Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 4
Fréttir frá stjórn
Allt frá þeim degi er L.S.S. var stofnað þann
12. maí 1973, hefur stjórn þess unnið að ýmsum
málum til hagsbóta fyrir félagana. Raunar
má segja að undirbúningsstjórnin hafi byrjað
með þvi að skipuleggja ferð til Þýskalands í ág-
ústmánuði 1973. Þessi ferð tókst vel í alla staði
eins og menn rekur eflaust minni til.
Ýmsu öðru hefur stjórn L. S. S. unnið að,
t. d. leitað viðurkenningar sveitafélaga á nauðsyn
slíks félagsskapar eins og L.S.S. er. Segja má að
þessi viðurkenning hafi nú fengist með hinum
nýja samningi er náðst hefur um laun til handa
slökkviliðsmönnum og slökkviliðsstjórum, sem
hafa þetta starf ekki að aðalatvinnu.
Vonandi tekst í náinni framtíð að semja um
laun til handa slökkviliðsmönnum er hafa þetta
starf að aðalatvinnu, í einni heild við sveitarfé-
lögin þannig að allir séu i sama launaflokki er
gegna sama starfi innan slökkviliða, hvenær þetta
verður er óhægt um að spá en vonandi verður þess
ekki langt að bíða.
Þá hefur stjórnin kannað tryggingar slökkvi-
liðsmanna eins og fram kemur annars staðar hér
i blaðinu.
Til þess að fleyta sambandinu yfir hinar fjall-
háu peningaöldur er ávallt myndast þegar félög
eru stofnuð og ekki er byrjað að innheimta fé-
lagsgjöld, þá ákvað stjórn sambannsins að stofna
til happdrættis. Þetta tókst vonum framar, þar
sem við fengum gefins vinninga og slökkviliðs-
menn seldu þetta í flestum tilfellum endurgjalds-
laust. Stjórnin vill flytja öllum þeim er að þessu
stóðu bestu þakkir.
Á þessu fyrsta starfsári hefur stjórnin staðið
í því að koma á fót nýjum félögum víðsvegar um
landið, en þó vantar tilfinnanlega félög á Aust-
fjörðum, en áfram verður haldið og árangurinn
kemur í ljós á þinginu sem haldið verður á Horna-
firði í haust.
Þann 17. ágúst sl. komu í boði L.L.S. slökkviliðs-
menn frá Seelenberg í Vestur-Þýskalandi, en
nánar verður sagt frá þeirri heimsókn í næsta
blaði.
Komið hefur verið á samböndum við erlenda
aðila t. d. i Bandaríkjunum og Svíþjóð og von er
á fleiri samböndum á næstunni, sem vonandi
verður til góðs fyrir félaga sambandsins í fram-
tíðinni.
Sambandið leitaði samninga við ferðaskrifstof-
ur um að fá aðgang að ódýrum sumarleyfisferðum
til útlandi, ferðaskrifstofan Landsýn brást vel við
þessari beiðni okkar og kvaðst fús til að aðstoða fé-
laga sambandsins sem best hún gæti, ef þeir leit-
uðu til hennar. Hvort meðlimir L.S.S. hafa not-
fært sér þetta boð í einhverjum mæli, vitum við
ekki enn, þó vonum við að svo sé.
Eins og þeir sjá, sem þetta blað fá, þá lagði
stjórn L.S.S. út í það ævintýri að gefa út þetta
blað. Það hefði aldrei tekist, ef við hefðum ekki
orðið jafnheppnir, sem raun ber vitni um, með
blaðstjórn. Þeir í blaðstjórninni eiga allan heiður
af þessu blaði en ekki stjórn L.S.S.
Það er ekki ólíklegt að sumum finnist stjórn
L.S.S. hefði getað unnið betur en hún hefur gert
á þessu fyrsta ári sambandsins. Þetta verða sam-
bandsfélögin að gera upp við sig sjálf og koma
fram með athugasemdir á þinginu í haust. Það
er ekki hollt fyrir neina stjórn að fá eintómt lof,
hún verður líka að fá að heyra það sem betur
hefði mátt fara.
Landssamband slökkviliðsmanna var stofnað 12.
maí 1973 og var þá kosin stjórn til eins árs. Stofn-
un Sambandsins var búin að eiga nokkurn aðdrag-
anda. Slökviliðsmenn álitu nauðsynlegt að koma
á heildarhagsmunasamtökum slökkviliðsmanna.
Vegna þess skipulags, sem er á skipun í flest
slökkvilið, hefur reynst erfitt að ná mönnum sam-
2 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN