Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 45
SR. Á þessum tíma var einnig verið að
skoða hvort ekki væri hægt að
sameina sjúkraflutningana á svæðinu
og þá jafnvel slökkviliðin. Niðurstaðan
varð sú að slökkviliðin voru ekki
sameinuð en Reykjavíkurborg og
Hafnarfjarðarbær gerðu sameigin-
legan samning við heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið í júní 1997
um sjúkraflutninga á höfuðborgar-
svæðinu sem festi áður gerðar breyt-
ingar varðandi þjónustu neyðarbílsins
frá fyrsta maí 1996 í sessi. Með
höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykja-
vík, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð,
Seltjarnarnes, Bessastaðahrepp, Mos-
fellsbæ, Kjalarnes, Kjósarsýslu og Blá-
fjallasvæðið.
Strax fyrsta maí 1996 komu fram
athugasemdir um að með stækkun á
þjónustusvæði neyðarbílsins yrði
þjónustan lakari og var þar bent á
ýmis atriði eins og t.d. ykust líkurnar á
því að hann yrði upptekinn þegar
annað neyðartilvik kæmi og einnig að
útkallstími hans yrði lengri svo
eitthvað sé nefnt. Þessar athuga-
semdir áttu fyllilega rétt á sér og var
því farið að skoða hvað væri hægt að
gera. Horft var á hvernig hlutunum er
fyrirkomið hjá öðrum þjóðum og
einnig gamlar hugmyndir ræddar.
Dustað var rykið af hugmyndum um
svo kallaða stefnumótaaðferð sem er
þekkt víða erlendis. Varð það ofaná að
í júní s.l. var ráðist í að reyna
stefnumótaaðferðina á svæðinu sem
byggist á því grundvallaratriði að bíll
(stefnumótabill) mannaður einum
sjúkraflutningamanni og lækni fer í
neyðarútköll með öðrum sjúkrabílum
en flytur ekki sjúklinga. Með þessu
móti er sérfræðiþekking læknis ávallt
aðgengileg en ekki bundin í flutningum
á einstaka sjúklingum sem eru oft á
tíðum tímafrekir og ekki nauðsynlegt
að læknir sé að sinna. Læknirinn getur
þó farið með þeim sjúkrabílum sem
flytja ef hann telur það sé nauðsynlegt
allt eftir aðstæðum hverju sinni.
í dag eru vel útbúnir sjúkrabílar
mannaðir tveim sjúkraflutningamönn-
um með neyðarbílsmenntun tilbúnir í
útkall með stefnumótabílnum á þrem
slökkvistöðvunum á svæðinu. Slökkvi-
stöðvarnar eru mjög vel staðsettar
landfræðilega eða ein í Flatarhrauni
Hafnarfirði og tvær í Reykjavík þ.e.a.s.
í Skógarhlíð og Tunguhálsi, sem er
mjög mikilvægt til að lágmarka
útkallstíma sjúkrabílanna. Hugmynda-
fræðin bakvið stefnumótaaðferðin er
að nýta reynslu, menntun og þekkingu
allra aðila á sínu sviði hverju sinni.
Reynsla, menntun og þekking sjúkra-
flutningamanna og þeirra lækna sem
sinna sjúkraflutningum er til fyrir-
myndar og gerir það kleift að hægt er að
reyna stefnumótaaðferðina á svæðinu.
FLEECE FATNAÐU R
□ NDUNARFATNAÐUR
KU LDAGALLAR
VINNUFATNAÐUR
BAKPDKAR
SVEFNPDKAR
GÖNGUSKÓR
BETRI FATNAÐUR
«Sc MARGT FLEIRA...
SKEIFUNNI 15 S: 568 5222
SLOKKVILIÐSMAÐURINN
45