Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 21

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 21
Slökkviliðsmenn frá Hellu og Hvolsvelli á fundi með LSS í sumar. Frá vinstri: Guðni Gunnar Kristinsson, Kristinn Gunnarsson, Smári Sigurbjörnsson, Bjarni Snorrason, Ólafur Hróbjartsson, Böðvar Bjarnason, Guðmundur Vignir Óskarsson, Birgir Óskarsson, Gunnar Sveinsson, Sigurður Magnússon og Tryggvi Sigurður Bjarnason. m' f . y'w' ■- f ■. ■ ' V L H 1 'W‘[j; MBtt %5fr l.É Nýr slökkviliðsstjóri á Vopnafirði Það er vaxandi skilningur á mikilvægi uppbygg- ingarinnar hér og sveitarstjórnin hefur samþykkt að veija allt að 6 milljónum króna til bílakaupa, segir Björn H. Sigurbjörnsson nýráðinn slökkviliðsstjóri á Vopnafirði í spjalli við Slökkviliðismanninn. Þann 1. maí s.l. lét Elvar Höjgaard af störfum sem slökkviliðsstjóri Vopnafjarðar. Við starfinu tók Björn H. Sigurbjörnsson.sem var varaslökkviliðsstjóri frá 1994 til 1997. Hann hóf störf hjá Slökkviliði Vopnafjarðar árið 1986. Eiginkona Björns er Margrét Gunnarsdóttir og eiga þau tvo syni, Elías og Bjarka. Hann hefur m.a. sótt nokkur námskeið hjá Brunamálastofnun og verið á yfirmannanámskeiði í Svíþjóð. - í 14 manna Iiði okkar hér eru góðir menn, sterkur liðsandi og áhugasamir slökkviliðismenn. Við þyrftum helst að vera 16 til 18 í liðinu að mínu mati. Að ýmsu Ieyti er tækjakostur góður. Við eigum æfingagám sem við erum að búa út fyrir reykkafara og verður gámurinn staðsettur við hliðina á slökkvistöðinni. - Bílakostur liðsins er óviðunandi, Bedford 1962 og Dodge Weabon 1954 árgerðin. Bílakostur stendur þó mjög til bóta því samþykkt hefur verið að festa kaup á notuðum bíl frá Þýskalandi eða Hollandi. Björn H. Sigurbjörnsson slökkviliðsstjóri á Vopnafirði fyrirframan bílakostinn í sumar. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF. - Þegar mest á reynir! SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 21

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.