Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 55
biblian.is
Sálm. 18.7
Í angist minni
kallaði ég á Drottin,
til Guðs míns hrópaði
ég. Hann heyrði hróp
mitt í helgidómi
sínum, óp mitt náði
eyrum hans.
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB lyftara
Allar gerðir startara og alternatora
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
Renni og vélaverkstæði Hveragerði
- Heddplönun
- Heddþrýstiprufun
- Slípa ventla og ventlasæti
- Bora og hóna blokkir
- Vélasamsetningar
S. 646-5242 Austurmörk 14 810 Hveragerði
daggi@vortex.is facebook.com/daggiehf
Gunni s: 895-9054 - Maggi s: 852-7577
MÚRVERK
STEINSÖGUN
KJARNABORUN
OG ALMENN VERKTAKAVINNA
Bændasamtök Íslands boða hér með til atkvæðagreiðslu um
samkomulag um breytingar á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar
frá 19. febrúar 2016, sem undirritað var 11. janúar 2019.
Kosningarétt hafa félagsmenn í Bændasamtökum Íslands sem eru
jafnframt með virkt bú í sauðfjárræktarskýrsluhaldi. Þá hafa félagsmenn
í Landssamtökum sauðfjárbænda kosningarétt.
Atkvæðagreiðslan mun fara fram með rafrænum hætti og verður
aðgengileg á vef Bændasamtakanna - www.bondi.is.
Atkvæðagreiðslan stendur yfir frá kl. 12:00 á hádegi þann 25. febrúar
2019 til kl.12:00 á hádegi þann 4. mars 2019. Hægt er að kanna aðild
að kjörskrá í gegnum rafrænan aðgang.
Allar nánari upplýsingar um framkvæmd kosninganna eru að finna á
heimasíðu Bændasamtakanna - www.bondi.is.
Í kjörstjórn sitja Elías Blöndal Guðjónsson formaður, Guðbjörg
Jónsdóttir og Guðrún Vaka Steingrímsdóttir. Netfang kjörstjórnar er
kjorstjorn@bondi.is.
ATKVÆÐGREIÐSLA
MEÐAL SAUÐFJÁRBÆNDA
Bændasamtök Íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg,
107 Reykjavík
Bændablaðið
Smáauglýsingar.
5630300
Framsýn stéttarfélag um tillögur átakshóps í húsnæðismálum:
Ekki horft til vanda landsbyggðar
Framsýn stéttarfélag í
Norðurþingi hefur vakið athygli
á því að í nýlegum tillögum
átakshóps um aukið framboð
á íbúðum og aðgerðum til að
bæta stöðu á húsnæðismarkaði
er ekki sérstaklega horft til
vanda landsbyggðarinnar þar
sem húsnæðisskortur er víða
alvarlegt vandamál. Meira
jafnvægi hefði þurft að vera í
tillögum starfshópsins varðandi
úrbætur í húsnæðismálum
höfuðborgarsvæðisins og
landsbyggðarinnar.
„Því verður ekki á móti
mælt að vandinn er mikill á
höfuðborgarsvæðinu en hann er
einnig til staðar á landsbyggðinni,
því mega menn ekki gleyma í
umræðunni,“ segir í umfjöllun
um málið á heimasíðu Framsýnar.
Fram kemur að Framsýn
stéttarfélag hafi lengi barist
fyrir því að almenningur í
landinu, ekki síst verkafólk,
hafi möguleika á því að eignast
þak yfir höfuðið eða standi til
boða leiguhúsnæði á sanngjörnu
leiguverði í stað okurleigu sem
tröllríður leigumarkaðinum. Til
viðbótar hefur félagið ítrekað
bent á mikilvægi þess að
tillögur sem væru lagðar fram
af stjórnvöldum, sveitarfélögum
og aðilum vinnumarkaðarins til
lausnar þessum mikla vanda tækju
mið af þörfum allra landsmanna,
ekki eingöngu þeirra sem búa á
höfuðborgarsvæðinu og/eða í
stærstu þéttbýliskjörnum landsins.
Er það mat forsvarsmanna
Framsýnar að átakshópurinn
hefði þurft að horfa til sértækra
aðgerða á svonefndum köldum
svæðum á landsbyggðinni enda
sé þar fyrirliggjandi vandi sem
þurfi að leysa. Því miður sé
tillögur af því tagi ekki að finna
í niðurstöðum hópsins. Framsýn
varpar fram fjölda hugmynda
sem til bóta geta talist í þessum
efnum og væntir þess að áfram
verði unnið með niðurstöðu
átakshópsins og hlustað verði á
rödd landsbyggðarinnar sem kallar
eftir lausn á fyrirliggjandi vanda
í húsnæðismálum víða um land.
/MÞÞ
Húsavík. Mynd / HKr.