Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202034
Í desember sl. kom út áhuga
verð skýrsla á vegum Evrópu
sambandsins (ESB), en hún
inni heldur spá um þróun land
búnaðar mála á helstu mörkuðum
aðildarlanda sambandsins sem
og innan landanna sem standa
að sambandinu. Skýrslan nær til
næstu tíu ára og í henni er því
horft fram til ársins 2030.
Skýrsluhöfundarnir taka við
skrif sín tillit til aðgengilegra
upplýsinga um þróun hagvaxtar,
stjórmála, umhverfismála,
neyslubreytinga, veðurfars og
þróunar alþjóðlegra viðskipta auk
annarra þátta sem kunna að hafa
langtímaáhrif á viðskipti með
landbúnaðarvörur. Í skýrslunni er
víða komið við og er þar býsna
margt sem vekur athygli en
almennt er því spáð að markað
ur fyrir landbúnaðarvörur muni
ekki taka neinum stakkaskiptum
á komandi árum. Í skýrslunni er
fjallað um allar helstu bú greinar
land búnaðarins en hér verður
einungis gerð grein fyrir því sem
snýr að mjólk og kjöti.
Hægir á framleiðslu-
aukningu mjólkur
Í skýrslunni kemur fram að þess
er vænst að nokkuð ör vöxtur
mjólkurframleiðslunnar muni
hægja á sér á komandi árum vegna
hertra reglna varðandi umhverfismál
og aukna sjálfbærnikröfu
við framleiðsluna. Þá muni
neysluhegðun halda áfram að
breytast sem muni leiða af sér minni
eftirspurn eftir ákveðnum
mjólkurvörum en aukna
eftirspurn eftir sérstökum
mjólkurvörum svo sem
mjólkurvörum sem eru
lífrænt vottaðar en því
er spáð að lífrænt vottuð
mjólk muni verða 7% af
allri framleiddri mjólk
innan ESB landanna árið
2030. Þá er því spáð að
mjólk og mjólkurvörur
sem hafa hlotið sérstaka
vottun, eins og t.d.
sótsporslaus mjólk, mjólk
sem framleidd er einungis
með heygjöf, mjólk frá
kúm sem eingöngu er
beitt á gras o.s.frv. muni
ná aukinni hlutdeild á
komandi árum.
Mjólkurframleiðslan
aukist um 11
milljarða kg
Þessar auknu kröfur munu
leiða til þess að fram leiðsla
mjólkur mun aukast,
en hægar en undanfarin
ár, og fara úr alls 168
milljörðum kg árið 2019
í 179 milljarða kg árið
2030 sem er aukning um 0,6% á
ári en áratuginn þar á undan jókst
framleiðslan að jafnaði um rúmlega
1% á ári.
Alls nemur aukningin 6,5%
á 10 ára tímabili en þess má
geta að þetta er töluvert minni
aukning en FAO hefur spáð fyrir
um á heimsvísu en talið er að
mjólkurframleiðsla heimsins á
sama tímabili muni aukast nærri
þrefalt á við spá ESB. Skýringin
á þessum mun felst í því að þess
er vænst að mjólkurframleiðslan
í þróunarlöndunum muni vaxa
verulega á komandi árum. Þó svo
að þessi aukning verði svona hófleg
í löndunum sem standa að ESB, þá
verða þau þó enn leiðandi þegar
kemur að heimsviðskiptum með
mjólkurafurðir segir í skýrslunni
enda munu þróunarlöndin þurfa
mun meiri mjólkurafurðir en þau
muni ná að framleiða sjálf á komandi
áratug. Helstu viðskiptasvæði
fyrir útfluttar mjólkurvörur telja
skýrsluhöfundar að verði Afríka
og Asía.
Veruleg fækkun kúa
Þrátt fyrir aukna mjólkur framleiðslu
næstu 10 árin spá skýrsluhöfundar
því að kúm muni fækka á sama
tíma eða alls um 1,4 milljónir
og verður þá heildarfjöldi kúnna
21,2 milljónir. Skýringin á þessari
fækkun er auðvitað fólgin í aukinni
nyt kúnna.
Undanfarin 10 ár hefur meðanyt
kúa aukist að jafnaði meðal landa
ESB um 1,9% en skýrsluhöfundar
spá því að þessi aukning verði
heldur minni á komandi árum eða
um 1,2%. Skýringin felst aðallega
í framangreindum kröfum um
sjálfbærni og umhverfisáherslur
sem gera það að verkum að bændur
munu líklega auka hlut heimaaflaðs
fóðurs á kostnað keypts orkumikils
fóðurs.
Spá hækkandi afurðastöðvaverði
Undanfarin ár hefur verið
töluverður verðmunur á ýmsum
hráefnum til vinnslu mjólkurafurða
svo sem á milli undanrennudufts
og smjörs svo dæmi sé tekið.
Skýrsluhöfundar telja að þetta
verðbil muni minnka á komandi
árum en skýringin á þessari spá felst
í því að talið er að vinnsluaðilum
mjólkurafurða muni takast að bæta
enn frekar nýtinguna á mjólkinni
og einstökum hráefnum hennar.
Fyrir vikið skapist því svigrúm til
að greiða hærra afurðastöðvaverð
til bænda, sem svo aftur mun leiða
til eflingar á framleiðslunni.
Ostaframleiðslan mun vaxa mest
Á komandi áratug mun hin
aukna mjólkurframleiðsla ESB
landanna að stórum hluta fara til
ostaframleiðslu en spáin gerir ráð
fyrir að 24% af mjólkurmagninu
fari til þeirrar framleiðslu enda
er eftirspurn eftir ostum mikil og
vaxandi á útflutningsmörkuðum
ESB landanna.
Þess er vænst að heildar fram
leiðsla ESB á ostum fari úr 10,8
milljón tonnum árið 2019 í
11,5 milljón tonn árið 2030
og að smjörframleiðslan
aukist úr 2,5 milljónum
tonna í 2,7 milljón tonn.
Á sama tíma er því hins
vegar spáð að almenn sala
á ferskri drykkjarmjólk
muni dragast saman um
7 kg á hvern íbúa í ESB
löndunum og fara undir 50
kg að meðaltali á næstu 10
árum. Á móti kemur að því
er spáð að neysluaukning
verði á öðrum ferskum
mjólkurvörum s.s. á jógúrti
og rjóma.
Erfitt að spá fyrir
um kjötmálin
Svo virðist sem kjöt
framleiðslan á komandi
árum geti þróast með
nokkuð öðrum hætti
en þegar horft er til
mjólkurframleiðslunnar.
Skýringin er sú að
framleiðslugreinin í heild
sinni er mun viðkvæmari
t.d. vegna sjúkdóma og
áhrifum af þeim. Nýlegt
dæmi er hröð útbreiðsla á
afrísku svínapestinni sem hefur haft
mikil áhrif á heimsframleiðslu á
svínakjöti á nýliðnu ári og haft áhrif
langt út fyrir svínaframleiðsluna
sem slíka þar sem neytendur
hafa fært kaup sín yfir á aðrar
kjöttegundir eða aðrar matvörur.
Skýrsluhöfundar telja þó að
þróunin verði áfram á þá leið að
áfram verði mikill innflutningur
á kjöt til Kína sem muni þrýsta
kjötverðinu í heiminum upp á við
til skamms tíma litið.
Til lengri tíma litið er talið að
kínversk kjötframleiðsla muni
aukast verulega og þar með muni
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Því miður gerist það
að gripahús í land
búnaði brenna. Þessu
getur fylgt mikið
fjárhagslegt tjón en ekki
síður tilfinningalegt
tjón. Ég held að allir
sem þekkja eitthvað
til sveitamennsku
viti hversu sterkum
böndum bændur
tengjast búfé sínu.
Mikið er af eldri
byggingum til sveita
sem hýsa búfénað og hafa
gert í sumum tilvikum
um margra áratuga
skeið. Misjafnt er hvaða
byggingareglugerðir voru
í gildi á þeim tímum og
þar með misjafnar kröfur
gerðar á byggingarefni og
byggingarhætti.
Nú í seinni tíð hefur hugarfar
til landbúnaðarbygginga breyst
nokkuð með tilliti til eldvarna
og þess hversu nauðsynlegt er að
menn verði varir við eldinn sem
fyrst, komi til þess að kvikni í.
Til þess að hægt sé að bregðast
við á upphafsstigi eldsins og forða
tjóni er algjört lykilatriði að fyrir
hendi sé búnaður sem lætur vita í
tíma. Tækninni hefur fleygt fram í
landbúnaði eins og á öðrum svið
um og því oft og tíðum meira um
alls kyns rafmagns og tölvubún
að sem ásamt öðrum þáttum geta
aukið líkur á íkviknun, fari eitt
hvað úrskeiðis.
Í leiðbeiningablaði Mannvirkja
stofnunar um landbúnaðar
byggingar nr. 116.BR1 segir að
sjálfvirk brunaviðvörunarkerfi
skuli alltaf setja upp í gripahúsum
ef tæknibúnaður er í sama rými
og gripirnir.
Reyksogskerfi
Vegna óhreininda og raka henta
hefðbundin brunaviðvörunarkerfi
oftast ekki vel og hafa menn því
sett upp svokölluð reyksogskerfi
sem henta betur í þessa tegund
húsa. Þá eru sett upp einföld
rörakerfi sem soga til sín loftsýni
og leiða þau gegnum síur og
rakagildrur áður en þau koma að
reykskynjara sem staðsettur er við
stjórnstöð kerfisins.
Nú eru til alls konar lausnir í
smáforritum sem geta gert mönn
um viðvart í gegnum farsíma um
leið og reykskynjarinn sendir frá
sér boð. Í mörgum tilfellum má
koma í veg fyrir mikið tjón með
þessum hætti.
Mikið er um lög og reglur
á landinu okkar góða og þykir
sumum nóg um. Hins vegar ná
lög og reglur ekki yfir alla hluti og
hvers vegna ættu þau að gera það?
Þegar um líf og velferð manna
og dýra er að ræða ætti almenn
skynsemi að fá okkur til þess að
gera sem best í þessum efnum þó
að það sé ekki fyrirskrifað í lög
og reglur hvað nákvæmlega á að
gera.
Fyrirhyggjusemi
Það er augljóst að dýr geta ekki
bjargað sér sjálf út úr brennandi
byggingum og því þurfum við
að hafa kerfi sem lætur okkur
vita svo við getum gripið inn í.
Þá gilda ekki rökin „það gerist
aldrei neitt hjá mér“ eða „þetta
kostar allt of mikið“. Sem betur
fer sleppa flestir í gegnum lífið án
stórra áfalla, en þeir
sem sleppa gera það
oft vegna þess að þeir
eru fyrirhyggjusamir.
Hvað kostnað varðar
má yfirleitt finna
nokkrar leiðir að sama
marki, hverja í sínum
verðflokki.
Mörg útköll eru
slökkviliðs mönnum
erfið og eru útköll í
land búnaðar bygg
ingar þar sem skepn
ur hafa farist í eldi
og/eða slasast mikið
í flokki þeirra verk
efna sem geta tekið mikið á. Það
er með þessi útköll eins og svo
mörg önnur sem menn myndu
gjarnan vilja sleppa við. Það er
til búnaður og verkþekking til þess
að lágmarka líkurnar á að eldur
nái að þróast og breiða úr sér í
landbúnaðarbyggingum. Þetta
er eitthvað sem allir viðkomandi
ættu og þurfa að tileinka sér.
Pétur Pétursson,
slökkviliðsstjóri Brunavarna
Árnessýslu og formaður
Félags slökkviliðsstjóra,
tók saman fyrir
Eldvarnabandalagið.
Til þess að hægt sé að bregðast við á upphafsstigi eldsins og forða
tjóni er algjört lykilatriði að fyrir hendi sé búnaður sem lætur vita í tíma.
Nauðsyn brunaviðvörunar-
kerfa í landbúnaði
Pétur Pétursson.
Dæmi um reyksogskerfi í gripahúsi
Mynd / Úr leiðbeiningum MVS nr.116.BR1
Ný skýrsla ESB um þróun landbúnaðarmála:
Spáð aukinni neyslu mjólkurvara
næstu tíu árin
Á komandi áratug mun hin aukna mjólkurframleiðsla ESB-landanna að
stórum hluta fara til ostaframleiðslu.