Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 32
Forvarna-og fræðsludeild LSS
Hugað að eldvörnum
og eldvarnabúnaði
sumarhússins
*
I hverju sumarhúsi
skal vera reykskynjari og slökkvitæki
Sumarhúsaeigendur ekki síð-
ur en aðrir eigendur fast-
eigna þurfa að hafa eldvarn-
irnar í lagi. Þar sem oftast er
langt í næstu aðstoð slökkvi-
liðs er enn brýnna að geta
brugðist strax við ef eldur
kemur upp og ekki er verra
að hafa kynnt sér réttu
handtökin.
Öll viljum við hafa dvölina í
sumarhúsinu áhyggjulausa og nota-
lega, lausa við öll óþægindi og þá ekki
síst lausa við slys eða þann ógnvald
sem eldurinn getur verið. En til þess
að svo geti orðið verður m.a. að hafa
réttan eldvarnabúnað og hafa kynnt
sér notkunarreglur hans. Þá er rétt
uppsetning og fagmannlegur frágang-
ur á gaslögnum, uppsetning á eld-
unaraðstöðu eða öðrum varmagjöfum
og geymsla forðakúta ekki síður mikil-
væg.
Eldhættan
Höfum í huga hin gullnu orð „við
tryggjum ekki eftir á“ hvort heldur um
er að ræða líf eða eignir. í sumarhúsum
leynast víða eldhættur án þess að við
hugum beinlínis að því daglega.
Algengt er að frágangur reykrörs sé
ekki réttur þ.e. liggur of nálægt brenn-
anlegum efnum. Það tekur fagmann
innan við dagstund að ganga réttilega
frá slíkum hlut. Eldstæði innanhúss
getur við vissar kringumstæður verið
varasamt ef mallandi glóð gengur á
súrefnismagn herbergisins þannig að
aðstæður til nokkurs konar yfir-
tendrunar geta skapast, þ.e. eld-
sprenging. Nú eru fáanlegir á mark-
aðnum sérstakir skynjarar sem gefa
frá sér aðvörunarhljóð ef súrefnis-
magn fer niður fyrir lágmark. Gashitun
skapar alltaf allnokkra eld - og
sprengihættu ef ekki er rétt staðið að
málum. Það á einnig við hér að grund-
vallaratriði er að notað sé rétt lagna-
efni og öll vinna við samsetningar sé
vel úr garði gjörð, staðsetning tækja
og forðakúts sé rétt. Við óvandaðan
frágang eykst lekahætta við tengingar
og samskeyti. Brunamálastofnun rík-
isins hefur gefið út reglur um upp-
setningu á F- gasbúnaði fyrir heimili,
sumarhús, húsvagna og húsbíla og eru
sumarhúsaeigendur hvattir til að
kynna sér þessar reglur vel.
Látið fagmenn annast upp-
setningu og frágang á gas-
tækjum, ofnum, kamínum
og öðrum þeim tækjum er
eld - og sprengihætta getur
stafað af!
Víða má sjá að ekki hefur verið
hugað að neyðarútgöngu af svefnlofti
sumarhúsa. Við slíkar aðstæður getur
í raun myndast dauðagildra þar sem
eðli reyksins er að stíga hratt upp
vegna hitans. Við eld er því hætta á að
reykur safnist fyrst fyrir á svefnloftinu.
Þá er rétt að benda á að hann er í
fyrstunni „nær lyktarlaus" eða á með-
an hann slævir meðvitundina. Þannig
eru algengustu dauðsföll af völdum
elds almennt að næturlagi. Nauð-
synlegt er því að tryggja manngengt
opnanlegt gluggafag en jafnframt er
hægt að fá handhæga brunastiga þar
sem þess gerist þörf á verðbilinu 8 til
12 þúsund krónur.
Höfum hugfast að nauðsynlegur
öryggisbúnaður er í raun afar ódýr
líftrygging.
Helsti búnaður:
Slökkvitæki sem innihalda duft,
léttvatn eða vatn, reykskynjari, gas-
skynjari (12 volt eða 220), skynjari á
súrefnishlutfalli herbergisins, eld-
varnateppi og Iéttur stigi fyrir
neyðarútgöngu. Allt öryggisbúnaður
fáanlegur á góðu verði hjá viður-
kenndum söluaðilum.
• Skipta skal um rafhlöðuna í reyk-
skynjaranum einu sinni á ári.
• Vatnstæki þurfa að vera frostvarin
með þar til gerðum efnum eða
fjarlægjast að vetri.
• Látið viðurkennda aðila yfirfara
ástand slökkvitækja árlega. Fylgist
Almannava
Fallhlífastö
framkvæ
Sólveig Þorvaldsdóttir fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins er 36 ára gömul, bygg-
ingaverkfræðingur frá Háskóla
Islands og marg reynd og þjálfuð í
björgunarmálum.
32
SLOKKVILIÐSMAÐURINN