Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 20208 Rekstur félagsins Atlantic Leather á Sauðárkróki mun hefjast á ný innan skamms, en samnefnt félag fór í þrot á liðnu hausti. Hjónin Hallveig Guðnadóttir og Hlynur Ársælsson eru nýir eigendur Atlantic Leather og verður Hallveig framkvæmdastjóri þess. Láta frá sér gærusútunarbúnað Starfsemi félagsins var tvíþætt, annars vegar sinnti það sútun fiskroðs og framleiðslu sjávar­ leðurs og hins vegar voru gærur sútaðar hjá félaginu. Hlynur segir að sá þáttur starfseminnar verði aflagður og tækjabúnaður því viðkomandi verði seldur. Nýir eigendur búa á höfuð­ borgar svæðinu en Hlynur segir þau staðráðin í að reka fyrirtækið áfram á Sauðárkróki enda sé þar fyrir hendi mikil reynsla og þekk­ ing þegar að starfsemi af þessu tagi kemur. Hlynur hefur að baki langa starfs reynslu innan sjávar­ útvegsins, var m.a. lengi starfs­ maður hjá Iceland Seafood, fram­ kvæmdastjóri þess í Hamborg um skeið og starfaði mikið að markaðs­ og sölumálum. „Bakgrunnurinn er í sjávar­ útvegi. Ég hafði heyrt af þessu fyrirtæki og þótti það áhugavert. Þegar ég sá eignir þess auglýstar til sölu eftir gjaldþrotið fannst mér ómaksins vert að skoða hvort það gæti verið áhugavert að kaupa. Niðurstaðan var sú að það eru margir möguleikar fyrir hendi þegar kemur að sútun fiskroðs og eftir að við fengum erlendan aðila til liðs við okkur létum við slag standa,“ segir Hlynur. Áfram unnið við þróun Hann segir að áfram verði haldið að þróa aðferðir við sútun fiskroðs og koma þeim á enn umhverfisvænna stig en nú er. Forveri Atlantic Leather var í samstarfi við Evrópuverkefnið Horizion 2020 í þeim efnum og verður framhald á því að sögn Hlyns. „Við höfum hug á því í samvinnu við aðra að leggja töluvert fé í áframhaldandi rannsóknir og teljum að þær muni skila sér til framtíðar litið,“ segir Hlynur. /MÞÞ Katrín Jakobsdóttir forsætis­ ráðherra fjallaði m.a. um lofts­ lagsmál í áramótaávarpi sínu í Ríkissjónvarpinu. Hún sagði að um allan heim hafi krafan um aðgerðir gegn loftslagsvánni orðið háværari í ár. „Neyð hefur skapast víða um heim vegna veðurfarsöfga; það eru hitabylgjur, þurrkar, flóð og gróð­ ureldar. Súrnun sjávar af völdum loftslagsbreytinga hefur neikvæð áhrif á vistkerfi hafsins. Þetta eru alvarleg mál sem ógna tilveru okkar og möguleikum komandi kynslóða. En við getum tekist á við þetta og hér á Íslandi bæði getum við og eigum að leggja okkar lóð á vogar­ skálar,“ sagði Katrín. Hún sagði að nú þyrfti að láta verkin tala, sem væri nú verið að gera með því að fjárfesta í orku­ skiptum og kolefnisbindingu, í almenningssamgöngum og raf­ væðingu hafna. Þá sé verið að leggja aukna áherslu á rannsóknir og nýsköpun í loftslagsmálum og grænar ívilnanir og grænir skattar munu hraða þessari þróun í rétta átt. Katrín sagði svo: „Í umhverfis­ og loftslagsmálum hefur íslenskt atvinnulíf lagst á árar með stjórnvöldum og sýnt mikinn metnað á árinu, með eigin markmiðum um kolefnishlutleysi. Og síðan er það fólkið í landinu, ekki síst unga fólkið, sem vill snúa af braut vaxandi mengunar og kolefnisframleiðslu. Það er unga fólkið sem hefur brýnt stjórnmálamenn til dáða og við eigum að hlusta á skýrar raddir þess. Til að leysa slík verkefni er ekkert mikilvægara en von, bjartsýni og dugnaður til að árangur náist. Þar getur Ísland skipt máli með því að láta rödd sína heyrast um allan heim og það höfum við gert á þessu ári í samvinnu við aðrar þjóðir sem hafa lagt fram aðgerðaáætlanir í sínum málum. Við munum halda áfram á þeirri braut á nýju ári.“ /MHH FRÉTTIR Katrín kom víða við í nýársávarpi sínu en loftslagsmálin voru henni ofarlega í huga enda eru þau mál málanna um allan heim. Mynd / Stjórnaráðið Loftslagsmálin brenna á forsætisráðherra Egill Gautason, doktorsnemi við Háskólann í Árósum, hefur í rúmt ár unnið að erfðarannsóknum á íslenska kúakyninu, þar sem bæði erfðafræðilegur uppruni er kannaður en einnig hver þróun og áhrif skyldleikaræktarinnar er hér á landi. Hann greindi frá fyrstu niðurstöðunum nýverið í grein, þar sem staðfest er að íslenskar kýr eru norrænar að uppruna og mest skyldar þremur finnskum kúakynjum og sænsku fjallakyni – af þeim kúakynjum sem borin voru saman við það íslenska. Þar kemur fram að íslenski kúastofninn er eini stóri og óblandaði stofninn meðal þessara kynja sem gerir hann afar sérstakan. Aðalmarkmið verkefnisins er hins vegar að innleiða erfða­ mengjaúrval til að nota við erfðamengjakynbætur fyrir litla kúastofna og kemur í kjölfar ályktunar aðalfundar Landssambands kúabænda árið 2016 um að hagkvæmni slíks fyrirkomulags yrði kannað. Líklegast frá Noregi Egill segir að einungis sé um niðurstöður að ræða úr fyrsta hluta verkefnisins, en það er styrkt af Auðhumlu, Mjólkursamsölunni og Kaupfélagi Skagfirðinga. „Meginniðurstöðurnar eru að íslenskar kýr eru norrænar að uppruna og þar af leiðandi líklegast frá Noregi, þær eru enn fremur erfðalega ansi sérstæðar því innflutningur á öðrum kúakynjum hefur nánast engin áhrif haft á stofninn. Þá er stofnbygging engin,“ segir Egill. Sýnt fram á sérstöðu íslenskra kúa í fyrsta sinn „Þessar niðurstöður koma ekki beinlínis á óvart hvað skyldleikann og stofnbygginguna varðar, þar sem þær eru í samræmi við fyrri niðurstöður. Fyrri rannsóknir hafa bent til skyldleika við norskar kýr, en skyldleiki íslenskra kúa við bresk kyn hefur lítið verið rannsakaður. Af þeim sökum rannsakaði ég skyldleika við kúakyn frá Skotlandi, Englandi og Írlandi, en fann ekkert sem benti til skyldleika íslenskra kúa við breskar kýr,“ segir Egill um niðurstöðurnar. „Mér vitanlega hefur ekki verið sýnt fram á erfðalega sérstöðu íslenskra kúa með óyggjandi hætti fyrr en nú, en fyrri rannsóknir hafa þó heldur bent til þess að þær hafi lengi verið einangraðar. En nú eru sem sagt komin gögn sem sýna fram á þessa sérstöðu,“ bætir hann við. Alveg nýjar niðurstöður um nær engin innflutt áhrif Að sögn Egils var í rannsókninni einnig beint sjónum að mögulegri blöndun íslenska stofnsins og áhrifum innflutnings. „Þetta hefur aldrei verið rannsakað og því um algjörlega nýjar upplýsingar að ræða. Það sem kemur kannski mest á óvart er hversu hreinn stofninn er og hversu lítil áhrif eru af innflutningi annarra kynja til landsins. Við töldum líkur á að finna meiri áhrif frá rauðum dönskum kúm, en fundum nærri því engin áhrif. Það er samt dálítið vandasamt að fjalla um þetta, því að niðurstöðurnar geta líka bent til innflutnings annarra kynja, sem engar heimildir eru annars um. En hafi sá innflutningur átt sér stað, þá hefur hann engin teljanleg áhrif haft á stofninn. Það þarf meiri rannsóknir til að skera úr um það. En meginniðurstaðan, hvað áhrif innflutnings varðar, er að íslenski stofninn er nærri algjörlega óblandaður öðrum kynjum.“ Engin teljandi stofnbygging íslenska stofnsins „Við rannsökuðum líka hvort nokkra teljandi stofnbyggingu, eða undirstofna, væri að finna innan íslenska stofnsins – og fundum ekki. Það kom alls ekki á óvart – og er í samræmi við rannsókn Margrétar Ásbjarnardóttur sem hún stóð að árið 2010 ásamt fleirum. Það þýðir það einfaldlega að kerfisbundinn breytileiki er ekki til staðar, sem væri til dæmis ef kýr á Austurlandi væru frábrugðnar kúm annars staðar á landinu. Það myndi síðan bjaga kynbótamatið kerfisbundið. Hins vegar sýndum við fram á að það er samt sem áður dálítil bygging í stofninum, sem útskýrist af skyldleika gripa við þrjú naut, Laska, Font og Stíg. Þessi einsleitni stofnsins er frekar til bóta fyrir kynbótastarfið, þar sem að meiri bygging getur valdið skekkju á kynbótamati. Þessu til viðbótar birti ég síðan þróun skyldleikaræktarstuðulsins síðustu árin og útreikning á virkri stofnstærð. Skyldleikaræktin hefur aukist töluvert, en er samt ekki kvíðvænlega mikil. Niðurstöðurnar verða nýttar við áframhaldandi rannsóknir á íslenskum kúm, bæði hvað varðar þróun skyldleikaræktar og áhrif úrvals, auk þess sem niðurstöðurnar varðandi skyldleika við önnur kyn verða nýttar við rannsóknir á öryggi erfðamengjakynbótamats fyrir íslenskar kýr,“ segir Egill. /smh Staðfest er í rannsókn Egils að íslenska kúakynið er mjög sérstætt og einsleitt, en skyldleikaræktin er samt ekki kvíðvænlega mikil. Þetta er talið vera hagkvæmt fyrir kynbótastarfið. Mynd / MÞÞ Egill Gautason. Doktorsverkefni um erfðarannsóknir á íslenska kúakyninu: Staðfest að uppruninn er norrænn og mestur skyldleiki er við sænskt kúakyn og þrjú finnsk – Nær engin áhrif af innfluttum kúakynjum á íslenska stofninn Endurreisa starfsemi Atlantic Leather á Sauðárkróki – Búnaður til gærusútunar verður seldur

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.