Bændablaðið - 20.02.2020, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 20204
Óveðrið sem gekk yfir landið í síð-
ustu viku olli víða tjóni og ekki
síst á gróðrarstöðinni Reykási á
Flúðum. Hátt í 2.500 fermetrar
af gleri brotnuðu og farga þurfti
öllum gróðri sem var í fullri fram-
leiðslu. Tjónið er áætlað milli 80
og 100 milljónir.
Reynir Jónsson, eigandi
Reykáss, var í viðbyggðu stál
grindarhúsi þegar óveðrið gekk
yfir og segir að það hafi verið sárt
að heyra glerið í húsinu splundrast
og að hann hafi verið dauðhrædd
ur í stærstu hviðunum um að stál
grindarhúsið færi líka. „Vindurinn
í þessari átt getur verið mikill og að
þessu sinni náði hann mikilli hæð
og ef það brotnar ein rúða verða
dómínóáhrif. Hún tekur nokkrar
með sér og svo koll af kolli og eftir
að húsin hafa opnast á annað borð
er lítið sem heldur.“
Glerið splundraðist í hvellum
„Ég er ekki frá því að skemmd
irnar á gróðurhúsinu séu hátt í að
vera Íslandsmet. Húsin eru 5.500
fermetrar að stærð og standa ofan
í eins konar námu sem var búin til
og hugsuð til að veita skjól. Við
framleiðum milli 250 og 300 tonn
af agúrkum, tómötum og salati á
ári og framleiðslan var í fullum
gangi þegar óveðrið gekk yfir.“
Reynir segir að vindur í hviðum
hafi náð 50 til 60 metrum á sek
úndu og að glerið í gróðurhúsunum
hafi splundrast í hvellum. „Veðrið
var hreinlega kolvitlaust og við
erum að finna alls kyns hluti, gler
brot og fleira í mörg hundruð metra
fjarlægð frá húsunum og við erum
búnir að hreinsa í hrúgu upp hátt í
fjögur tonn af gleri í húsinu.“
Byrjaður að glerja
Þegar Bændablaðið talaði við
Reyni á þriðjudag var kominn til
hans flokkur sem ætlaði að hefjast
handa við að glerja húsin. „Fljótt
á litið sýnist mér að það þurfi að
glerja um 2.500 fermetra en það
kemur betur í ljós hvort skemmdir
séu meiri þegar við hefjumst handa.
Mestar eru skemmdirnar á þakinu
og svo eru um hundrað fermetrar
af veggjum brotnir.
Ræktunin í húsinu eyðilagðist
öll og ég er búin að moka öllu út.
Megnið voru nýjar plöntur í fullum
vexti og stöðin í fullum rekstri.“
Aðspurðu r
segist Reynir
telja að hann sé
tryggð ur fyrir
skemmdunum
og hann skýtur
á að tjónið sé á
bilinu 80 og 100
milljónir en hann
segist vonast til
að geta sáð í lok
vik unnar.
Minni skemmdir í nágrenninu
„Auk þess sem gróðurhúsin
skemmdust í óveðrinu fauk allt sem
fokið gat og dráttarvél skemmdist
illa. Hlaðið er allt meira og minna
þakið í gleri sem á eftir að hreinsa
upp.“
Reynir segir að auk skemmda hjá
sér hafi orðið smærri skemmdir á
gróðurhúsum í kringum hann. „Sem
betur fer voru þær ekki miklar.“ /VH
FRÉTTIR
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
Gróðrarstöðin Reykás:
Allt brotið og bramlað eftir óveðrið
og tjónið hátt í 100 milljónir króna
Reynir Jónsson í gróðurhúsinu í nóvember. Mynd / HKr.
Gróðurhúsin að Reykási meðan allt lék í lyndi í haust. Mynd / Hörður Kristjánsson
Moka þurfti allri ræktuninni. Mynd BÁÁ
Glerið í þakinu á gróðurhúsunum splundraðist í óveðrinu. Mynd / Björn Ásgeir Ásgeirsson
Brotið gler úti um um allt. Mynd / BÁÁ
Kaupfélag Skagfirðinga:
Greiða 6% uppbót á dilkakjötsinnlegg
Kjötafurðastöð KS og
Sláturhús KVH hafa gefið
út tilkynningu um að greitt
verði 6% uppbót á allt innlagt
dilkakjöt síðastliðið haust og
verður það reiknisfært 28.
febrúar.
Ágúst Andrésson, forstöðu
maður Kjöts, afurðastöðvar KS,
segir að rekstur afurðastöðvanna
hafi gengið nokkuð vel á síðasta
ári og því tilefni til þess að
greiða uppbót á það verð sem
áður hafði verið gefið út.
„Ýmislegt jákvætt kemur til
og þá helst að sláturtíðin gekk
vel og einnig sala á afurðum
bæði á erlendum og innlendum
markaði. Minni framleiðsla á
landsvísu hefur leitt til þess
að birgðir eru í jafnvægi
við eftirspurn og því dregst
útflutningur saman á meðan
innanlandssala heldur sínu.
Fréttabréf afurðastöðvanna
kemur út á næstu dögum þar
sem farið er ítarlega yfir stöðuna
í greininni. /VH
Minni framleiðsla á landsvísu hefur leitt til þess að byrgðir eru í jafnvægi
við eftirspurn og því dregst útflutningur saman á meðan innanlandssala
heldur sínu. Mynd / HKr.