Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 10
Reyklosun
Erindi flutt á ráðstefnu slökkviliðsmanna um
brunamál, haldinni á Akureyri í maí 1973.
Reyklosun er þýðing á orðinu brandventilation,
en með reyklosun er ekki einungis átt við losun
á reyk, heldur einnig, og ekki síður, losun á hita,
eldfimum lofttegundum (sem við hækkandi hita-
stig verða æ eldfimari) og yfirþrýsting.
Hver slökviliðsmaður með reynslu af húsabrun-
um þekkir þá þýðingu, sem rétt framkvæmd reyk-
losun hefur við slökkvistarfið. Rétt framkvæmd á
réttum stað og réttum tíma.
Pyrst og fremst er reyklosun þýðingarmikil til
björgunar á fólki við bruna. Af þeim sem deyja
við bruna hafa flestir kafnað í reyknum vegna
súrefnisskorts, orðið fyrir eitrun af kolsýringi
(c. o. kolmonaxið) eða villst í reyknum áður en
eldtungurnar hafa náð þeim. Lungnaskemmdir
vegna innöndunar á heitu lofti getur einnig verið
dauðaorsök.
í stærri samkomuhúsum, sjúkrahúsum, hótelum,
og í sumum tilfellum verksmiðjum og lagerhúsum
er reyklosun mjög nauðsynleg til björgunar á
fólki við eldsvoða.
Einnig er reyklosun oft eða oftast forsenda fyrir
árangursríku slökkvistarfi. Við sem slökkvistarf
vinnum vitum að reykurinn er í mörgum tilfell-
um erfiðari viðfangs en sjáanlegur opinn eldur.
Kjallara- og þakeldar (svo maður tali nú ekki
um elda í skipum) hafa alltaf vegna lítilla loft-
rafestimöguleika verið erfiðir viðfangs, vegna þess
að reykur og hiti hindra slökkviliðsmönnum að-
gang að eldinum. Þá fyrst þegar nokkrir kjallara-
gluggar hafa verið opnaðir eða göt gerð á þekj-
una er góðs árangurs að vænta.
í þriðja lagi getur reyklosun dregið úr eða heft
alveg útbreiðslu eldsins og ekki síður útbreiðslu
reyks og heitra eldfimra gastegunda og þannig
dregið úr tjóni við eldsvoða.
Litlir möguleikar á reyklosun geta aftur á móti
leitt til þess, beint eða óbeint, að svokölluð „sek-
under“-tjón aukast. En til slíks tjóns teljast reyk-
og sótskemmdir og tión af völdum slökkviefna.
Þessi s.k. „sekunder“-tjón geta orðið í mikilli
fjarlægð frá eldinum.
Við skíðlogandi eld í herbergi verður yfirþrýst-
ingur í efrihluta herbergisins en undirþrýstingur
í neðrihluta þess. Yfirþrýstingurinn er að sjálf-
sögðu mestur upp við loftið og undirþrýstingurinn
mestur við gólfið. í fyrstu eru mörkin á milli yfir-
og undirþrýstings, s.k. hlutlausa lína mjög ofar-
lega og nálægt loftinu en fellur hratt niður ef
ekki er loftræst. Sé aftur á móti loftræst, ræður
stærð eldsins, stærð loftræstingar og staðsetning-
ar hennar legu hlutlausu línunnar. Venjulegast er
yfirþrýstingur við eldsvoða allt að 10 kg/m2, en
við mikinn brunahraða getur hann orðið allmikið
lægri.
Þrátt fyrir yfirþrýsting getur reyklosun tekið
alllangan tíma, sérstaklega ef ekki er möguleiki á
loftræstingu upp úr húsinu. Af þeim sökum er
farið að nota viftur við reyklosun og hefur það
gefið mjög góða raun. Þessar viftur vinna ýmist
á þann veg að blása reyknum út eða þrýsta fersk-
lofti inn og þannig pressa reykinn út.
Flestir slökkviliðsmenn gera sér vel grein fyrir
afleiðingum af yfirþrýstingi í herbergi. Þeir vita
að hurð getur slengst út með miklum krafti, þegar
hún er opnuð, og að miklar eldtungur geta skotist
út á sama augnabliki. Einnig getur reykur og eld-
fimar gastegundir, ásamt eldtungum gosið út um
gat, sem gert er á þak. Út um glugga sem hafa
brotnað, ekki bara af hitanum, heldur einnig af
yfirþrýstingi, geta eldtungur og reykur, vegna
yfirþrýstings einnig staðið marga metra út í loft-
ið. Hættan á brunagassprengju í minni herbergj-
um er mikil, en verður minni, ef byrjað er nógu
snemma á reyklosuninni.
Ég held, að öllum megi ljós vera þörfin á reyk-
losun. En ein árangursríkasta aðferðin til þess,
er að opna þakið efst og hlémegin fyrir reyk og
heitum lofttegundum, en neðst og vindmegin fyr-
ir fersku lofti.
Hingað til hefur aðallega verið notast við dyr
og glugga og önnur tilfallandi op, auk þess sem
göt hafa verið rifin eða brotin á þök og veggi.
Að því er varðar dyr og glugga er lega þeirra
oftast það neðarlega á veggjum húsa, að fullt
gagn fæst ekki með þeirri lausn. Með því að rífa
göt ofar getur oft fengist mun betri reyklosun,
en það er tímafrekt og veldur oft allmiklum
skemmdum (sem standa ekki alltaf í réttu hlut-
falli við brunatjónið að öðru leyti). Einnig getur
hætta verið því samfara að rífa göt á þök, sem
hafa meira og minna rýrða burðarhluti.
Því er mönnum æ ljósari nauðsyn sérstaks út-
búnaðar til reyklosunar á húsum. Reyklúgur eru
því miður allt of sjaldgæfar hér á landi, en það
er útbúnaður, sem ég bind miklar vonir við.
Tómas Böðvarsson.
8 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN