Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Qupperneq 15
En mig grunar að allvíða sé sú skoðun á slökkvi-
liðinu meðal almennings og ráðamanna að það
sé nokkurs konar ill nauðsyn, sem ekki sé fært
annað en að hafa vegna reglugerða þar um, þó
ekki sé nema að nafninu til. Stærstu orsök þessa
álits er að finna að mínu mati hjá slökkviliðs-
mönnunum sjálfum og byggi ég þessa skoðun mina
á því að þeir gera lítið sem ekkert til þess að
vinna með almenningi að þessum málum, mennta
sig lítið sem ekkert um þessi mál né hafa fyrir
Því að koma sínum fróðleik á framfæri. Skoðun
niín er sú að nær alla eldsvoða sé hægt að fyrir-
byggja með sterkum og vel skipulögðum eldvörn-
um, en eldvarnaeftirlit og uppfræðsla meðal al-
mennings um þau mál er tiltölulega ódýr. Þannig
starfsemi þarfnast fyrst og fremst starfskrafta,
sem vinna að slíku verkefni í einlægni og þeir
menn hafi staðgóða menntun og reynslu í þessum
efnum. Fyrsta boðorð hvers slökkviliðsmanns ætti
að vera að helga sig þess konar verkefnum ef
hann í raun og veru vill teljast fullgildur slökkvi-
liðsmaður og vill reynast samborgurum sínum
sem best í því starfi. Einnig ættu tryggingarfé-
lögin að beita sér meira fyrir bættum eldvörnum
og taka höndum saman við slökkviliðsmenn og
ráðamenn bæjar- og sveitarfélaga um að koma
þeim í framkvæmd. Þvi það er sannfæring mín,
að með samstilltu átaki þessara aðila í eldvarnar-
málum muni er fram líða stundir minna verða um
bruna hér á landi, færri dauðaslys og minna
eignatjón af þeirra völdum og þar með meira ör-
yggi þegnunum til handa.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um
nokkrar frumhliðar eldvarna, en málefnið er það
víðtækt að varla er hægt að gera því nokkur skil
sem heitið getur í stuttri grein sem þessari, en
meginmarkmið mitt er að vekja athygli á að það
stendur okkur slökkviliðsmönnum næst að vinna
að og koma á framfæri betrumbótum í þessum
málum, því hvers getum við krafist af öðrum ef
við ætlumst ekki til hins sama og helst svolítils
meira af okkur sjálfu'm. Hafi mér tekist að vekja
athygli slökkviliðsmarina á þessum málum og leitt
þá til umhugsunar um aðgerðir í þessum efnum,
þá er tilgangi mínum náð. Skoðun mín er sú, að
allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi, í þessum
efnum sem öðrum, og tel ég mig þar tala af tölu-
verðri reynslu hvað snertir eldvarnir og hugaríar
ráðamanna og fólksins á umráðasvæði slökkviliðs
þess sem ég veiti forstöðu. í þau 22 ár sem ég
hef þekkt þar til mála hefur ávallt verið beint
hlutfall á milli fjölda og stærða brunatjóns og
þess sem lagt hefur verið í brunavarnir á hverjum
tíma og til að nefna tölur þessu til staðfestingar
skal bent á að brunar voru um og yfir 100 talsins
og tjón af þeirra völdum talið nema milljónum
króna að meðaltali fyrir 10 árum og þar á undan,
en meðaltal bruna hefur verið undir 10 talsins og
tjón í þúsundum króna að meðaltali síðustu 10
árin, en brunavarnir og eftirlit á ýmsum sviðum
verið aukin að sama skapi. Einnig hefur vilji ráða-
manna til aukinna fjárveitinga til handa slökkvi-
liðum og samstarf fólksins við slökkviliðið verið
með ákjósanlegasta móti hin síðari ár.
Að lokum vil ég nota tækifærið og þakka þeim
mönnum sem frumkvæði hafa átt að því takmarki
að reyna að sameina alla slökkviliðsmenn í félags-
legum skilningi hér á landi, og skilst mér að blað
þetta sé einn liður á þeim vettvangi, en minna
þá um leið á, að án skilnings fólksins á nauðsyn
þeirrar starfsemi sem þeir hafa helgað krafta
sína, þ. e. slökkviliðsstarfinu, þá verður róðurinn
þungur til umbóta, en að sama skapi léttur, sýni
þeir vilja í verki í þessum efnum, minnugir þess
að það er almenningur sem er að kaupa af þeim
þjónustu.
Sveinn Eiríksson.
Dregið í happdrætti L.S.S.
Dregið var í happdrætti L.S.S. þann 15. febrúar
af Borgarfógetanum í Reykjavík. Eftirtalin númer
hlutu vinning:
1. vinningur: Húsgögn að eigin vali að verð-
mæti 60.000,00. Kom á miða nr. 4976.
2. vinningur: Flugferð að eigin val með Loft-
leiðum að verðmæti ca kr. 40.000,00. Kom á miða
nr. 1001.
3. vinningur: Trygging hjá Hagtryggingu að
verðmæti 10.000,00 á miða nr. 1322.
Vinninga skal vitjað á skrifstofu L.S.S., Hverfis-
götu 82, Reykjavík, opið alla mánudaga frá kl.
17—19, sími 10670.
/ ^Lreij tin gar uiÍ öÍÍ tcebi^œri N BLÓMASTOFA FRIÐFINNS SUÐURLANDSBRA UT 10 - SÍMI 31099
V /
SLÖKKVIUÐSMAÐURINN 13