Bændablaðið - 20.02.2020, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202022
TÆKNI&VÍSINDI
Vistkerfi neðansjávar þar sem tilraunir eru gerðar á ræktun grænmetis og ávaxta í verkefninu Nemo´s Garden.
Myndir / Ph Skull Photos
Landbúnaður stundaður
neðansjávar
Árið 2012 fékk kafarinn og garð
yrkjuáhugamaðurinn Sergio
Gamberini, eigandi fyrirtækis
ins Ocean Reet Group, hugmynd
að því að rækta kryddjurtir
neðan sjávar á sjálfbæran hátt. Í
byrjun hugsaði hann um basil
kryddjurtina, sem er mest notuð
í pestó, og úr varð að hann hóf
tilraunir sínar neðansjávar undir
merkjunum Nemo´s Garden.
Eins og flestar kryddjurtir þarf
basil verndað umhverfi í sól með
vel ræstum jarðvegi og stöðugt og
jafnt hitastig. Sergio hófst handa
með aðstoð félaga sinna í Ocean
Reet Group og sökkti gegnsæju
lífríki 20 fetum fyrir neðan yfirborð
sjávar, fyllti þau með lofti og síðan
hófst tilraunaverkefnið með ræktun
neðansjávar.
Ekkert skordýraeitur
Með kerfi sínu sá Sergio fyrir sér
að það gæti komið í stað erfiðleika
við notkun á skordýraeitri en hið
lokaða vistkerfi sem myndast inni
í lífríkinu er vel verndað gegn árás
sníkjudýra. Hann notar því ekkert
skordýraeitur við framleiðsluna og
er hið vistfræðilega umhverfi lokað
fyrir vatni sjávar sem kemur í veg
fyrir truflun á vistkerfi þess síðar
nefnda. Þegar kemur að gróður
áburði er náttúrulegum vökva bætt
í mismunandi undirlög eða í vatns
aflskerfin til að gefa eitt eða fleiri
næringarefni til plantnanna, sem
er nauðsynlegt fyrir vöxt þeirra.
Mismunandi tegundir
grænmetis
Sergio kannar nú möguleikann
á því að framleiða áburð úr þör
ungum beint úr sjónum þar sem
neðansjávargarðyrkjuræktunar
stöðinni er komið fyrir. Endurbætur
í stjórnun vatns fyrir landbúnað eru
kjarnaefni verkefnisins Nemo´s
Garden. Vegna hitastigsbreytinga á
loftinu innan vistkerfisins og sjáv
arvatnsins umhverfis þess gufar
vatnið upp á botni vistkerfisins
og þéttir auðveldlega innra yfir
borðið. Þar sem stöðin neðansjávar
þarf vatn utan frá til að virka fyrir
plönturnar óskar Sergio eftir að
vera með sínar stöðvar sem lengst
frá öðrum stöðvum sem þurfa
ferskvatn, eins og eldisstöðvar fyrir
fisk sem dæmi. Enn sem komið
er eru ákveðnar takmarkanir við
verk efnið og hvað sé hægt að rækta
neðansjávar og því er Sergio enn á
tilraunastigi með hugmynd sína en
þróar sig áfram með mismunandi
tegundir grænmetis og ávaxta eins
og staðan er í dag. /ehg
Sergio og teymi hans kanna nú hvernig ræktun jarðarberja kemur út neðansjávar.
Vistkerfið, sem sökkt er 20 fetum fyrir neðan yfirborð sjávar, fær góða loftun
en áskoranir eru að koma ferskvatni inn á stöðvarnar.
Vetnisknúna ofursnekkjan AQUA þykir afar sérstök í útliti og á að verða 376
fet að lengd. Myndir / Sinot Yacht Argitecture & Design
Vetnisknúin ofursnekkja
Fréttir af 376 feta
vetnis knúinni ofur
snekkju hafa flogið
um netmiðla að undan
förnu þar sem fullyrt er
að Bill Gates, stofnandi
Microsoft, hafi lagt
600 milljónir dollara
í smíðina og skipið sé
hannað af Sinot Yacht
Arcitecture & Design
og Lateral Naval
Architects. Sagan um
aðkomu Bill Gates að
málinu mun þó ekki
vera alls kostar rétt,
en hugmyndin að smíði vetnis
snekkju er þó sönn og var hug
myndin kynnt á ofursnekkjusýn
ingu í Mónakó í fyrra.
Sinot Yacht Arcitecture &
Design, eða SINOT eins og fyrirtæk
ið er kallað í daglegu tali, sendi frá
sér yfirlýsingu þann 10. febrúar þar
sem þvertekið er fyrir að fyrirtækið
hafi gert samning við Bill Gates um
sölu á vetnisknúinni snekkju sem
nefnd er Aqua. Eigi að síður var
hugmyndin að slíkri snekkju kynnt
á bátasýningunni Monaco Yacht
Show 2019. Í yfirlýsingu Sinot er
skýrt tekið fram að vetnisverkefnið
Aqua sé ekkert tengt Bill Gates, né
öðrum honum tengdum. Sinot hafi
heldur engin viðskiptatengsl við
Bill Gates. Hins vegar er líka tekið
fram að Aquaverkefnið sé í vinnslu.
Ætlunin sé með því að skapa betri
framtíð í skipasmíði og eru áhuga
samir viðskiptavinir hvattir til að
skoða verkefnið.
Byggt á takmarkalausu
ímyndunarafli
Í Forbes var umfjöllun um málið
þann 9. febrúar síðastliðinn. Þar
segir að kynningin á 376 feta
langri, vetnisknúinni ofursnekkju
[superyacht] frá SINOT, sem nefnd
er AQUA, hafi vakið mikla athygli á
sýningunni í Mónakó. Var þar byggt
á takmarkalausu ímyndunarafli í
hönnun. Snekkjan sé þó tiltölu
lega lítil að mati Forbes, ef miðað
er við að mögulegur kaupandi sé
ofurmilljarðamæringur með mikla
framtíðarsýn, ástríðu, reynslu og
hugrekki til að fara út í að byggja
upp vetnisknúna ofursnekkju sem
aldrei hafi verið gert áður.
Hins segir að það líti út fyrir
að hönnuðurinn Sander Sinot hafi
hugsanlega fangað eldingu í flösku
þegar honum datt þetta í hug.
„Í hverju verkefni skora ég á
teymið mitt og sjálfan mig að gera
betur en við höfum nokkru sinni
gert áður,“ útskýrir Sinot.
„Við þróun AQUA fengum við
innblástur frá lífsstíl hyggins, fram
sýns eiganda, um að nýta
fjölhæfni vatns og nýjustu
tækni til að sameina það í
376 feta ofursnekkju sem
drifin yrði af fljótandi
vetni og efnarafal. Þar
yrði stuðst við byltingar
kennda tækni, svo og
góða hönnun og fagur
fræði.“
Raforka framleidd úr
vetni sem knýr allan
búnað skipsins
Raforkan, sem fram
leidd er úr vetninu með
efnarafal, verður bæði
notuð til að knýja skrúfu
snekkjunnar sem og allan
annan búnað í skipinu.
Stórar rafhlöður verða
einnig um borð til að beita
til orkumiðlunar þegar á
þarf að halda. Með því
að framleiða raforku með
efnarafal og nýta rafmót
ora til að snúa skipskrúf
unni, þá verður skipið eins
hljóðlátt og mögulegt er.
„Ímyndaðu þér AQUA úti á rúm
sjó að ryðja frá sér vatni með vatni,“
segir Sander Sinot.
„Með 17 hnúta hraða og drægni
upp á um 3.750 sjómílur gæti
AQUA verið í fararbroddi ofur
snekkjanna.“
Forbes segir að það sé frekar
auðvelt að ímynda sér að Bill Gates
sé nokkuð spenntur fyrir svoleiðis
hugmynd.
Eins og sjá má á myndum sem
teiknaðar hafa verið af AQUA eru
nýjungar ekki bara bundnar við
vélarrúmið. Svíta eigandans, sem
tekur við fremri hluta efri þilfarsins,
er staðsett á opnu svæði með sam
tengdum rýmum sem skipt er
upp með fíngerðu tréverki. Stórir
gluggar veita ótrúlegt útsýni og nátt
úrulega birtu inni í skipinu. /HKr.
Líklega gæti metnaður milljarðamæringa með fulla
vasa fjár gert smíði vetnisknúinnar ofursnekkju
að veruleika.
Ekki dónalegt fyrir eigandann að geta setið á bak
við gler frammi í stafni snekkjunnar, sötrandi
dýrustu rauðvín á siglingu inn í sólarlagið.
Allt til alls og sundlaug með fossum á dekkinu.