Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 13
Menntun yfirmanna
í Svíþjóð
Sænsk lög fela í sér kröfur um
menntun stjórnanda við björgunar-
störf slökkviliða, ráddningtjánst. í
sveitarfélögunum skal ávallt vera
yfirmaður á vakt eða bakvakt og á
hann samkvæmt Iögunum að vera
brunatæknifræðingur, „brand-
ingenjör“. Minni sveitarfélög geta
fengið undanþágur frá þessu, m.a.
með því að semja um slíka vakt við
nágrannasveitarfélög.
Fyrir utan hefðbundin slökkvistörf
snúa ýmis önnur björgunarstörf að
sænskum slökkviliðum. í lögum um
slökkvilið sveitarfélaga segir að þau
skuli bjarga mannslífum, eignum og
umhverfi, en einnig reyna að fyrir-
byggja atburði þar sem mannslíf,
eignir eða umhverfi eru í hættu.
Starfssvið sænskra slökkviliða er því
mjög vítt.
Svíar hafa farið þá leið að tækni-
mennta fólk í stöður vakthafandi yfir-
manna hjá slökkviliðum og til að fara
með yfirstjórn aðgerða á vettvangi.
Auk tæknimenntunarinnar verður við-
komandi að taka sértakt viðbótarár
við björgunarskóla áður en starf hjá
slökkviliðum hefst.
Tækninámið
Tækniháskólinn í Lundi hefur nú í
rúm tíu ár menntað brunatæknifræð-
inga, „brandingenjörer". Námið, sem
var tvö og hálft ár hefur nýlega verið
lengt í þrjú og hálft ár, enda aukast
stöðugt kröfurnar frá samtökum sveit-
arfélaganna. Námið hefst á almennum
fögum, s.s. stærðfræði, eðlisfræði og
efnafræði. Síðan tekur við eðlisfræði
bruna og þróun hans utanhúss sem
innan.
Eldvörnum má í meginatriðum
skipta í tvennt; hlutbundna þætti og
starfræna. Þeir hlutbundnu eru ávallt
til staðar og gera sitt gagn í kyrrþey,
s.s. eldvarnarveggir og einangrun stál-
bita, en hinir starfrænu bregðast við
eða fara í gang þegar eldur kemur upp,
s.s. viðvörunarkerfi, reyklosun og
vatnsúðakerfi.
Notkun ýmissa tölvuforrita fer mjög
vaxandi. Má þar nefna forrit sem spá
fyrir um útbreiðslu elds og reyks, áhrif
reyklosunar o.s.frv. Einnig rýmingar-
forrit sem áætla þann tíma sem tekur
að rýma byggingar.
Höfundur greinarinar, Birgir Finnsson
tók snemma á árinu við stöðu
aðstoðarslökkviliðsstjóra hjá Slökkvi-
liði Akureyrar. Birgir er nýútskrifaður
sem brunatœknifrœðingur frá Lundi f
Svíþjóð en hafði áður starfað hjá
Slökkviliði ísafjarðar í nokkur ár og í
lögreglunni þar í nokkra mánuði.
Hluti námsins úti fólst í starfsþjálfun
við Slökkviliðið í Malmö, og eftir
tœkninámið lauk hann eins árs
viðbótarnámi fyrir yfirmenn slökkvi-
liða við Ráddningsverkets skola i
Revinge. Sambýliskona Birgis er Ólöf
Björnsdóttir og eiga þau saman eina
dóttur, Brynju.
I náminu er mikið fjallað um mann-
lega þáttinn, þ.e. hvernig manneskj-
urnar bregðast við bruna eða annarri
vá og hvernig hafa má áhrif á hegðun
þeirra.
Allir þessir þættir tengjast að lok-
um í stóru verkefni, sem er bruna-
tæknileg úttekt á stórri byggingu.
Farið er í gegnum lög og reglur,
eldvarnir í byggingunni, eldhættur og
þróun eldsins. Tölvuforrit eru notuð
til að spá fyrir um þróun nokkurra
brunaferla og hversu mikinn tíma fólk
hefur til að rýma bygginguna í hverju
tilviki.
Fyrir utan þessa þætti kemur efna-
fræði og meðferð hættulegra efna inn
í námið, auk áhættumats, slökkviefna
og slökkvifræða. Nýleg lenging náms-
ins stafar einkum af aukinni áherslu á
áhættumatið, en einnig hefur verið
bætt við námsskeiði um skipulag
sveitarfélaga.
Björgunarnámið
Til að brunatæknifræðingurinn
verði hæfur til að starfa innan slökkvi-
liða verður hann að taka eitt ár við
Ráddningsverkets skola i Revinge.
Hann er einn af fjórum björgunar-
skólum í Svíþjóð en annar slíkur, sem
margir íslenskir slökkviliðsmenn
þekkja, er í Sandö. Náminu í Revinge
má skipta í tvo meginþætti, annars
vegar stjórnun og þróun slökkviliða og
hins vegar atferlisfræði sem snýr
almennt að mannlegum samskiptum,
fræðslu og starfsmannastjórnun.
Kennsla í stjórnun slökkviliða á
vettvangi fer að miklu leyti fram í
formi verklegra æfinga. Fyrst eru tekin
fyrir minniháttar óhöpp, sem áhöfn
einnar slökkvibifreiðar ræður við.
„Óhöppin" fara síðan stækkandi, og að
lokum eru störf í stjórnstöð æfð, við
svipaðar aðstæður og gilda í skipulagi
almannavarna hér á landi. Margar
æfinganna eru haldnar sameiginlega
með öðrum hópum, sem eru í námi við
skólann, s.s. flokksstjórum og varð-
stjórum. Æfingarnar fara aðallega
fram á æfingasvæði skólans, en einnig
í yfirgefnum byggingum í nágrenninu.
Auk verklegra æfinga úti við eru settir
á svið ýmsir „leikir“ eða eftirlíkingar af
atburðum til að æfa vissa þætti stjórn-
unar á vettvangi.
Auk æfinganna sækja nemendur
fyrirlestra um ýmis málefni. Reynt er
að hafa þá sem fjölbreyttasta og
þannig að vel sé fylgst með nýjungum
í málaflokknum. Fengnir eru gesta-
fyrirlesarar víða að, s.s. yfirmenn
slökkviliða, kennarar frá öðrum
skólum auk aðila frá fyrirtækjum og
stofnunum sem tengjast þessum mála-
flokki.
Að lokum
Þess má geta að lokum, að
starfsvettvangur brunatæknifræðinga
breikkar stöðugt og einskorðast ekki
við slökkvilið og eldvarnareftirlit.
Margir þeirra starfa nú hjá trygginga-
félögum og stórum iðnfyrirtækjum og
einnig fjölgar þeim sem starfa á mark-
aðinum sem ráðgjafar og brunatækni-
legir hönnuðir.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
13