Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 20204 FRÉTTIR Samkvæmt reglum um inn­ flutning á fersku kjöti sem tóku gildi um áramótin bera innflytj­ endur ábyrgð á að reglum um salmonellu og kampýlobakter sé fullnægt með vottun um að svo sé. Vottanirnar sjálfar eru svo á ábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila erlendis. Eftirlits­ aðilar sem eru annaðhvort Matvælastofnun eða Heilbrigðis­ eftirlit sveitarfélaga hafa eftirlit með að reglum um sýnatöku og rannsóknir sýna sé fullnægt. Krafa um frystiskyldu á inn­ fluttu kjöti féll niður um síðustu áramót auk þess sem núna má flytja inn hrá egg. Innflytjendur bera ábyrgð á að reglum um salmonellu og kampýlobakter sé fullnægt en staðfesting um að kjöt af kjúklingum og kalkúnum sé ekki smitað af kampýlóbakter og samkvæmt viðbótartryggingum að ekki hafi greinst salmonella í eggjum, svína­, nautgripa­, og alifuglakjöt er á ábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila erlendis. Eftirlitsaðilar hafa eftirlit með að sendingum sem berast hingað til lands fylgi rétt skjöl og að þau séu í lagi. Eftirlitið hjá innflutningsaðila Dóra S. Gunnarsdóttir, forstöðu­ maður Neytendaverndar hjá Matvælastofnun, segir að í kjölfar breytinganna séu að eiga sér stað ákveðnar breytingar á reglum um innflutning á kjöti og eggjum. „Mast er ekki lengur með svo­ kallað innflutningseftirlit á vörum eins og kjöti og eggjum þar sem þessar vörur eru nú í frjálsu flæði ef þær koma frá EES­löndum. Þess í stað fer eftirlitið fram hjá þeim aðila sem flytur inn vörurnar og sá sem ætlar að flytja inn kjöt með viðbótar­ tryggingum gagnvart salmonellu þarf að tryggja að sýni sem tekin eru uppfylli kröfur og staðfesta það með viðeigandi skjölum sem eiga að fylgja sendingum.“ Að sögn Dóru geta Íslendingar farið fram á viðbótartryggingu af þessu tagi vegna þess hversu góð staðan í landinu er gagnvart salmonellu í þessum afurðum. „Það þýðir að við höfum feng­ ið samþykkt að við megum gera sömu kröfur til kjöts sem flutt er til landsins og kjöts sem framleitt er innanlands. Með öllum sending­ um af kjöti til landsins þurfa því að fylgja viðskiptaskjöl samkvæmt Evrópureglugerð frá 2005 um við­ bótartryggingu sem Svíþjóð og Finnland fengu á sínum tíma og Norðmenn og Danir fengu svo síðar. Eitt af þessum skjölum er skjal þar sem framleiðandinn erlendis lýsir því yfir að það hafi verið tekinn ákveðinn fjöldi sýna úr sendingu samkvæmt reglugerð og að rann­ sóknarniðurstöður sýni að þau hafi reynst vera laus við salmonellu.“ Fjöldi sýna í sendingu hefur aukist Í reglugerðinni er kveðið á um hversu mörg sýni eigi að rannsaka með tilliti til salmonellu og er það miðað við fjölda eininga í hverri sendingu. „Dæmi um þetta er að ef eining­ arnar af alifuglum í sendingu eru 300 þá þurfa sýnin að vera úr að minnsta kosti 55 einingum.“ Dóra segir að fjöldi sýna nú sé meiri en hann var fyrir breytinguna um áramótin en þá voru færri sýni tekin úr sendingu. „Við eru því í dag með betra eftirlit með því að það finnist salmonella í sendingunni en áður þar sem í dag eru tekin fleiri sýni. Það er þó ekki þar með sagt að það geti ekki verið salmonella í sendingunni þar sem rannsóknir á sýnum tryggja eingöngu að hún hafi ekki verið í þeim einingum sem voru tekin til rannsóknar. Það má því segja að þrátt fyrir að dekkun sendinganna sé góð þá er hún ekki 100% örugg.“ Aukið eftirlit fyrstu fjóra mánuði ársins Eins og fyrr segir þá er sýnatakan á ábyrgð framleiðenda /dreifingar­ aðila kjötsins erlendis en fyrstu fjóra mánuði ársins verður Mast með svokallað aukið eftirlit með innflutningi á kjöti í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. „Tíminn verður einnig notaður til að þjálfa fólk sem á að sinna þessu eftirliti í framtíðinni. Auk þess munum við taka sýni til sann­ prófunar á að rannsóknarniður­ stöður séu að gefa rétta mynd af sendingum sem koma til landsins. Við munum einnig skoða hvort réttum aðferðum sé beitt við sýna­ tökuna og hvort notaðar séu viður­ kenndar rannsóknaraðferðir.“ Ávallt er ábyrgð innflytjenda að tryggja að rétt skjöl fylgi og að loknu tímabilinu með auknu eftirliti mun eftirlitið beinast að því. Tíðni verður byggð á áhættumati og frammistöðu innflytjenda í að uppfylla kröfur. Einnig verða teknar stikkprufur á grundvelli áhættumats af kjöti á markaði. Íslenskar reglur gilda um kampýlóbakter Þegar kemur að hugsanlegu smiti af völdum kampýlóbakter er ekki talað um viðbótatryggingar því þar gilda séríslenskar reglur. „Staða Íslands hvað varðar kampýlóbakter í alifuglum er mjög góð og ein sú besta í heimi. Vegna þess ákváðu stjórnvöld að setja reglur sem segja að ef það á að flytja inn ferska alifuglaafurðir þá þarf framleiðandinn erlendis að sýna fram á að kampýlóbakter hafi ekki greinst í eldis­, slátur­ eða afurðasýni.“ Dóra segir að ekki þurfi að taka nema þrjú sýni í sendingu til að athuga með hugsanlegt kampýlóbaktersmit því að sögn dýralækna finnist sýkingin á annað borð þá er líklegt að hún sé til staðar í öllum eldishópnum. Brotalamir í eftirliti má tilkynna til framleiðslulandsins „Reynist vera grunur um brotalamir á skjölum sem fylgja sendingum höfum við möguleika á að tilkynna það til viðeigandi eftirlitsaðila í landinu sem varan kemur frá sem geta þá rannsakað málið betur en við höfum tækifæri til,“ segir Dóra S. Gunnarsdóttir, forstöðumaður Neytendaverndar hjá Matvælastofnun. /VH Eftirlit með innflutningi á kjöti og eggjum: Framleiðendur erlendis ábyrgir fyrir sýnatökum og rannsóknum Landsmót hestamanna verður haldið á Hellu 6.–11. júlí 2020: Öll bestu hross landsins á sama stað Landsmót hestamanna 2020 verður haldið á Hellu dagana 6. til 11. júlí næstkomandi. Framkvæmdastjóri mótsins segist búast við að um 8.000 til 10.000 gestir komi á mótið. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, framkvæmdastjóri Landsmótsins, segist ekki eiga von á öðru en að þetta verði hörkumót og að nú þegar sé búið að selja um 2.000 miða í forsölu en að hann eigi von á 8.000 til 10.000 gestum á Landsmót hestamanna á Hellu í sumar. Keppni og skemmtun „Dagskrá mótsins er með hefðbundnu sniði. Mótið stendur í sex daga, 6. til 11. júlí, og endar á laugardagskvöldi með stórkostlegum úrslitum og í framhaldinu kvöldvöku og dansleik. Það er lagt upp með mikla skemmtun allan tímann, hestakosturinn eins og best verður á kosið og einnig verður stórt markaðstjald, barnaleiksvæði og skemmtidagskrá.“ Eiríkur segir að forkeppnir fyrir Landsmótið fari fram í byrjun næsta sumars hjá aðildarfélögum Landssambands hestamanna á öllu landinu og í gæðingakeppni sé því háttað þannig að efstu hrossin frá hverju félagi í hverjum flokki eiga möguleika á að keppa á Landsmótinu. „Meðal flokka sem keppt er í á Landsmótinu eru barna­, unglinga­, ungmenna­ og A­ og B­flokkur. Einnig er keppt í tölti og skeiði og svo sýning kynbótahrossa. Fyrir tölt og skeið er bestu hrossum landsins boðið eftir stöðulista og sama á við varðandi kynbótasýningarnar. Það verða því öll bestu hross landsins á Landsmóti á Hellu.“ Gistiframboð gott „Þrátt fyrir að Hella sé stórborg á Suðurlandi tekur bæjarfélagið miklum stakkaskiptum þann tíma sem landsmótið stendur yfir og íbúafjöldinn að minnsta kosti áttfaldast. Hella er vel staðsett fyrir svona mót. Gestir bæði koma og fara, aðrir nýta sér tjaldsvæðið á mótssvæðinu og auk þess er gríðarlegt gistiframboð á svæðinu sem hefur verið að aukast jafnt og þétt síðustu ár,“ segir Eiríkur Vilhelm. /VH Eiríkur Vilhelm Sigurðarson. Frá Rangárbökkum þar sem Landsmót hestamanna 2020 mun fara fram. TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér HAFÐU SAMBAND 511 5008 Dóra S. Gunnarsdóttir, forstöðu­ maður Neytendaverndar hjá Matvæla­ stofnun. Með öllum sendingum af kjöti til landsins þurfa að fylgja viðskiptaskjöl samkvæmt Evrópureglugerð frá 2005 um viðbótartryggingu sem Svíþjóð og Finnland fengu á sínum tíma og Norðmenn og Danir fengu svo síðar.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.