Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Qupperneq 20
Baknefnd vegna samninga fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn að störfum sl.
vetur. Frá vinstri: Rúnar Helgason Brunavörnum Suðurnesja, Snorri Baldursson
Slökkviliði Hveragerðis, Kristján K. Pétursson Brunavörnum Árnessýslu, Þráinn
Ólafsson Slökkviliðinu Akranesi, Guðmundur Vignir Óskarsson og Ásmundur
Jónsson Slökkviliðinu í Grindavík.
Fréttir frá stjórn:
Samnringur fyrir hlutastarfandi
slökkviliðsmenn
Þau tímamót urðu í nýafstaðinni samningagerð LSS og Launanefndar
sveitarfélaga að kjör þeirra félagsmanna er hafa slökkvistörf ekki að aðalstarfi
heldur sinna þeirn eingöngu sem aukastarfi (þ.e. slökkviliðsmenn hjá minni og
meðalstórum slökkviliðum á landsbyggð) fengu sinn fyrsta formlega samning.
Fram til þessa hefur svokölluð „Launatafla LSS“ gilt í flestum tilfellum fyrir
þessa félagsmenn en mun nú aflögð um leið og samningsumboð þeirra
sveitarfélaga er félagsmenn LSS tilheyra hefur verið staðfest. Launanefnd
sveitarfélaga hefur nú sent öllum sveitarstjórnum nýja kjarasamninginn við
LSS og munu nú aðilar vinna markvisst að því að sveitarstjórnir staðfesti hann
sem allra fyrst. Mikilvægt er að slökkviliðsstjórar fylgi málinu einnig eftir
heima í héraði og eru þeir sérstaklega hvattir til þess hér með.
Kjör og allur aðbúnaður slökkviliðsmanna í hlutastörfum á landsbyggð er
of víða óviðunandi. Þessi fyrsti samningur LSS fyrir þeirra hönd hefur bæði
sína kosti og galla, þó mun fleiri kosti en er fyrst og fremst mikilvægt skref í
þá átt að aðilar geti sameiginlega þróað þessi mál til betri vegar vonandi á sem
allra skemmstum tíma.
Helstu efnisatriði kjarasamningsins:
Eingreiðslur til slökkviliðsstjóra skulu fara fram 1. júní ár hvert en heimilt
er að semja um að þær fari fram mánaðarlega, lægsta eingreiðsla miðast við
kr. 100.000, greiðsla vegna sérnáms 3%, sérstaklega greitt fyrir starf að
eldvarnaeftirliti, varaslökkviliðsstjóri 50% af launum slökkviliðsstjóra,
tímakaup miðast við yfirvinnukaup, yfirmenn skulu fá einkennisfatnað til
afnota við skyldustörf, útkall miðast við 4 klst., tryggingarkafli kjarasamnings
gildir fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn, slökkviliðsmönnum séð fyrir
hlífðar - og öryggisfatnaði, sérstaklega skal greitt fyrir það að bera boðtæki,
orlof og lífeyrissjóðsiðgjald af öllum launum, aðstaða til líkamsþjálfunar veitt
að kostnaðarlausu svo og aðgangur að sundstað verði því við komið, greitt er
í starfsmenntunasjóð LSS. Að öðru leyti gilda ákvæði kjarasamnings
slökkviliðsmanna í aðalstarfi þar sem það getur átt við.
Slökkviliðið á Hvolsvelli
Sameinað
slökkvilið fyrir
Rangárvallarsýslu
í burðarliðnum
Böðvar Bjarnason slökkviliðsstjóri á
Hvolsvelli.
Hugmyndir eru nú uppi um að átta
hreppar í Rangárvallarsýslu sameinist
um eitt slökkvilið fyrir sýsluna. Þessir
hreppar eru:
Hvolshreppur,
Fljótshlíðarhreppur,
V. og A. Eyjarfjallahreppar,
V. Landeyjarhreppur og
Holta og Landmannahreppur
Slökkviliðsstjóri slökkviliðsins á
Hvolvelli er Böðvar Bjarnason og er
hann 35 ára gamall. Að sögn Böðvars
var hann fyrst skráður í liðið árið 1982
en varð síðan slökkviliðsstjóri árið
1990 og hefur starfað sem slíkur síðan.
í dag eru 15 menn skráðir í
slökkviliðið, tólf af þeim bera síma-
boðtæki liðsins, fimm þeirra geta
unnið við reykköfun. Bifreiðakostur
slökkviliðsins er Bedford árgerð 1962,
Ford (Econaline) árg. 1977 og síðan
Skanía tankbifreið með vatnstank er
tekur 8.000 lítra. Að sögn Böðvars er
orðið afar brýnt að endurnýja bíla-
kostinn þar sem hann er kominn til ára
sinna og jafnframt gera frekari
endurbætur á starfi liðsins m.a. vegna
stöðugt vaxandi krafna til þjónustu
slökkviliðs.
Með sameiningu hreppanna um eitt
slökkvilið í Rangárvallarsýslu yrði
stigið mikilvægt framfaraskref í þá átt
að byggja markvist upp skilvirkari og
betri þjónustu brunavarna í allri
sýslunni.
20
SLOKKVILIÐSMAÐURINN