Bændablaðið - 20.02.2020, Page 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 20202
Búnaðarþing 2020 verður haldið í
Bændahöllinni 2. og 3. mars næst
komandi. Meðal mála á dagskrá
eru endurskoðun félagskerfis
landbúnaðarins, jafnréttismál,
umhverfismál og málefni
Velferðar sjóðs BÍ.
Á þinginu verður lagt til að mótað
verði nýtt skipulag á félagskerfi
landbúnaðarins til að auka skil
virkni og bæta nýtingu fjármuna.
Markmiðið er einnig að ná fram sem
breiðastri samstöðu meðal bænda
um félagskerfið og auka þannig
slagkraft hagsmunagæslunnar.
Jafnframt að finna leiðir til að
fjármagna rannsóknir til að stuðla
að framþróun og fagmennsku í
landbúnaði.
Drög að jafnréttisstefnu
Með jafnréttisáætlun vilja Bænda
samtök Íslands stuðla að jafnrétti
kynjanna, jafnri stöðu og virðingu
kvenna og karla í félagskerfi sínu,
með því að ryðja úr vegi hindr
unum sem geta verið á vegi kvenna
og karla. Áætluninni er ætlað það
hlutverk að skoða og endurmeta
aðstæður á hverjum vinnustað og
tryggja sambærilega möguleika
fyrir alla starfsmenn. Auknu jafn
rétti fylgja ný verkefni, meiri stöð
ugleiki og aðdráttarafl fyrir nýtt
starfsfólk. Stjórnendur og starfs
fólk taka höndum saman og vinna
markvisst að jafnrétti með hagsmuni
allra í huga.
Lífrænn landbúnaður
Lögð verður fram tillaga um drög
að opinberri stefnumótun fyrir líf
rænan landbúnað á Íslandi, þar sem
markmiðið er að leggja grunn að
stefnu fyrir lífrænan landbúnað á
Íslandi. Að leggja mat á möguleika
lífræns landbúnaðar til útbreiðslu
hér á landi og skilgreina markmið
þar um.
Í greinargerð með tillögunni
segir að staðan í loftslagsmálum
knýi á um breytingar í landbúnaði
en hér á landi vegur hvað þyngst
nauðsyn þess að dregið verði úr
notkun á tilbúnum áburði sem
allur er innfluttur. Jafnframt verði
að bæta nýtingu búfjáráburðar
og auka notkun annarra lífrænna
áburðargjafa af ýmsu tagi.
Velferðarsjóður BÍ
Í tillögu um Velferðarsjóð BÍ er
farið fram á að reglum sjóðsins
verði breytt þannig að einstök bú
greinafélög geti sótt um styrki til að
fara í fyrirbyggjandi verkefni sem
miða að því að koma í veg fyrir
tjón á afurðum og búfé.
Styrkir til einstakra búgreina
félaga geti aldrei orðið hærri en
sem nemur þeirri fjárhæð sem
viðkomandi búgrein átti inni í
Bdeildinni þegar sjóðurinn var
stofnaður.
Þingið hefst klukkan 10.30
með skýrslu formanns og fram
kvæmdastjóra BÍ og umræðum
um fjármál en formleg setningar
athöfn verður í Súlnasal Hótel
Sögu klukkan 12.00, mánudaginn
2. mars. /VH
FRÉTTIR
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
Átt þú rétt á
slysabótum?
Við hjálpum þér
HAFÐU SAMBAND 511 5008
Ólympíuleikarnir í matreiðslu:
Íslenska kokkalandsliðið komst
á verðlaunapall í Stuttgart
Íslenska kokkalandsliðið komst á
verðlaunapall á Ólympíuleikum
landsliða í matreiðslu. Var tilkynnt
um úrslitin á viðburði á lokadegi
mótsins í gær, sem haldið var í
Stuttgart í Þýskalandi.
Liðið fékk bronsverðlaun í
heildarstigakeppninni. Norðmenn
eru Ólympíumeistarar og Svíar fengu
silfur.
Keppnisdagarnir voru tveir
hjá íslenska liðinu og fékk það
gullverðlaun út úr þeim báðum.
Gullverðlaun geta fleiri en eitt
lið fengið út úr hvorri keppnisgrein
og eru til marks um að tiltekinn
stigafjöldi hafi náðst.
Einungis landslið Svía
og Norðmanna fengu einnig
gullverðlaun út úr báðum
keppnum. Einnig eru veitt
silfur og bronsverðlaun í næstu
gæðaflokkum þar fyrir neðan.
Heildarstigafjöldinn segir síðan til
um endanlega röð liðanna.
Frábær leiðsögn
Sigurjóns þjálfara
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
er landsliðskona og varaforseti
Klúbbs matreiðslumeistara, sem
heldur utan um rekstur og starfsemi
kokkalandsliðsins. Hún segir að
í fyrsta skipti hafi verið keppt í
keppnisgreininni Chefs table,
svo það var ekki alveg á tæru við
hverju ætti að búast.
„En liðið hefur verið mjög
duglegt að æfa undir frábærri
leiðsögn þjálfarans Sigurjóns [sem
er Kokkur ársins 2019]. Þetta er ungt
lið og mjög metnaðarfullt svo ég
held að við getum verið einstaklega
stolt af þeim.
Liðsheildin, samvinnan
og gleðin í hópnum hefur
vakið eftirtekt margra hérna á
Ólympíuleikunum. Það verður
alveg svakalega spennandi að
fylgjast með þeim áfram.
Við viljum líka koma kæru
þakklæti á framfæri til þeirra sem
hafa staðið þétt við bakið á okkur,
eins og Íslandsstofu og Ísey Skyr,
en við notuðum skyrið í báðum
keppnisgreinum hérna úti,“ segir
Fanney Dóra.
Farsælt lið á undanförnum árum
Liðið hefur á síðustu árum verið
farsælt og unnið til gullverðlauna í
ýmsum keppnum, sem hefur komið
því í stöðu eins fremsta kokkalandsliðs
í heimi. Besti árangur landsliðsins
fyrir Ólympíu leikana nú var fimmta
sætið á heimsmeistaramótinu árið
2014 í Lúxemborg, en besti árangur
á Ólympíuleikum var níunda sætið
árið 2016 í Erfurt, Þýskalandi.
Á laugardaginn var fyrri keppnis
dagurinn og þá var framreiddur sjö
rétta hátíðarkvöldverður (Chef‘s table
fyrir tíu manna borð – og tvo dómara
að auki. Í reglunum var gert ráð fyrir
að kvöldverðurinn stæði saman af
fiskréttafati, pinnamat, veganrétti,
lambakjöti og desert. Á hráefnislista
íslenska liðsins var talsvert af íslensku
hráefni; meðal annars hörpuskel, gæs,
reykt ýsa, bleikja, wasabi, lamb og
skyr.
Á mánudaginn vann liðið svo aftur
til gullverðlauna fyrir heita matinn
(hot kitchen). Þá var eldað frá grunni
á keppnisstað, samkvæmt þriggja rétta
matseðli fyrir 110 manns. Íslenskt
hráefni var þar í aðalhlutverki; meðal
annars íslensk bleikja, íslenskt lamb
og skyr.
Eftirtaldir matreiðslumeistarar
skipa íslenska kokkalandsliðið:
Sigurjón Bragi Geirsson, þjálfari
íslenska kokkalandsliðsins, Björn
Bragi Bragason, forseti Klúbbs
matreiðslumeistara, Fanney Dóra
Sigurjónsdóttir, varaforseti Klúbbs
matreiðslumeistara, Kristinn Gísli
Jónsson, Snorri Victor Gylfason,
Sindri Guðbrandur Sigurðsson,
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Ísak
Darri Þorsteinsson, Jakob Zarioh
Sifjarson Baldvinsson, Ísak Aron
Ernuson og Chidapha Kruasaeng.
Áhersla á íslenskt hráefni til
matargerðarinnar
Kokkalandsliðið æfði stíft síðustu
mánuði fyrir keppnina. Hátt í
fjögur tonn af búnaði var sendur til
Þýskalands en liðið þurfti að setja upp
fullbúið eldhús á keppnisstaðnum.
Auk þess var talsverður hluti
hráefnisins fluttur út til Þýskalands,
en Kokkalandsliðið leggur áherslu á
að nota sem mest af hágæða íslensku
hráefni í matargerðina.
Ólympíuleikarnir í matreiðslu,
IKA Culinary Olympics, eru haldnir
á fjögurra ára fresti í Þýskalandi og
í ár eru 25 ár frá því þeir voru fyrst
haldnir.
Um 2.000 af færustu matreiðslu
meisturum heims keppa þar í nokkrum
keppnisgreinum matreiðslu. /smh
Búnaðarþing 2020:
Félagsmál landbúnaðarins í brennidepli
Bleikjan sem var í forrétt í heita
matnum, með svartrót, gúrkubolla,
bleikjusalati, bleikjuhrognum og
kremaðri fiskisósu.
Heiti maturinn. Lambahryggvöðvi,
með gljáðri gulrót, grænerturagú,
kartöflu- og brioche-pressu og
lambasoðsósu.
Eftirrétturinn. Kirsuberjafyllt súkku-
laði mús með Ísey skyr ganache,
hvítri súkkulaðiköku og saltri
karamellusósu.
Íslenska kokkalandsliðið náði frábærum árangri. Myndir / Kokkalandsliðið – Snorri Victor Gylfason
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir,
landsliðskona og varaforseti Klúbbs
matreiðslumeistara.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson og
Ísak Aron Jóhannsson einbeittir í
undirbúningi fyrir heita matinn.
Bænda
Facebook