónið nú
múrsteinamunstur þannig: 6 lykkjur garðaprjón
(kantur), munstur, 6 lykkjur garðaprjón (kantur).
Prjónið þar til teppið mælist 74 (90) 100 sm (eða
um 25 sm styttra en endanleg lengd teppisins á
að vera, án sporðs). Prjónið áfram eftir munstri
en nú hefjast úrtökur í hvorri hlið þannig: Prjónið
6 lykkjur slétt (kantur), 2 snúið slétt saman (eða
takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt
og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir), prjónið
samkvæmt munstri þar til 8 lykkjur eru eftir
af umferðinni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 6
lykkjur slétt (kantur). Takið úr þannig í 4. hverri
umferð 3 (3) 3 sinnum og síðan í 2. hverri
umferð 12 (12) 12 sinnum = 69 (81) 93 lykkjur
á prjóninum. Prjónið nú *1 lykkja slétt, 2 lykkjur
slétt saman* endurtakið frá *-* út umferðina .
Prjónið síðan stroff *1 slétt, 1 brugðin* um 8-10
sm. Fellið af allar lykkjur. Skiljið eftir langan
þráð til að sauma saman teppið að aftan um
25 sm upp.
Sporður
Sporðurinn er prjónaður fram og til baka og
mótaður með styttum umferðum. Þegar snúið er
við á miðju stykki er fyrsta lykkja tekin óprjónuð
af vinstri prjóni yfir á þann hægri, herðið lykkjuna
svo ekki myndist gat í hverjum viðsnúningi.
Fitjið upp 45 (50) 60 lykkjur og prjónið 2 umferðir
slétt = 1 garður. Prjónið *23 (26) 31 lykkjur
slétt, setjið prjónamerki, snúið við og prjónið
brugðið til baka. Prjónið 35 (40) 46 lykkjur
slétt, setjið prjónamerki, snúið við og prjónið
slétt til baka. Prjónið 2 umferðir slétt yfir allar
lykkjurnar 45 (50) 60* Endurtakið frá *-* 1 (1)
1 sinni enn. Nú hefjast úrtökur þannig: prjónið
2 lykkjur slétt saman í 4. hverri umferð, ásamt
því að halda áfram að prjóna eins og áður frá
*-* styttar umferðir, prjónamerki sýna hvar snúa
á við þar sem lykkjum að fyrsta prjónamerki
fækkar smátt og smátt. Haldið áfram þar til 26
(33) 38 lykkjur eru eftir á prjóninum prjónið
þá án úrtöku 2 garða (4 umferðir slétt) yfir
allar lykkjurnar. Nú byrjar útaukning og mótun
seinni helmings sporðsins, sem er í raun speglun
á fyrri helmingi hans. Aukið er út með því að
prjóna framan og aftan í fyrstu lykkju umferðar,
endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð þar til
45 (50) 60 lykkjur eru á prjóninum ásamt því
að prjóna styttar umferðir eins og áður. Fellið
af allar lykkjur.
Frágangur: Saumið saman teppið að aftan frá
stroffi og upp að umferð þar sem úrtaka byrjar á
teppinu. Saumið sporðinn neðan á stroffið neðst
á teppi og lokið um leið enda teppisins. Gangið
frá endum, þvoið teppið og leggið til þerris.
Prjónakveðja,
Mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is .
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
7 2 1 8
6 9 3
1 9 2 6 4 7
9 5 2
7 4 6 1
8 3 7
9 4 7 1 8 5
5 8 4
6 9 5 3
Þyngst
9 3 7
2 4
1 5
9 1 5
2 1 4 8 9
6 8 7
3 8
7 6
9 4 2
3 7 4
8 6
9 2 1
3 7 9 5
3 1
5 6 3 9
9 8 6
7 8
1 7 8
6 1 8 5
4
5 2
9 5
1 4 6
3 7
9 3
7
3 4 8 1
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Langar að flytja lögheimilið
mitt í tjaldvagninn
Hestar eru uppáhaldsdýrin hans
Ernis Daða. Þegar kemur að
hljómsveitum er það Amabadama.
Nafn: Ernir Daði Arnberg Sigurðsson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Borgarbyggð.
Skóli: Grunnskóli Borgarfjarðar
Hvanneyrardeild.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Þegar Solla kennari les
,,Varið ykkur á Valahelli“.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestar,
enda fer ég oft í reiðtúr með pabba og
afa.
Uppáhaldsmatur: Lax.
Uppáhaldshljómsveit: Amadabama.
Uppáhaldskvikmynd: Algjör Sveppi
og Gói bjargar málunum. Gói er
uppáhaldsleikarinn minn.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var
að labba með mömmu í leikskólann
á nærbolnum og ég var fjögurra ára.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég spila á gítar, æfi sund
og dans og er að fara að æfa körfubolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Leikari. Ég ákvað það
þegar ég var tveggja ára!
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur gert? Þegar ég giftist
bekkjarsystur minni í 1. bekk og við
héldum brúðkaupsveislu með gestum
og fengum flottar brúðkaupsgjafir.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Ég fór í tjaldvagninn með
fjölskyldunni minni sem ég elska.
Mig langar að flytja lögheimilið mitt
í tjaldvagninn.
Næst » Ernir Daði skorar á Óliver Orra
Bergmann, vin sinn úr Garðabænum.
Vantar þig íslenskan lopa?
Álafosslopi - Plötulopi - Léttlopi - Einband - Bulkylopi - Kambgarn
Heimasíðan gefjun.is
býður upp á lopa frá
Ístex á lægsta
fáanlega verði !
Sendum um allt land!