Bændablaðið - 20.02.2020, Page 4

Bændablaðið - 20.02.2020, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 20204 Óveðrið sem gekk yfir landið í síð- ustu viku olli víða tjóni og ekki síst á gróðrarstöðinni Reykási á Flúðum. Hátt í 2.500 fermetrar af gleri brotnuðu og farga þurfti öllum gróðri sem var í fullri fram- leiðslu. Tjónið er áætlað milli 80 og 100 milljónir. Reynir Jónsson, eigandi Reykáss, var í viðbyggðu stál­ grindarhúsi þegar óveðrið gekk yfir og segir að það hafi verið sárt að heyra glerið í húsinu splundrast og að hann hafi verið dauðhrædd­ ur í stærstu hviðunum um að stál­ grindarhúsið færi líka. „Vindurinn í þessari átt getur verið mikill og að þessu sinni náði hann mikilli hæð og ef það brotnar ein rúða verða dómínóáhrif. Hún tekur nokkrar með sér og svo koll af kolli og eftir að húsin hafa opnast á annað borð er lítið sem heldur.“ Glerið splundraðist í hvellum „Ég er ekki frá því að skemmd­ irnar á gróðurhúsinu séu hátt í að vera Íslandsmet. Húsin eru 5.500 fermetrar að stærð og standa ofan í eins konar námu sem var búin til og hugsuð til að veita skjól. Við framleiðum milli 250 og 300 tonn af agúrkum, tómötum og salati á ári og framleiðslan var í fullum gangi þegar óveðrið gekk yfir.“ Reynir segir að vindur í hviðum hafi náð 50 til 60 metrum á sek­ úndu og að glerið í gróðurhúsunum hafi splundrast í hvellum. „Veðrið var hreinlega kolvitlaust og við erum að finna alls kyns hluti, gler­ brot og fleira í mörg hundruð metra fjarlægð frá húsunum og við erum búnir að hreinsa í hrúgu upp hátt í fjögur tonn af gleri í húsinu.“ Byrjaður að glerja Þegar Bændablaðið talaði við Reyni á þriðjudag var kominn til hans flokkur sem ætlaði að hefjast handa við að glerja húsin. „Fljótt á litið sýnist mér að það þurfi að glerja um 2.500 fermetra en það kemur betur í ljós hvort skemmdir séu meiri þegar við hefjumst handa. Mestar eru skemmdirnar á þakinu og svo eru um hundrað fermetrar af veggjum brotnir. Ræktunin í húsinu eyðilagðist öll og ég er búin að moka öllu út. Megnið voru nýjar plöntur í fullum vexti og stöðin í fullum rekstri.“ Aðspurðu r segist Reynir telja að hann sé tryggð ur fyrir skemmdunum og hann skýtur á að tjónið sé á bilinu 80 og 100 milljónir en hann segist vonast til að geta sáð í lok vik unnar. Minni skemmdir í nágrenninu „Auk þess sem gróðurhúsin skemmdust í óveðrinu fauk allt sem fokið gat og dráttarvél skemmdist illa. Hlaðið er allt meira og minna þakið í gleri sem á eftir að hreinsa upp.“ Reynir segir að auk skemmda hjá sér hafi orðið smærri skemmdir á gróðurhúsum í kringum hann. „Sem betur fer voru þær ekki miklar.“ /VH FRÉTTIR Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Gróðrarstöðin Reykás: Allt brotið og bramlað eftir óveðrið og tjónið hátt í 100 milljónir króna Reynir Jónsson í gróðurhúsinu í nóvember. Mynd / HKr. Gróðurhúsin að Reykási meðan allt lék í lyndi í haust. Mynd / Hörður Kristjánsson Moka þurfti allri ræktuninni. Mynd BÁÁ Glerið í þakinu á gróðurhúsunum splundraðist í óveðrinu. Mynd / Björn Ásgeir Ásgeirsson Brotið gler úti um um allt. Mynd / BÁÁ Kaupfélag Skagfirðinga: Greiða 6% uppbót á dilkakjötsinnlegg Kjötafurðastöð KS og Sláturhús KVH hafa gefið út tilkynningu um að greitt verði 6% uppbót á allt innlagt dilkakjöt síðastliðið haust og verður það reiknisfært 28. febrúar. Ágúst Andrésson, forstöðu­ maður Kjöts, afurðastöðvar KS, segir að rekstur afurðastöðvanna hafi gengið nokkuð vel á síðasta ári og því tilefni til þess að greiða uppbót á það verð sem áður hafði verið gefið út. „Ýmislegt jákvætt kemur til og þá helst að sláturtíðin gekk vel og einnig sala á afurðum bæði á erlendum og innlendum markaði. Minni framleiðsla á landsvísu hefur leitt til þess að birgðir eru í jafnvægi við eftirspurn og því dregst útflutningur saman á meðan innanlandssala heldur sínu. Fréttabréf afurðastöðvanna kemur út á næstu dögum þar sem farið er ítarlega yfir stöðuna í greininni. /VH Minni framleiðsla á landsvísu hefur leitt til þess að byrgðir eru í jafnvægi við eftirspurn og því dregst útflutningur saman á meðan innanlandssala heldur sínu. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.