Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 10
Brunavarnir færast
til umhverfisráðuneytisins
Vantar löggjöf um varnir og viðbrögð við mengunaróhöppum. Nefnd um
varnir og viðbrögð við mengunaróhöppum leggur til að sett verði
samræmd löggjöf. Slökkviliðsmenn mega búast við auknum
kröfum um þátttöku í mengunarvörunum.
Brunavarnir færast frá félags-
málaráðuneyti til umhverfisráðu-
neytis um næstu áramót. Af því
tilefni tók Slökkviliðsmaðurinn Ingi-
mar Sigurðsson skrifstofustjóra í
umhverfisráðuneytinu tali, en hann
er einnig formaður nefndar sem ný-
lega hefur lokið störfum og fjallaði
um varnir og viðbrögð við
mengunaróhöppum á landi.
- Sífellt fleiri verkefni eru að fær-
ast undir umhverfisráðuneytið. Það er
í takt við breytta tíma. Út um allan
heim er vaxandi vitund um umhverf-
ismál að segja til sín í löggjöf og
almenningur gerir kröfu um að í öllum
athöfnum stjórnvalda sé tekið tiilit til
umhverfisins.
- Brunavarnir heyrðu áður undir
félagsmálaráðuneytið. Samkvæmt
breyttum lögum er ekki kveðið á um
undir hvaða ráðuneyti málaflokkurinn
skuli heyra en tekin hefur verið
ákvörðun í ríkisstjórn um að bruna-
varnir heyri undir umhverfisráðu-
neytið frá og með næstu áramótum og
þar með starfsemi Brunamálastofn-
unar. í raun þýðir þetta að yfirstjórn
og ábyrgð flyst milli ráðuneyta, það
þykir enda í samræmi við þá við-
horfsbreytingu sem orðið hefur á
síðustu árum. Ekki síst í sambandi við
mengunarvarnir og viðbrögð við
mengunaróhöppum en þau tengjast
brunavörnum hérlendis sem og
annars staðar.
Beðið með nýja
stefnumótun
- Brunamálastofnun er sú stofnun
af hálfu ríkisins sem á að sjá um eftirlit
með brunavörnum og brunamálum í
landinu en sjálf framkvæmdin er á
vegum sveitarfélaganna. Segja má að
ástæða þess að málaflokkurinn flyst til
umhverfisráðuneytis sé af tvennum
toga. Annars vegar tengjast bruna-
Ingimar Sigurðsson,
skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu
varnir mjög skipulags- og byggingar-
málum og hins vegar hefur stór hluti í
framkvæmd mengunarvarna s.s.
hreinsun flust yfir á slökkviliðin sem
oft hafa þar að auki ein yfir að ráða
tiltækum búnaði.
- Á þessari stundu hefur um-
hverfisráðuneytið ekki mótað stefnu í
málaflokknum og bíður með stefnu-
mörkum þar til málaflokkurinn er
formlega komin í þess hendur og mun
gera það í góðu samstarfi við bruna-
málayfirvöld sveitarfélaganna sem og
Brunamálastofnun. Reyndar má segja
að hafin sé vinna er leitt gæti til
stefnubreytinga en unnið er að gerð
nýrra skipulags- og byggingarreglu-
gerða sem samkvæmt nýsamþykktum
skipulags- og byggingarlögum skulu
öðlast gildi 1. janúar nk. Brunamála-
stofnun tekur þátt í þessari vinnu
Ef við œtlum okkur að
vera með verðum við að
standa okkur.
Það er ekki rekin nein
undanlátsstarfsemi hér á
landi á þessu sviði.
ásamt öðrum þ.e.a.s. umhverfisráðu-
neytinu, Skipulagi ríkisins, Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og öðrum
aðilum er tengjast þessum málum.
Sveitarfélögin of mörg
- I dag eigum við við sama vanda
að etja í þessum málaflokki eins og
svo mörgum öðrum mikilvægum mála-
flokkum sem sveitarfélögin sinna en
þau eru alltof mörg og of smá. Að
undanförnu hefur verið unnið að
sameiningu sveitarfélaga og um-
hverfisráðuneytið hefur reynt að
leggja sitt af mörkunum þar, sérstak-
lega með því að reyna að stuðla að
sameiningu starfskrafta sveitar-
félaganna um þau verkefni sem skyn-
samlegt er að vinna á stærri svæðum.
Eitt mikilvægasta atriðið til þess að
sveitarfélögin geti sinnt þeim málum
sem þeim er ætlað að sinna s.s.
skipulags- og byggingarmálum, holl-
ustuháttamálum, þ.á.m. mengunar-
vörnum, og brunamálum er að rekst-
urinn færist yfir í stærri einingar.
Sveitarfélögin verða að hafa bolmagn
til þess að geta sinnt þessum málum
t.d. gripið inn í atburðarrás sem kann
að kosta einhver fjárútlát. Það er
borin von að lítil sveitarfélög geti gert
slíkt.
Vantar samræmda löggjöf
um varnir og viðbrögð
- í ráðherratíð Össurar Skarphéð-
inssonar var skipuð nefnd til að gera
tillögur um hvernig skyldi háttað
vörnum og viðbrögðum við meng-
unaróhöppum á landi. í þessari nefnd
áttu sæti auk mín Guðmundur Vignir
Óskarsson, formaður LSS, Gunnar
Eydal frá Sambandi íslenskra sveitar-
félaga, Hrólfur Jónsson slökkviliðs-
stjóri, Sigurbjörg Sæmundsdóttir
deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu
og Þór Tómasson frá Hollustuvernd
10
SLOKKVILIÐSMAÐURINN