Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 36

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 36
eyri varð: já sögðu 86%, nei sögðu 0 % auðir og ógildir 14%. Á kjörskrá voru 14. Atkvæði greiddu 100%. Niðurstaða atkvæðagreiðslu í Brunavörnum Suðurnesja varð: já sögðu 93%, nei sögðu 6.6 % auðir og ógildir 0%. Á kjörskrá voru 15. Atkvæði greiddu 100%. Helstu efnisatriði sveitar- félagasamningsins: Ný launatafla er tekin upp, þrepa- fjöldi óbreyttur. Byrjunarlaun við undirskrift kr. 73.947, varðstjóra kr. 82.262, með full- um starfsaldri kr. 102.299 og slökkvi- liðsstjóra kr. 111.461, með fullum starfsaldri 134.835. Starfsheitahækkanir, sérstakur kafli um réttindi og skyldur. Tímamótakafli kemur inn í kjarasamninginn og verður „13. kafli Sérákvæði vegna hlutastarfandi slökkviliðsstjóra og tímakaupsmanna við eldvarnir. Bók- anir og yfirlýsingar: Lífeyrismál og starfslok slökkviliðsmanna, sérstök atriði tryggingarmála sett í sam- starfsnefnd, greiðslur fyrir þrek- þjálfun, tveggja manna nefnd fjalli um starfslok slökkviliðsmanna skili nið- urstöðu fyrir árslok 1997, að sam- starfsnefnd fjalli um heimildarhækk- anir félagsmanna með menntun á háskólastigi og unnið að niðurstöðu í félagsaðildarmáli aðstoðarslökkviliðs- stjórans á Akureyri fyrir 1. október n.k. Gildistími frá 1. maí 1997 til 1. nóvember 2000. Forvarna og fræðsludeild LSS sýninga og söluaðstaða að Síðumúla 8 Reykjavík opin alla virka daga milli frá 9-13 Aa°ins . <IIM,t" n’enn <>n, NAMSKEIÐ samkvæmt þínum óskum Margvísleg námskeið fyrir fyrirtæki, stofnanir, skóla og almenning sér- staklega sniðin að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Á síðasta ári voru haldin á vegum deildarinnar á annað hundrað námskeið og er áætlað að rúmlega 3000 manns hafi tekið þátt í þeim. Lokið er upp einum rómi um góða frammistöðu leiðbeinanda deild- arinnar sem allir eru þrautreyndir slökkviliðsmenn. Forvarna- og fræðslu- deild LSS starfar á landsvísu og eru slökkviliðsstjórar á landsbyggð enn- frekar hvattir til að nýta sér starfsemi hennar. Félagsmenn njóta sérstaks afsláttar. ELDVARNABÚNAÐUR Margvíslegur eldvarnabúnaður til sýnis og sölu: - slökkvitæki, - reykskynjarar, - eldvarnateppi, - gasskynjarar 12 og 220 v, - neyðarútgöngu stigar og línur, - Margvíslegar merkingar. MYNDBÖNDTIL SÖLU - Flóttaáætlun Andrésar, Eldvarnir í iðnaðar og atvinnuhúsnæði FRÆÐSLUEFNI - BÆKLINGAR - Flóttaáætlun „Eldvarnir og leikskólinn“ Neyðaráætlun leikskólans (veggmynd) - Glærusett til kennslu í leik- skólum - „Ert þú eldklár (almennt fræðsluefni) SÍMALÍMMIÐAR MEÐ NEYÐARNÚMERI Símalímmiðar Landssambands slökkviliðsmanna með neyðarnúmerinu 112 eru fáanlegir hjá Forvarnadeildinni. Vörn gegn Alvarlegir brunar af völdum sjónvarpstækja valda Straumrofi sem rýfur rafstraum að sjónvarpstækinu eftir 2,5 klukkustunda notkun. Tuttugu sekúndum áður en það gerist gefur rofinn frá sér lágt hljóðmerki. Þannig gefst þér tækifæri til að framlengja notkunartíma um aðrar 2,5 klukkustundir með því að þrýsta á stöðvarvalshnapp á fjarstýringu tækisins. TV-safer straumrofinn fáanlegur hjá: Radíómiðun lif. Grandagarði 9 Rvík-Sími 511 1010 Forvarna- og fræðsludeild LSS Síðumúla 8 Rvík - Sími 588 2988 36 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.