Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 18
Samstarfsverkefni LSS, Félags eldri borgara og VÍS
Góður árangur
Segir Ragnheiður Davíðsdóttir um reynsluna
af kynningarkvöldum um forvarnir meðal eldri borgara.
Vígreif í forvörn. Gunnar Hjaltested, frá VÍS, Oddur Hallgrímsson slökkviliðsmaður
úr forvarnardeild LSS og Ragnheiður Davíðsdóttir forvarnarfulltrúi VÍS.
- Þetta er meðal þess sem er einna
skemmtilegast í starfi mínu, áheyr-
endur eru þakklátir og skemmtilegir
og ég er viss um að samstarfið skilar
árangri, segir Ragnheiður Davíðsdóttir
forvarnarfulltrúi VÍS sem hefur staðið
að samstarfsverkefni um forvarnir
meðal eldri borgara. Eftirspurn eftir
þessari dagskrá er mjög mikil og
þörfin reyndar brýn, segir Ragnheiður.
Forvarnardagskrá VÍS, í samstarfi
við Félag eldri borgara og Lands-
samband slökkviliðsmanna hefur
gengið afar vel. Dagskráin hefur verið
flutt fyrir yfir 1000 eldri borgara. Frá
LSS hefur Oddur Hallgrímsson verið
aðal maður en auk hans eru
fyrirlesarar þau Ragnheiður Davíðs-
dóttir og Gunnar Hjaltested frá VÍS.
Dagskráin tekur eina klukkustund
og er þar fjallað um slysavarnir, innan
húss og utan, brunavarnir, þjófavarnir,
vatnstjónavarnir auk þess sem
fræðsla er um tryggingamál gamla
fólksins. Að lokinn formlegri kynningu
er boðið upp á kaffi og meðlæti.
- Við reynum að hafa kynninguna
af léttara taginu, þannig að hún sé
afþreying jafnframt því upplýsinga-
gildi sem hún hefur. Margir í félags-
miðstöðvum eldri borgara líta þannig
Áhugasamir þátttakendur á
forvarnarkvöldi.
á kynninguna sem kærkomna tilbreyt-
ingu.
Auðvitað er ellin eðlilegt náttúru-
lögmál og nauðsynlegt að fólk búi sig
undir hana með margvíslegum hætti.
Með aldrinum koma nýjar hættur til
sögunnar sem fólk þarf að varast.
Reynslan sýnir líka að hægt er að
koma í veg fyrir ýmiss konar slys og
tjón með því að sýna fyrirhyggju, t.d.
með því að koma upp nauðsynlegum
eldvarnarbúnaði og þjófavörnum.
Margir hafa því notað tækifærið að
afloknum fundum og pantað reyk-
skynjara og gert aðrar ráðstafanir í
öryggis- og tryggingamálum sínum.
- Við höfum farið mjög víða með
dagskrána í Reykjavík og nágranna-
sveitarfélögum og höfum einnig nokk-
uð farið út á land. En við eigum eftir að
fara bæði vestur og austur um landið -
og gerum vonandi víðreist næsta
vetur, segir Ragnheiður Davíðsdóttir
forvarnarfulltrúi.
18
SLOKKVILIÐSMAÐURINN