Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 2020 23
Svínapestin í Póllandi:
Tíu ný tilfelli veirusmitaðra villisvína
hafa komið upp í vesturhluta Póllands
– Þjóðverjar reisa girðingar til að reyna að hefta för villisvína frá Póllandi
Þann 23. desember síðastliðinn
bárust þær fréttir frá Póllandi
að fundist hafi 10 ný smittil-
felli afrísku svínapestarinnar
(African Swine Fever - ASF)
í vesturhluta landsins. Smit
hafa komið upp hjá 237 svína-
ræktendum í Póllandi. Í tilraun
til að hefta för smitaðra villisvína
hafa stjórnvöld í Þýskalandi
verið að reisa girðingar á landa-
mærunum við Pólland.
Hinn 23. desember tilkynnti
pólska heilbrigðiseftirlitið að
smitaðir svínaskrokkar hafi fund-
ist á öðrum tug staða og væri
heildartalan vegna smittilvika í
vesturhluta Póllands komin í 71.
Að minnsta kosti 87 villisvín hafa
drepist af völdum afrísku svína-
pestarinnar í vesturhluta Póllands.
Nýjustu smitin fundust á
svæði sem þegar var vitað að
væri smitað, þannig að heildar-
fjöldi sýktra svæða hefur ekki
breyst. Smitsvæðið er 65 km að
breidd að vesturlandamærunum
að Þýskalandi og 55 km til norð-
urs og suðurs. Svæðið nær inn í
héruðin Lubusz, Mikla-Pólland
(Wielkopolska) og Neðri-Slesíu.
Smit hefur komið upp hjá 237
svínaræktendum í Pólllandi
Afríska svínapestin hefur verið
til staðar í 5 héruðum í Austur-
Póllandi síðan 2014. Hefur smit
breiðst út meðal villisvína og
borist í svín hjá 237 bændum og
bakgarðaræktendum, sem svo eru
nefndir samkvæmt frétt á vefsíðu
Pig Progress.
Þjóðverjar reisa
varnargirðingar
Um miðjan desember voru settar
upp nýjar varnargirðingar við
þýsk-pólsku landamærin nálægt
landamæraborginni Guben, í þýska
ríkinu Brandenburg. Þetta er í 35
km fjarlægð frá pólska þorpinu
Trzebule, í landamærahéraðinu
Lubusz þar sem ASF smit hefur
áður fundist.
Horft á allt svæðið milli
Frankfurt og Tékklands
Neytendaverndarráðuneytið
í Brandenburg sagði að mest
áhersla væri nú lögð á að koma
í veg fyrir að vírusinn hoppi yfir
landamærin og til svæðanna við
Spree-Neisse og Oder-Spree sem
og til borgarinnar Frankfurt við
Oder. Það nær yfir öll landamærin
milli Frankfurt við Oder og þaðan
í suður til landamæranna við
Tékkland, fjarlægð, sem er um
160 km í beinni fluglínu.
Pólsk-þýsku landamærin
fylgja hins vegar ánum Oder og
Neisse í stórum sveig, þannig að
heildarlengd landamæra sem þarf
að skoða er talsvert lengri.
Ráðuneytið sagði að tímabundn-
ar girðingar séu 90 cm á hæð og
verði áfram hafðar á sínum stað
meðan áhættuástand ríkir hinum
megin við landamærin. Áætlað er
að uppsetning girðinganna kosti
um 160.000 evrur. Sveitarfélög
munu sjá um framkvæmdina.
Ursula Nonnemacher, ráðherra
neytendaverndar í Brandenburg-
ríki, sagðist vona að girðingarnar
myndu veita vernd að vissu marki.
Ekkert tilfelli af afrískri svína-
pest hefur fundist í Þýskalandi
hingað til. Ef það gerist munu
afleiðingar verða slæmar hvað
varðar útflutning á svínakjöti til
landa utan ESB. Verðlækkunin
á svínakjöti frá sýktum svæðum
sem því fylgir mun einnig hafa
áhrif í löndum eins og Danmörku
og Hollandi, sem bæði flytja út
grísi til áframeldis í Þýskalandi.
Reyndar eiga danskir bændur
mikið undir því þeir hafa verið
með öflugt áframeldi á grísum í
Póllandi.
Meirihluti allra smitaðra villi-
svína hefur fundist í Lubusz-
héraði, eða 59 dýr. Hefur
smituðum dýrum þar fjölgað um
5. Smit á þessu svæði hafa verið
í 15 km radíus umhverfis bæinn
Konotop.
Fjöldi smitaðra dýra sem
fundist hafa í Stóra-Póllandi
(Wielkopolska) tvöfaldaðist 23.
desember, eða úr 5 í 10. Öll dauð
dýr á því svæði fundust innan 10
km frá hvort öðru – og voru einnig
innan 25 km frá Konotop í Lubusz-
héraði sem er mikilvægasta svína-
ræktar hérað Póllands.
Í Neðra-Silesíu hafa enn sem
komið er aðeins fundist tveir
skrokkar af svínum sem drepist
hafa af völdum ASF. Þeir fund-
ust 22. og 27. nóvember sl. Báðir
fundust þeir innan við 2 km frá
landamærum Lubusz-héraðs og
um 20 km frá Konotop.
/HKr.
Ursula Nonnemacher, ráðherra neytendaverndar í Þýskalandi, við varnar-
girðingu sem sett hefur verið upp nærri bænum Guben á landamærum
Póllands og Þýskalands. Mynd / Neytendaverndarráðuneytið í Brandenburg í Þýskalandi
Girðingin sem reist hefur verið á landamærum Þýskalands og Póllands til
að stöðva för villisvína er 90 sentímetrar að hæð.
FJÓSAINNRÉTTINGAR
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
Bænda
23. janúar
ASF-veirusýkingin í Indónesíu:
Staðfest að 28.000
svín hafi drepist
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin
(World Organization for Animal
Health - OIE) staðfesti um miðjan
desember síðastliðinn að 28 þús-
und svín hafi drepist í Indónesíu
úr afrísku svínapestinni (ASF).
Þetta varð ljóst þegar OIE sendi
frá sér sína fyrstu uppfærslu um
framvindu vírussins til Indónesíu.
Í uppfærslunni kom fram að alls
hefðu smit fundist á 392 mismun-
andi búgörðum og hjá bakgarðs-
ræktendum og 28.136 svín hafi
drepist. Indónesísk yfirvöld áætl-
uðu að í 34 héruðum væru alls 1,23
milljónir svína. ASF-veiran hefur
fundist í 16 héruðum landsins.
Fyrsta smittilfellið var dagsett 4.
september 2019.
Í nóvember var þegar greint
frá því að ASF smit hafi fundist á
norðurhluta eyjaklasans. Staðfestu
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem og
indónesíska landbúnaðarráðuneytið
einnig þessi smit.
Í nóvember tilkynntu yfirvöld
á Indónesíu einnig um sýkingu
á Classical Swine Fever (CSF) í
Norður-Súmötru. Þá hafði OIE smit
ekki áður verið staðfest þar.
Indónesía er ekki mikið svína-
ræktarland þar sem meirihluti íbú-
anna kýs að borða aðrar tegundir
af próteini af trúarlegum ástæðum.
Engu að síður voru 8,1 milljón svína
í landinu árið 2017 samkvæmt upp-
lýsingum frá FAO. /HKr.
Dauð svín grafin í Indónesíu. Mynd / PHYD.ORG
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR