Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 25

Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 25
Slökkviefni Þó að langt sé síðan manninum hugkvæmdist að nýta sér eiginleika eldsins, hefur honum ekki enn tekist að ná fullkomnu valdi yfir honum, og við sem slökkviliðsmenn erum því kannski kunn- ugastir. Þó að furðulegt megi virðast, hefur tækn- in, sem hefur gert byltingu á svo mörgum sviðum, sáralítið komið inn á þetta svið, mannlegrar um- gengni við náttúruna. Ég mun leitast við að kynna hér á eftir helstu slökkviefni sem notuð eru í dag og eiginleika þeirra. Vatn og efni notuð með því: Vatn er og hefur verið frá upphafi helsta slökkviefnið vegna kæli og kælingareiginleika þess. Efnafræðilegar upplýsingar: a. Til að bræða eitt pund af ís þarf 143 BTH hitaeiningar (eitt BTH er það hitamagn, sem þarf til að hita eitt pund af vatni um 1°F). b. Til að hita vatn frá frostmarki upp í suðu þarf 180°BTH. c. Til að eyma eitt pund af vatni þarf 970,3 BTH. Það er ekkert efni í nátt- úrunni, sem hagkvæmt er að nota til að slökkva eld, sem er eins ríkt af þessum eiginleikum og vatnið. Og enn er einn mjög veigamikill þáttur ónefndur, en það er þegar vatn breytist úr vökva í gufu (eyming) eykst rúmtak þess 1700 sinnum. Þetta óhemju aukna rúm vatnsins (gufunnar) ryður burt jafnmiklu magni af lofti frá eldinum, ef eymað er á eldstað, og kæfir á þann hátt eld- inn. Ef litið er á upptalninguna hér að framan, er augljóst að kælieiginleikar vatns myndu full- nýtast ef hægt væri að koma því á eldinn í formi íss eða snjóa, láta hann bráðna, hitna upp að suðumarki og síðan eymast (samtals 143,4+180 +970,3=1293,7 BTH hitaeiningar) hvert pund. En Astvaldur Eiríksson, yfirvarðstjóri, Slökkviliðinu á Kejla- víkurjlugvélli. slíkt þætti líklega heldur óhagkvæmt, enda engin tæki til slíks og frosið vatn sjaldan við hendina (sem betur fer). Fyrst framan af notuðust menn við fötur til að koma vatninu á eldinn, en bylting varð í þeim efnum er brunadæla og slöngur með bunustút komu til sögunnar og enn í dag gildir sú aðferð i ríkum mæli. En með tilkomu úðastúta má segja, að enn hafi verið brotið blað í þessum efnum. Mestur árangur í slökkvistarfi næst ef hægt er að láta eldinn eyma allt það vatn sem á hann er sprautað, en sá árangur næst helst ef vatnið kem- ur á eldinn og í hitann í kring í formi dropa (úða). Rannsóknir sýna að besta stærð dropanna sé á milli 0,55 mm og 1,0 mm., og enn betri árangur næst ef stærð dropanna er sem jöfnust. Hér hafa verið nefndir helstu kostir vatns sem slökkviefnis, en þá er að nefna gallana og svör við þeim: SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 23

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.