Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Page 27
unareiginleika, þ. e. sama efnið er hægt að nota
í lág-, milli- og háþenslukvoðu með mismunandi
blöndunarhlutföllum, allt frá 1% upp í 6%. Það
nýjasta af þessum efnum mun duga í alls konar
kvoðu og sem „blautt vatn“ lika. Nánar mun vera
rsett um millikvoðu á öðrum stað í þessu blaði.
Koltvísýringur (CO Carbon Dioride)
Koltvísýringur, oft ranglega kallaður kolsýra, er
lit- og lyktarlaus lofttegund, 1,5 sinnum þyngri
en venjulegt andrúmsloft.
Koltvísýringur er mest notaður í slökkvitækj-
um misjafnlega stórum. í slökkvitækinu er hann
hafður undir miklum þrýstingi (eða um 800 pund
á fertommu). Við þessar aðstæður, í venjulegu
hitastigi, er hann að miklu leyti i vökvaformi, og
þegar hleypt er úr tækinu eymast meirihluti vökv-
ans, en það hefur geysilega mikla kælingu í för
með sér og kælir þann hluta vökvans sem ekki
eymaðist niður í 4 8O C og hraðfrystir hann, í
þnnig ásigkomulagi lítur koltvísýringur út eins
og snjór, enda oft kallaður „þurr ís“. Þennan
„þurra ís“ getur verið mjög varasamt að fá í snert-
ingu við skinn, því að meðan hann er i þessu
formi er hann geysilega kaldur og því hætta á
frostbruna. Einmitt vegna þessarar miklu kæl-
ingu, sem á sér stað í stútnum, er handfangið á
stútnum einangrað, því ella frysi notandinn fast-
ur við stútinn. Annar tilgangur með hinu ein-
ungraða handfangi er sá, að við þensluna í stútn-
um myndast stöðurafmagn, sem gæti valdið not-
andanum töluverðum óþægindum. í þriðja lagi er
handfangið einangrað, vegna þess að á horninu,
sem er venjulega fyrir framan handfangið, mynd-
ast hrim, sem myndi leiða rafmagn til notandans,
ef verið væri að slökkva rafmagnseld og hornið
kæmi i snertingu við rafmagn. Koltvísýringur er
ágætt slökkviefni á elda í brennanlegum vökvum
eða rafmagnselda. Hann slekkur eld á þann hátt,
að þegar honum er dreift yfir brennandi efni, ryð-
ur hann burt eða þynnir loftið, sem fyrir er, með
þeim afleiðingum að eldurinn kafnar. En þar sem
koltv.'sýringurinn er loft rýkur hann tiltölulega
fljótt í burtu, þaðan sem honum er ætlað að vera,
því er ávallt mikil hætta á endurikviknun, og ber
að vera viðbúinn slíku með tækið tilbúið.
Ætla mætti að koltvísýringur hefði mikla kæli-
eiginleika, sem nýttust í ríkum mæli í sambandi
við slökkvistarf. En svo er þó ekki. í fyrsta lagi
vegna þess að tiltölulega lítill hluti verður að ís
eða um 30% og í öðru lagi að eyming þessa íss
tekur til sín ekki nema 246,4 hitaeiningar (BTU)
pr. pund, en til samanburðar tekur eyming vatns,
við frostmark, 1150 hitaeiningar. Koltvísýringur
hefur engin tærandi áhrif á menn, en þar sem
hann ryður burt lofti, er mönnum ekki líft í slíku
andrúmslofti vegna súrefnisskorts.
í næsta blaði verður rætt um þurrduft og ýmsa
slökkvivökva o. fl.
Ástvaldur Eiríksson.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 25