Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 35

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 35
Fréttir frá stjórn Að aflokinni samningagerð Starfslok tíl skoðunar LSS vill starfslok við 55 ára aldursmark. Viðsemjendur samþykktu að málið yrði tekið fyrir í sameiginlegri nefnd Samninganefndir slökkviliðsmanna, ríkis og Reykjavíkurborgar í ráðhúsinu við kjarasamningana í vor. Frá vinstri: Einar M. Einarsson, Jón Kristjánsson, Kjartan Sigurðsson, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Vignir Óskarsson, Jón Viðar Matthíasson, Ármann Björnsson, Óli R. Gunnarsson, Grétar Jónasson, Gunnar Eydal, Guðrún Árnadóttir og Ásgeir Pálsson. Norðan heiða rœddu slökkviliðsmenn við fulltrúa launanefndar sveitarfélaga. Frá vinstri: Rúnar Helgason, Karl Jörundsson, Sigurður Óli Kolbeinsson Lúðvík Hjalti Jónsson og Gunnar Rafn Sigurbjörnsson Meginkröfur LSS voru að leiðrétting yrði gerð á launum slökkviliðs- manna á grundvelli kröfu um iðnmenntun við ráðningu í starf. Einnig að sérnám væri metið til launa svo og að starfslok yrðu miðuð við 55 ára aldursmark vegna eðlis starfa slökkviliðsmanna. Niður- staðan í þessu máli varð að starfslok verði til skoðunar í nefnd sem skila mun niðurstöðu í árslok. Samningurinn við Reykjavíkurborg og ríkið Þann 21. maí s.l. var undirritaður þriðji kjarasamningur LSS við Reykja- víkurborg og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Kjarasamningurinn gildir fyrir félagsmenn hjá Slökkviliði Reykjavíkur, Reykjavíkurflugvelli og á Akureyrarflugvelli. Einnig gildir hann fyrir félagsmenn á Keflavíkurflugvelli sem viðmiðunarsamningur og vinnur LSS þessa daganna að útfærslu hans með Starfsmannahaldi Varnarliðsins og Kaupskrárnefnd Varnarsvæða. Niðurstaða atkvæðagreiðslu í Reykjavík varð: já sögðu 87%, nei sögðu 13 % auðir og ógildir 0%. Á kjörskrá voru 96. Atkvæði greiddu 79%. Niðurstaða atkvæðagreiðslu hjá Flugmálastjórn varð: já sögðu 75%, nei sögðu 20 % auðir og ógildir 5%. Á kjörskrá voru 23. Atkvæði greiddu 87%. Helstu efnisatriði kjara- samningsins: Nýtt kauptaxtakerfi var tekið upp, tilteknar álags- og aukagreiðslur felldar inn í reglubundin laun en að öðru leyti byggt á fyrri grunni. Byrjunarl. við undirskrift kr. 70.342 Byrjunarl í lok samningst. kr. 87.677 Aðalvarðstj. v. undirskr. kr. 93.356 Aðalvarðstj. lok samn. kr. 116.362 Starfsheitahækkun slökkviliðs- manns 1 og 2, menntun vegna grunnnáms og framhaldsnáms við sjúkra- og neyðarflutninga viðurkennt. Svokallað reykköfunarálag tók breyt- ingum yfir í reykköfunar/þrekálag, starfaldurþrepum fækkað úr átta í sex, yfirvinnuprósentu breytt úr 1.0385% í 1%, sérstakt hvíldartímaákvæði sett í samninginn. Bókanir og yfirlýsingar um: lífeyrismál og starfslok slökkvi- liðsmanna og aðkomu slökkviliðs- manna að starfsemi Neyðarlínunnar hf. og breytt fyrirkomulag sjúkra- flutninga á höfuðborgarsvæðinu. Gildistími frá 1. maí 1997 til 31. október 2000. Samningurinn við Launanefnd sveitarfélaga Þann 19. júní s.I. var undirritaður á Akureyri þriðji kjarasamningur LSS við Launanefnd sveitarfélaga. Kjara- samningurinn gildir fyrir félagsmenn starfandi hjá Slökkviliðinu á Akureyri og hjá Brunavörnum Suðurnesja. Kjarasamningurinn er að nokkru leyti öðruvísi uppbyggður en samningur félagsmanna hjá Reykjavíkurborg og ríki og á það einkum við um launatöflu og fjölda starfheita og innröðun. Stefnt er að því af hálfu beggja aðila að vinna að því að koma á einum samræmdum kjarasamningi. Niðurstaða atkvæðagreiðslu á Akur- SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 35

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.