Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 26

Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 26
1. Vatn leiðir rafmagn, en þó er slík leiðni ekki eins mikil og menn álíta í fljótu bragði. Rann- sóknir sýna að bein vatnsbuna leiðir ekki hættulega mikið rafmagn sem er minna en 600 volt. Sé vatni beint að rafmagnsleiðara í formi úða er hættan margfalt minni. Hér er að vísu átt við hreint vatn, en t. d. sjór eða vatn með einhverjum efnablöndum leiðir tölu- vert meir. 2. Vatn frýs, en við því er lítið að gera á okkar vettvangi, nema þar sem um slökkvitæki er að ræða, þar má nota frostlög. 3. Tregða til að smjúga inn í efni, t. d. hey, baðmullarvörur o. s. frv. Svarið við þessari tregðu er svokallað „Blautt vatn“ en það er efni sem blanda má í vatnið og smýgur það þá margfalt betur. Þessu efni er venjulega blandað í vatnið í hlutföllunum 1:1000 með því að tengja sérstakan blandara (líkt og froðu- blandara) á slöngu nálægt dælunni, en hann sogar, um leið og vatnið streymir i gegnum hnn, efnið úr geymslukút (venjuleg 20 ltr. brúsa). 20 ltr. brúsi dugar í rúma klukkustund sé notuð 1 y2” slanga. Svo má líka blanda í vatnstanka bílanna. 4. Vatn er of þunnt í öðrum tilfellum, t. d. ef verja á nærliggjandi hús, og það fýkur auð- veldlega í vindi. En þessum eiginleika má breyta með notkun efnis, sem nefnist „þykkt vatn', því er blandað á svipaðan hátt og blauta vatninu. Ef venjulegu vatni er sprautað á lóð- réttan vegg, rennur það niður vegginn um 1—2 mm. þykkt, en sé það blandað þykku vatni verður þykktin um 4—5 mm. 5. Vatn sekkur í flestum eldfimum vökvum. Þar á við efni, sem kallast „Létt vatn“, en það er gætt þeim eiginleikum, eins og nafnið bendir til, að vatn blandað þessu efni, flýtur ofan á t. d. benzíni, olíu o. s. frv. Þetta efni hefur mjög rutt sér til rúms á undanförnum árum í flug- vallaslökkviliðum. Það mun vera um 3—4 sinn- um fljótvirkara en gamla kvoðuefnið á benzín og olíuelda. Léttvatni er blandað i vatn á sama hátt og kvoðuefni og notast er við samskonar verkfæri til að sprauta því, þó að það sé ekki skilyrði því það dugar jafnvel, ef ekki betur, með venjulegum úðastútum. 6. Tært vatn hleypir í gegnum sig hitageislum. Útbúin hafa verið tæki til að mynda einskonar úðavegg, á milli brunastaðar og annars sem er í hættu vegna hitageislunar, til að verja þann siðarnefnda vegna ikveikjuhættu. Rannsóknir sýna, að slíkir úðaveggir gera 3—4 sinnum minna gagn, heldur en ef hægt er að koma vatninu beint á hinn óvarða hlut sem í hættu er, vegna þess að hitageislar fara auðveldlega í gegnum vatnið i formi úðaveggs, en sé það í beinni snertinu við það sem verja á, nýtast eiginleikar þess 3—4 sinnum betur, eins og að framan segir. Kvoða: Slökkvikvoða er ekki annað en loftkúlur fram- leiddar úr sápukenndum eða kemiskum efnum. Hún er framleidd þannig að hún myndar sam- fellt fljótandi teppi, einskonar, á brennandi vökv- um, og slekkur eld með því að útiloka loft frá gufum eldsneytisins og kælir einnig yfirborð þess. Kvoða er hentugt eldvarna- og slökkviefni á mjög víðtækum grundvelli, þvi hún er einskonar vökvi sem er mjög léttur, tekur til sín mikinn hita og hefur mikla viðloðunarhæfni. Ýmis efni og verkfæri eru á markaðnum í dag til að framleiða kvoðu. Eru þar bæði kemiskar og mekaniskar aðferðir. Kemiska aðferðin (t. d. i slökkvitækjum) byggist á þvi að tvennskonar upplausnum (aluminum sulfadi og sodium bicar- bonat blandað vissum kvata), er blandað saman, við það myndast einskonar gos af koltvísýringi (CO2), svipað og i gosdrykk, sem þrýstir kvoð- unni út úr viðkomandi tæki. En hinar koltvísýr- ingsfylltu loftkúlur hafa furðu mikla mótstöðu gegn hita og eldi, einnig er viðloðunarhæfileiki slíkrar kvoðu áberandi mikill. Þenslan á kemiskri kvoðu er frá 7 á móti 1 upp í alltað 16 á móti 1. Galli kemiskrar kvoðu er sá að upplausnirnar þurfa að vera um 10° til 20°C heitar, til að góð kvoða fáist, annars missir hún eiginleika sína mjög ört. Einnig er erfitt að flytja hana eftir leiðslum lengri leiðir, sérstaklega ef beita þarf þrýstingi. Þá þola þessar upplausnir tiltölulega stutta geymslu eða um eitt ár, úr þvi tapa þær eiginleikum sínum. Því er nauðsynlegt að endurhlaða t. d. kvoðuslökkvitæki einu sinni á ári. Mekanisk eða vélunnin kvoða er aftur unnin á þann hátt að kvoðuefni er blandað ýmist í dæl- unni eða við stút með sérstökum sogstút. Þessi kerfi bjóða oft uppá það að hægt er að ráða þykkt kvoðunnar, með sérstökum blöndustilli á tækjun- um, en þensla kvoðunnar ræðst yfirleitt af bygg- ingarlagi kvoðustútsins. Hitastig kvoðuefnis og vatns skiptir ekki máli. Ýmsar tegundir af þess- um efnum eru á markaðnum en þeim má þó skipta í tvo flokka: í öðrum eru kvoðuefni sem unnin eru úr lífrænum efnum en í hinum efni, sem unnin eru úr gerfiefnum eða ólífrænum. Aðal- mismunurinn á þessum efnum er geymsluþolið, þau sem unnin eru úr lifrænum efnum hafa tak- markað geymsluþol, venjulega um 5 ár. Sum þess- ara efna þola allt að 10° til 15°C frost, önnur minna eða ekkert. Sum hafa mjög víðtæka notk- 24 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.