Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Blaðsíða 19
að halda nokkuð reglulega, þó svo að minni tími
gefist alltaf yfir vertíðina, þegar unnið er alla
daga jafnt. Við höfum tekið upp þá nýbreytni hér
að hafa vaktir, mestu ferðahelgar sumarsins, til að
trj'ggja það, að ávallt sé eitthvað af slökkviliðs-
mönnum til taks, ef á þarf að halda. 5 menn eru
hafðir á vakt hverju sinni, en innifalin í vakt-
greiðslunni er æfing, sem haldin er milli kl. 10—12
á sunnudagsmorgnum. Ekk þarf ég að kvarta und-
an áhugaleysi minna manna og eru allir tilbúnir
til að leggja sitt af mörkum til að allt gangi sem
best og rækja menn skyldur sínar við slökkviliðið
mjög samviskusamlega.
— Hvað viltu segja okkur um eldvarnaeftirlit í
Miðneshreppi?
— Samhliða því að vera slökkviliðsstjóri, þá er
ég einnig eldvarnaeftirlitsmaður hér. Starfið er
fólgið í því, að athuga kynditæki og umbúnað
þeirra í íbúðarhúsum a. m. k. einu sinni á ári og
að sjálfsögðu bendir maður fólki á allar þær
íkveikjuhættur sem maður verður var við á eftir-
litsferðum, þó þær snerti ekki kynditækin og um-
búnað þeirra beint. í fyrirtæki fer ég oftar og
huga þar að ýmsu fleiru sem orsakað gæti íkveikju,
einnig þarf að athuga allar útgöngudyr, stað-
setningu gastækja, geymslu efna sem notuð eru
til hreinsunar á vélum og vélahlutum o. m. fl.
hað er staðreynd, að eldvarnaeftirlit er stærsti
þátturinn í eldvörnum og ber því að rækja þau
störf vel. Yfirleitt hefur ábendingum mínum um
úrbætur verið vel tekið og finnst mér það sýna
skilning fólksins á nauðsyn þessara mála.
— Þið hafið stofnað félag slökkviliðsmanna í
Miðneshreppi, hvernig gengur félagsstarfið?
— Það er rétt, við stofnuðum félag 27. maí 1973
með það fyrir augum að gerast aðilar að L.S.S.
og vorum við stofnfélagar þar. Algjör einhugur
ríkti um þessa félagsstofnun og markmið hennar.
Við gerðum okkur alveg ljóst að mikil nauðsyn var
á að slökkviliðsmenn um land allt byndust sam-
tökum um hagsmunamál sín, svo og til þess að
vekja athygli almennings á nauðsyn þessarar ör-
yggisþjónustu í hverju byggðarlagi. Við bindum
miklar vonir við störf L.S.S. og erum sannfærðir
um að mikils má af þeim vænta í framtíðinni.
Félag slökkviliðsmanna í Miðneshreppi lagði sitt
af mörkum í sölu happdrættismiða fyrir L.S.S. og
vorum við ánægðir með útkomuna, þar sem við
seldum 350 miða. Félagið gekkst fyrir 2 heimsókn-
arferðum á Keflavíkurflugvöll þar sem okkur
voru sýnd ýmis tæki varnarliðsins, en hápunktur
íerðanna voru heimsóknir í slökkvilið vallarins,
þar sem móttökur voru mjög glæsilegar.
— Hvað viltu segja okkur um samstarf við ná-
grannasveitafélögin í eldvarnamálum?
Unnið að slökkvistörfum í Fiskmjölsverksrniðju Barðans hf.
í Sandgerði.
— Nú hafa verið stofnaðar Brunavarnir Suður-
nesja með aðild allra hreppa hér á Suðurnesjum
nema Miðneshrepps og Grindavíkurhrepps. Ástæð-
an fyrir því, að þessir 2 hreppar eiga ekki aðild
að B.S. er sú, að þeir höfðu þegar komið sér upp
góðum tækjakosti og liðum og eftir að umsögn
Brunamálastofnunar ríkisins í þessum efnum
hafði verið fengin, en þar sagði m. a. að þessir
hreppar ættu að geta verið sjálfum sér nógir í
eldvörnum, var ákveðið að þeir gerðust ekki aðilar.
Með þessu er ekki þar með sagt, að það eigi eng-
in samvinna að vera á milli þessara aðila. Ég er
eindregið þeirrar skoðunar, að þarna þurfi ein-
mitt að vera mikil og góð samvinna á milli til
hagsbóta fyrir alla. Það er staðreynd, að við Suð-
urnesjamenn erum mjög vel í sveit settir, hvað
eldvörnum viðkemur þar sem við höfum þann
stóra bakhjarl, sem slökkviliðið á Keflavíkurflug-
velli er, en þangað hefur oftsinnis verið leitað
eftir aðstoð af sveitarfélögunum hér og hefur
ávallt verið brugðið skjótt og vel við með tæki
og menn.
— Ekki er þetta þitt aðalstarf, Jón, að vera
slökkviliðsstjóri í Sandgerði?
— Nei, ég er slökviliðsmaður á Keflavíkurflug-
velli og hef verið þar á sjöunda ár. Að sjálfsögðu
hefur sú kunnátta og reynsla sem ég hef fengið
þar, komið mér að miklu gagni við störf mín hér.
—■ Að lokum Jón, ertu ánægður með framgang
slökkviliðs og eldvarnamála í Miðneshreppi?
— Já, það er ég. Mig langar einmitt til að nota
þetta tækifæri til að lýsa yfir ánægju minni með
þær miklu framfarir, sem átt hafa sér stað i þess-
um málum hér í Miðneshreppi, og áframhald er á.
Ég vil að endingu þakka þann skilning, sem bæði
forráðamenn hreppsins svo og allur almenningur
hér, hafa sýnt þessum málum. H.R.S.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 17