Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 37
Lögreglan kaupír síg
ínn í Neyðarlínuna
Ríkislögreglan kaupir hlut öryggisfyrirtækis í Neyðarlínunni
Starfsemin stöðugt að taka breytingum og samstarfið að batna
Embætti ríkislögreglustjóra
hefur nýverið keypt hlut
Öryggisþjónustunnar í
Neyðarlínunni hf. og fleiri
breytingar eru fyrirsjáan-
legar á eignarhaldi.
- Stjórn LSS lýsir ánægju
sinni með jákvæða þróun
málefna félagsmanna
starfandi hjá Slökkviliði
Reykjavíkur og gott samráð
stjórnenda og fulltrúa
Landssambandsins í kjölfar
samningagerðar.
Þetta kemur fram í samþykkt
stjórnar Landssambands slökkviliðs-
manna 12. júní sl. þar sem m.a. er lögð
áhersla á að við endurskoðun á
„samkomulagi um störf slökkviliðs-
manna við símsvörun fyrir neyðar-
síma 112” sem fram á að fara fyrir 1.
september 1997 verði haft fullt
samráð við LSS með vísan til
yfirlýsingar borgarstjóra þar um.
Breytingar á samkomulaginu taki mið
af þeirri reynslu sem þá liggur fyrir um
þátt slökkviliðsmanna í starfsemi
Neyðarlínunnar h.f.
í vor var undirritaður kjarasamn-
ingur milli LSS, Reykjavíkurborgar og
fjármálaráðuneytisins. Með þessum
samningi fylgir yfirlýsing Slökkviliðs
Reykjavíkur m.a. um að stefnt verði að
breytingum á aðkomu slökkviliðs-
manna að starfsemi varðstofu Neyð-
arlínunnar h.f. Slík breyting felur í sér
breytingu á gildandi „sátt” þessarar
aðila frá því í apríl 1996, en nú hafa
verið samþykkt frávik með áður-
nefndum skilyrðum.
112
- yflr allt landið
Neyðarlínan stóð fyrir formlegri
opnun 30 apríl sl.. í byrjun var um að
ræða samstarfsverkefni Pósts og
síma, Slökkviliðs Reykjavíkur (Reykja-
víkurborgar), Securitas, Sívaka, Slysa-
varnafélagsins, Vara og Öryggisþjón-
ustunnar. Nú nýverið gerðist það svo
að lögreglan gerðist aðili að
samstarfinu og keypti hlut Öryggis-
þjónustunnar í fyrirtækinu og talið er
að hlutur Sívaka verði einnig seldur.
Margvíslegir byrjunarörðugleikar
hafa komið í ljós og hafa vankantar
smám saman verið sniðnir af
starfseminni. Ýmislegt er enn eftir að
mati slökkviliðsmanna en samtarfið
hefur verið að þróast í rétta átt.
Starfsemi Neyðarlínunnar er í sér-
hönnuðu húsnæði sem var byggt við
Slökkviðstöðina í Reykjavík. Allur
tækjakostur er af fullkominni gerð og
strangar kröfur gerðar til starfsem-
innar.
Nú hefur tekist að samræma
neyðarnúmer fyrir allt landið 112, en
áfram munu staðbundin neyðarnúmer
lögreglu og skökkviliðs einnig gilda.
Meginhlutverk línunnar er að taka
m.a. móti símhringingum hvaðanæva
að af Iandinu, staðsetja hringinguna,
greina vandann, finna samstundis
hvert á að beina útkallinu og senda til
hjálpar.
Neyðarlínan er starfrœkt í sérhönnuðu húsnæði við Slökkvistöðina í Reykjavík að
Skógarhlíð 14.
Neyðarsímsvörun 112. Séð yfir salinn íSkógarhlíð. Lengst til vinstri má sjá Þorvald
Geirsson aðstoðarvarðstjóra í Slökkviliði Reykjavíkur.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
37