Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202040 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Jörðin Litli Háls var á árum áður í eigu afa Hannesar Gísla Ingólfssonar, lagðist síðar í eyði en var nytjuð af Stóra Hálsi. Hannes býr nú á Litla Hálsi með Grétu Björgu Erlendsdóttur. „Við hjónin (borgarbörnin) keypum jörðina í ágúst 2003 en ekkert íbúðar hús var á jörðinni þannig að við byggðum okkur heilsárs íbúðarhús árið 2006 og ætluðum að vera með annan fótinn hér á Litla Hálsi og hinn í Kópavogi. En ekki leið á löngu að við fluttum alveg í sveitina. Byrjuðum með hesta og nokkrar hænur. Síðan komu nokkrar rollur, höfum ræktað upp ný tún og gert reiðvegi inn á landinu. Hér á Litla Hálsi er yndislegt að vera og barnabörnunum finnst gott að koma og taka þátt í bústörfunum,“ segir Gréta Björg. Býli: Bærinn okkar heitir Litli Háls. Staðsett í sveit: Bærinn okkar er norðanmegin Ingólfsfjalls og nær upp í Inghól í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ábúendur: Hannes Gísli Ingólfsson og Gréta Björg Erlendsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Erum tvö í kotinu með einn kött, hana Essasú 10 ára, og tvo ástralska fjárhunda, Bláaloga (Loga) 9 ára og Bjarnarkló (Kló)12 ára. Stærð jarðar? Jörðin er nálægt 700 hektarar. Gerð bús? Hross og ferðaþjónusta. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 40 hestar, nokkrar kindur og íslenskar landnámshænur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hefðbundinn vinnudagur er að fóðra dýrin og annað eftir þörfum. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bú störfin? Skemmtilegast er að taka á móti ungviðum sem fæðast en leiðinlegast er að reyna að heyja í vætutíð. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Hann verður með svipuðu sniði næstu árin. Hvaða skoðun hafið þið á félags­ málum bænda? Við erum bara með sýnishorn af búskap þannig að við látum stærri og fróðari bændur um félags málin. Hvernig mun íslenskum land­ búnaði vegna í framtíðinni? Ekki gott að segja en vonandi verður bjartara yfir landbúnaðinum. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Íslenska lambakjötið, ef rétt er á málum haldið. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Í ísskápnum finnst alltaf smjör, ostur, rabarbarasulta og auðvitað egg. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjötið frá Litla Hálsi. Eftirminnilegasta atvikið við bú störfin? Við fengum heimalning og tíkin Kló tók hann undir sinn verndarvæng og hafði hann í bælinu hjá sér. Kartöfluröstí og Sacherterta Kartöfluröstí er góður réttur einn og sér, sem meðlæti með aðalrétti – eða þá sem léttur réttur með blaðlauk, í dýrindis fetasósu. Kartöfluröstí í svissneskum stíl Hráefni › 400 g skrældar sterkjuríkar kartöflur, rifnar í sömu stærð og eldspýtur › sjávarsalt › svört piparkorn, mulin með kvörn › ólífuolía Hráefni í fetaostasósu › 150 g fetaostur › 30 g blaðlaukur › 3 msk. ólífuolía › 1 msk. nýpressaður sítrónusafi › mulinn pipar Aðferð Til að búa til sósuna þá byrjið þið að vinna saman fetaost, fínt skorinn blaðlauk, ólífuolíu og sítrónusafa í matvinnsluvél eða blandara þar til blandan er slétt. Kryddið með pipar eftir smekk. Hitið fimm matskeiðar af ólífuolíu í 22 sentimetra viðloðunarfrírri pönnu á miklum hita, bætið kartöflunum við og dreifið þeim jafnt og þrýstið þeim niður með spaða. Minnkið hitann niður í miðlungs hita og eldið í um það bil fimm mínútur og gætið þess að kartöflurnar brenni ekki. Losið „röstí“ frá hliðum pönnunn- ar með því að nota spaða og lyftið varlega frá botninum (en ekki fletta því strax). Það ætti að verða gullið og ljósbrúnt undir þegar það er orðið tilbúið til að snú því við. Til að snúa röstí kartöflunum við, byrjið að loka pönnunni með stóru loki (diski til dæmis) og snúið pönnunni þannig við, vandlega en hratt. Þá ættuð þið að enda með röstí í lokinu. Setjið pönnuna aftur á hitann, bætið við einni matskeið af olíu og látið röstí renna af lokinu á pönnuna. Eldið í fimm mínútur, eða þar til það er orðið gullið og stökkt á botnhliðinni. Losið röstí frá hliðum og botni pönnunnar og rennið henni á stóran disk (setjið það fyrst yfir á lokið). Kryddið með sjávarsalti og muldum pipar eftir smekk og berið fram með ríflegum skammti af fetasósunni. Sacherterta Sachertorte var fyrst gerð árið 1832 og er ein frægasta súkkulaðikaka í heiminum. Eitt frægasta kaffihús Vínarborgar, Cafe Sacher á Hotel Sacher, á heiðurinn og framreiðir enn í dag þessa frægu köku. Hinn 16 ára gamli lærlingur Franz Sacher, árið 1832, vissi ekkert um það hvaða áhrif kaka hans myndi hafa á súkkulaðiunnendur um allan heim. Uppskriftin að upprunalegu Sacher-Torte er vel geymt leyndar- mál og aðeins notuð fyrir gesti á Hótel Sacher í Vín. En hér er leyniuppskriftin afhjúpuð almenningi, eða því sem næst upp- runalegu kökunni. Hráefni fyrir Sachertorte › 7 eggjarauður › 150 g af mjúkt smjör › 125 g flórsykur › 200 g af dökku súkkulaði › 8 g af vanillusykri › 7 eggjahvítur › 125 g af sykur › klípa af salti › 150 g hveiti › smjör og hveiti til að pensla formið › 150–200 g apríkósusulta, til að dreifa yfir › romm, ef þess er óskað › þeyttur rjómi til að skreyta Fyrir gljáa › 200 g dökkt súkkulaði › 250 g sykur › 150–170 ml af vatni Aðferð Bræðið súkkulaðið hægt (helst í vatnsbaði). Blandið smjöri saman við flórsykur og vanillusykur þar til það hefur verið kremað. Hrærið eggjarauðunum smám saman út í. Hitið ofninn í 180 gráður. Smyrjið kökuform með smjöri og stráið hveiti yfir. Þeytið eggjahvíturnar með klípu af salti, bætið sykrinum saman við og sláið í stíft. Hrærið brædda súkkulaðinu út í deigið ásamt eggjarauðunum og bætið þeyttu eggjahvítunum varlega saman við með sleif, til skiptis með hveitinu. Setjið deigið í formið og bakið í um það bil klukkustund. Látið kökuna nú kólna (til að fá flatt yfirborð, snúið kökunni á hvolf strax eftir bökun og snúið henni svo aftur við eftir 25 mínútur). Ef apríkósusultan er of þykk, hitið hana stuttlega og hrærið þar til hún er slétt, áður en hún er bragðbætt með rommi eftir smekk. Skerið kökuna í tvennt þvert. Dreifið sultunni á grunninn og setjið hinn helminginn ofan á og hyljið efra yfirborðið og umhverfis brúnirnar með apríkósusultu. Fyrir gljáann Brjótið súkkulaðið í litla bita. Hitið vatnið með sykri í nokkrar mínútur. Hellið í skál og látið kólna þar til það verður rúmlega stofuheitt (ef gljáinn er of heitur verður hann mattur útlits, en ef hann er of kaldur verður hann of þykkur). Bætið súkkulaðinu við og leysið upp í sykurlausninni. Hellið gljáanum hratt, án þess að stoppa, yfir kökuna og dreifið henni strax út og sléttið yfir yfirborðið með spaða eða pönnukökuhníf. Látið kökuna stífna við stofuhita. Berið fram með ríflegum skammti af þeyttum rjóma. Ekki er ráðlegt að geyma Sachertertu í ísskápnum því þar vill hún „svitna“. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari Litli Háls Tíkin Kló og lambið.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.