Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Síða 7
lega. Annað er svo alls óviðunandi að
engu tali tekur.
Einn ljós punktur svo í lokin, þó
ekki stafi af honum neinn töfraljómi:
Inni á fjárlagalið heilbrigðisráðu-
neytis er þó viðurkenningarframlag
fyrir heimili fyrir mænuskaddaða og
vilyrði mun fyrirhækkun þess. Sífelld
barátta okkar fyrir því að einnig yrði
veitt til þessa á fjárlögum sérstaklega,
hefur sem sé borið árangur - þó
takmarkaður sé og sú upphæð bætist
þó við fé framkvæmdasjóðsins nú og
vonandi næst einnig.
Annars er nú eftir ákveðin barátta
við fjárveitinganefnd um lágmarks
leiðréttingar og bezt að segja ekki
meira nú um þessi fjárlagamál, þó ég
viti mætavel, að þegar Fréttabréfið
kemur út, þá verða þingmenn að
ganga frá lokatölunum, sem ekki
verður þá breytt.
Afram heldur hin eilífa barátta og
ekki annað að gera en ganga þar til
verks af djörfung þeirra sem vita sig
vera að gera réttlætiskröfur, sem allt
samfélagið ætti í raun að taka
heilshugar undir.
Að loknum lestri í október,
Helgi Seljan.
Nokkrar staðreyndatölur fjárlagafrumvarps: Allt í þús.
I. Heildartala félagsmálaráðuneytis nú: 1.144.780
í fyrra 935.798
Almennur rekstur 143.156
Aðalupphæð þar varðar greiðslur v. 10 gr. 119.930
Málefni fatlaðra a) Reykjavík 300.978
b) Reykjanes 232.640
c/ Vesturland 32.107
d/Vestfirðir 35.858
e/Norðurland vestra 28.768
f/Norðurland eystra 186.074
g/Austurland 48.097
h/Suðurland 137.102
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins 55.327
Framkvæmdasjóður fatlaðra 201.000
II. Tölur úr heilbrigðisráðuneyti
Málefni fatlaðra 45.850
Heymar- og talmeinastöðin 56.941
Sjónstöðin 21.664
Þroskaþjálfaskólinn 14.192
Heimili mænuskaddaðra 2.000
Stofnanir öryrkja og þroskahefta 279.651
III. Tölur úr menntamálaráðuneyti
Skólar fyrir þroskaheft börn 358.272
Heyrnleysingjaskólinn 55.786
Sérkennsla í grunnskólum 15.255
Til íþróttamála fatlaðra, samtals 5.760
Auk þessa eru svo ósundurgreindir félagastyrkir og margt fleira mætti til
tína, en hér skal að sinni láta staðar numið og breytinga til nokkurra bóta
beðið. H.S.
Guðmundur Einarsson.
Setjarinn og
umbrotsmað-
urinn
Eins og lesendur hafa eflaust tekið
eftir hefur setning og umbrot Frétta-
bréfsins verið í höndum Guðmundar
Einarssonar prentara, allt þetta ár.
Guðmundur er ekki við eina fjölina
felldur í útgáfumálum, því hann er
maðurinn á bak við MS-blaðið, en í
MS-félaginu er Guðmundur virkur
félagi.
S vona í árslok þykir ritstjóra rétt að
birta litla mynd af samstarfsmanni
sínum og tjóa engin mótmæli af hálfu
hins hógværa ljúfmennis, sem Guð-
mundur er.
Ritstjóri vill þakka ánægjulegt
samstarf á árinu og væntir hins besta á
næsta ári.
Af kostgæfni og einlægum hug, er
unnið af hálfu Guðmundar og hann
hefur m.a.s. náð því undravel að lesa
hina torráðnu rithönd ritstjórans, en
það ku vera æðsti draumur hvers
setjara að geta lesið næstum hvaða
hrafnaspark sem er, eða var það a.m.k.
fyrir tíma tölvunnar.
Einlægar þakkir til Guðmundar og
auðvitað getur undirritaður ekki annað
en þakkað Elínborgu konu hans hinar
ágætu veitingar, sem oft tefja
ritstjórann talsvert.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
7