Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 5
ÁVARP í TILEFNI
AF DEGI FATLAÐRA
Idag, 13. október 1989 gangast
heildarsamtök allra fatlaðra og
aðstandenda þeirra hér á landi
fyrir Degi fatlaðra á Islandi undir
yfirskriftinni LÍFSGÆÐI. Með
þessum aðgerðum vilja samtökin ná
eyrum almennings og stjórnvalda
þessa lands og kynna fyrir þeim nokkr-
ar staðreyndir, sem blasa við fötluðu
fólki og fjölskyldum þess.
Heildarsamtök fatlaðra fagna því
sem áunnist hefur á undanförnum ár-
um. Fyrir tilstuðlan samtakanna og
áhuga einstakra stjómmálamanna, er
aðstaða margra fatlaðra nú betri en
nokkru sinni fyrr. Hins vegar er það
staðreynd, að í dag ríkir algjört neyð-
arástand í umönnun og húsnæðismál-
um hjá fjölmennum hópum fatlaðs
fólks.
Staðreyndin er, að þrátt fyrir sam-
býli sem reist hafa verið á undan-
fömum árum, hrannast upp biðlistar
hjá svæðisstjórnum, sveitarfélögum
og Hússjóði Öryrkjabandalags
íslands. Fjölskyldur ráða alls ekki við
að veita fjölfötluðum einstaklingum
nauðsynlega aðhlynningu og því hefur
skapast neyðarástand á mörgum heim-
ilum. Á undanfömum árum hafa heild-
arsamtök fatlaðra reynt að benda
stjómvöldum á þessar staðreyndir á
margvíslegan hátt.
Samtökin hafa meðal annars staðið
fyrir fjölmennum samkomum þar sem
stjómmálamenn hafa gefið afdráttar-
laus loforð um lausn þessa vanda, en
minna hefur orðið um efndir. Þrátt
fyrir alla þessa baráttu hefur ekki einu
sinni verið haldið í horfinu og biðlistar
hjá svæðisstjómum lengjast dag frá
degi. Heildarsamtök fatlaðra eru orðin
langþreytt á þessu ástandi og telja
fullreynt, að hægt sé að ná eyrum
stjómmálamanna, með hefðbundnum
hætti.
Fötlun er ekki einkamál fatlaðra
eða fjölskyldna þeirra. I raun er engin
trygging gefin í þessum efnum. Hin
fjölmörgu umferðar- og atvinnuslys,
ýmsir sjúkdómar, svo og aukin tækni
og þekking á sviði læknavísinda, hafa
Ásdís Skúladóttir flytur ávarpið.
orðið þess valdandi að fötluðu fólki
hefur fjölgað. Stuðningur launþega-
samtakanna endurspeglar, svo að ekki
verður um villst, þann vilja
þjóðarinnar að fatlaðir njóti jafnréttis
og lífsgæða. Þessa samstöðu fjöl-
mennustu samtaka landsins geta
stjómmálamenn ekki sniðgengið.
Samfélag manna byggir á
samábyrgð einstaklinga. Án
samábyrgðar ríkir stjórnleysi. Þess
vegna ætlast þjóðin til þess að fatlaðir
njóti jafnréttis og lífsgæða á sama hátt
og ætlast er til að hinir ófötluðu vinni
hver með sínum hætti að bættum
lífskjörum heildarinnar.
án tillits til þess hvar í flokki þeir
standa.
Það er smánarblettur á þjóðinni að
umönnun og húsnæðismál fatlaðs
fólks skulu vera með þeim hætti, sem
raun ber vitni. Menn verða að taka tillit
til þess að stórfjölskyldan er liðin undir
lok og einyrkjabúskapur tekinn við, og
þess vegna verður samfélagið að koma
til móts við þarfir þeirra sem þurfa á
hjálp að halda.
Öryrkjabandalag Islands,
Landssamtökin Þroskahjálp, Banda-
lag háskólamanna, Bandalag kenn-
arafélaga, Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja og Alþýðusamband íslands
skora því á stjómvöld að gerð verði nú
þegar í þingbyrjun fjögurra ára áætlun,
með það markmið í huga, að útrýma
þeim neyðarbiðlistum eftir húsnæði og
þjónustu, sem nú eru fyrir hendi og
tryggja jafnframt nauðsynlegt
rekstrarfé.
Samtök fatlaðra eru nú reiðubúin
að heyja baráttu fyrir stefnumálum
sínum með öllum tiltækum ráðum.
Sjái stjórnmálamenn ekki hina
siðferðilegu skyldu sína með eigin
augum, munu hagsmunasamtök
fatlaðra finna leið til þess að rödd þessa
þjóðfélagshóps heyrist á Alþingi
Islendinga.
Neyðarástand í málefnum fatlaðra
er vandi samfélagsins og þennan
vanda verða stjómmálamenn að leysa,
Ávarpið var flutt af Ásdísi
Skúladóttur leikkonu og
félagsfræðingi.
Alla vega er alvaran í svipnum.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5